Bændablaðið - 23.02.2023, Qupperneq 66

Bændablaðið - 23.02.2023, Qupperneq 66
66 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. febrúar 2023 Samkvæmt vefsíðu ESG Today kemur fram í nýrri könnun að einungis 0,4% fyrirtækja af tæpum 19.000 hafa sýnt fram á greinargott yfirlit yfir framleiðsluferla sína með tilliti til loftslagsaðgerða. Kemur einnig fram að tískuiðnaðurinn er einn þriggja iðnaðargeira er stendur sig hvað verst. Má segja, að með þetta í huga hafi Frakkar ákveðið nýverið að taka stórt skref undir hatti Græns samfélagssáttmála Evrópusambandsins – Hringlaga hagkerfi, lög gegn úrgangi – er þeir settu fram löggjöf þess efnis að forsvarsmenn tískuiðnaðar skyldu bjóða upp á gegnsætt framleiðsluferli. Tóku lögin strax gildi og var áætlað að fyrirtæki með ársveltu yfir 50 milljónum evra skyldu fylgja tilskipuninni nú þegar. Þau, þar sem veltan er smærri, fylgja í kjölfarið yfir næstu tvö ár. Aðgengilegt á skilvirkan hátt Í grundvallaratriðum krefur lög- gjöfin tískuvörumerki um að veita neytendum ítarlegar upplýsingar er varða framleiðsluferli varningsins frá grunni. Meðal þeirra upplýsinga sem óskað er eftir má nefna sjálfbærni, möguleika á endurvinnslu, hversu mikið hlutfall efnis er endurunnið og magn örtrefja. Mætir heildar- framleiðslan eftirspurn eða er um offramleiðslu að ræða? Ef svo er – hvert fara afgangsflíkur o.s.frv.? Vöruupplýsingar skulu vera aðgengilegar neytendum bæði á sölustað og á netinu. Í raun þarf að tileinka hverri vöru sérstaka vefsíðu þar sem neytendur eru upplýstir um framleiðsluferli hennar. Áhugavert er að einnig er krafist þess að þau lönd sem kjósa að selja varning sinn til Frakklands geri slíkt hið sama – safni saman öllum mögulegum upplýsingum, þýði yfir á frönsku og geri neytendum aðgengilegt á vefsíðu. Er markmiðið að hvetja fólk til að taka meðvitaðar ákvarðanir um innkaup sín og meðhöndla textíl- og umbúðaúrgang á skilvirkari hátt auk þess að ýta undir að betrumbæta verkhætti innan tískuiðnaðarins. Um árabil hefur verið umræða varðandi mengun afgangsfatnaðar, en víðs vegar um heiminn má m.a. finna svæði innan íbúabyggða þar sem fatahaugar eru brenndir og valda allverulegri mengun. Svo ekki sé talað um almenna offramleiðslu á oft ódýrri vefnaðarvöru sem tekur fleiri þúsund ár að eyðast í umhverfinu. Spor í átt að grænni framtíð tísku og textíls Það er lofsvert að frönsk stjórnvöld hafa skuldbundið sig til svo strangrar lagastefnu. Þó kom ákvörðunin frekar á óvart enda Frakkland fyrst allra landa í Evrópusambandinu til að taka skrefið. Einhverjir fataframleiðenda eru því ekki alveg í rónni og hafa bent réttilega á að stór hluti þess fatnaðar sem ætlaður er fyrir vor/sumar 2023 sé nú þegar framleiddur og á leið í verslanir Frakklands, án þess að seljendur geti boðið neytendum upp á þær upplýsingar sem krafist er nú. Á móti kemur að hugmyndin um gagnsætt ferli hefur verið á lofti í nokkur ár og án efa gefið fyrirtækjum og hagsmunaaðilum í iðnaði nægan tíma til að rökræða lykilatriði og rannsaka ávinning af slíkri ákvörðun. Það er því kappsmál hjá fyrirtækjum að geta sýnt fram á jákvætt ferli birgðakeðju sinnar með tilliti til kolefnisspora. Næstu 5-10 ár skipta sköpum Forsvarsmenn tískuiðnaðarins hafa viðurkennt að gagnsæi aðfanga- keðju muni draga úr kolefnissporum framleiðsluferlisins í heild sinni og þökk sé stafrænum nýjungum er hægt að eiga auðveld og aukin samskipti við viðskiptavini sem þá í kjölfarið knýi fram breytingar. Markmið sem þessi er mikilvægt að hafa í huga – enda samkvæmt tillögu Alþingis Íslendinga til þingsályktunar um grænan samfélagssáttmála árið 2018-19, kemur fram að: „Nýjustu rannsóknir í loftslags- málum sýna að næstu fimm til tíu ár skipta sköpum fyrir mannkynið. Þá mun ráðast hvort næst að stemma stigu við loftslagsbreytingum eða fást við skelfilegar afleiðingar þeirra.“ Til viðbótar við gagnsæi tískunnar er svo hægt að ná raun- verulegum framförum í átt að mikilvægum sjálfbærnimarkmiðum með því að lengja líftíma fatnaðar – endurselja eða endurnýta slitna hluti og endurvinna efni. /SP Hvítmáfur er fremur stór máfur og einn af þremur stórum máfum sem halda til við Ísland. Þeir eru svartbakur, hvítmáfur og sílamáfur. Hvítmáfurinn er mjög líkur svartbak í vexti og stærð. Hann er hins vegar allur mun ljósari eða að mestu hvítur og síðan ljósgrár á baki. Hann er hánorrænn fugl og finnst allt í kringum Norður-Íshafið. Hérna við Ísland eru helstu varpstöðvarnar við Breiðafjörð og Vestfjarðakjálkann. Þegar vetrar dreifast þeir allt í kringum landið og er líklegt að við vetrarstofninn bætist fuglar frá Svalbarða og Grænlandi. Þeirra helsta fæða eru sandsíli og loðna ásamt skeldýrum, krabbadýrum og krossfiskum sem hann leitar uppi allt í kringum ströndina. Tveir aðrir máfar eru mjög líkir hvítmáf en þeir eru silfurmáfur og bjartmáfur. Þeir eru báðir mun minni en hvítmáfur og hefur silfurmáfurinn einkennandi svarta vængenda sem hvítmáfurinn hefur ekki. Hvítmáfar og silfurmáfar hafa hins vegar kynblandast og hafa alls konar millistig orðið til. Bjartmáfur er eitt af þessum millistigum enda eru þeir mjög líkir hvítmáf nema allur miklu minni og fíngerðari. Fuglinn á myndinni ber öll einkenni hvítmáfs en dökku handflugsfjaðrirnar sem sjást yst á vængjunum vekja spurningu hvort hér gæti mögulega verið kynblendingur hvítmáfs og silfurmáfs. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson FRÆÐSLA Tíska: Gegnsætt ferli framleiðslu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.