Kirkjublaðið - 09.12.1946, Side 15

Kirkjublaðið - 09.12.1946, Side 15
KIRKJUBLAÐIÐ JÓLIN 1946 15 tilverusniði, sem tákn þess, sem hann ekki gat skynj- að nema sem óm úr ókunnum fjarska, þess, sem hann fann, að sér var ofurefli til skilnings og við- fangs, þess, sem réði og stýrði engu að síður og eigi tjáði að mögla í móti, — með öðrum orðum: Þess, sem stóð bak við tilveru hins sýnilega. Það var sem sé alveg það sama í eðli sínu, þótt á ófullkomn- ara stigi væri, sem það, er vakir fyrir öllum — líka æðri — átrúnaði: Að viðurkenna sem vissu hinn stýrandi mátt, hið skapandi afl, sem öllu mannlegu er ofar, og að leitast við að komast í samband við það til verndar lífi og afkomu. Þaö var trúin á Guð. Menn leituðu þá, eins og síðar og enn þann dag i dag, á náðir hins „allsvaldanda"; hræddar og hrjáð- ar og þjakaðar manneskjurnar leituðu þá eins og nú athvarfs, hjálpar og huggunar hjá þeim, sem þær á sína vísu trúðu, að ætti máttinn öllum framar. Og' ekki ófyrirsynju óttuðust menn, og óttast, það sem vel má kalla „refsingu", sem búin er hverjum þeim, sem ekki vill fela sig Guði, ógn, sem meðal annars birtist í órjúfandi náttúrulögmálum, sem engum tjó- ar að ætla sér að yfirbuga, heldur verður að „hlýða“. Óttinn og hlýðnin voru öllum skiljanleg hugtök og sjálfsögð. En mennirnir hafa líka með langri reynslu getað lært að þekkja „mildi“ þessa máttar, ef lifað er í samræmi við hans voldugu boð. Mennirnir hafa kannað náð Guðs, sem er óendanleg, ef keppzt er af heilum hug að nálgast hann, sem öllum ann, og elska hann á móti. * Vissulega má segja, að.ti'úarlífið sé að ýmsu frá- brugðið öðrum menningarfyrirbrigðum, þótt af sömu rót sé, og að sú þróun, sem nú var lýst, hefði bæði getað gerzt með þeim, er í fásinni lifðu, og eins við fjölmenna sambúð. Vissulega leitar mannsand- inn til hins æðra oftlega, ekki sízt á einverustund- um, eins og áður var minnzt á, enda finnur maður þá minnstan styrk frá hálfu annarra manneskja og er opnari fyrir áhrifum alnáttúrunnar, en hún er, rétt skilin, ávallt í samræmi við höfund sinn. En um þetta hefir maðurinn þó í öndverðu orðið að öðlast nokkra hugmynd við samlífsþjálfun. Og þró- un trúarlífsins á ytra borðinu, í trúarbrögðum, var lítt hugsanleg, nema samskipti fleiri manna gætu átt sér stað, svo sem nokkuð vai' rakið, og þá fyrst hefir t. d. framkvæmd trúarsiða, sem er mikilsvert atriði, getað þroskazt, er sameining gat orðið um þá og uppihald þeirra. Þá hafa og í annan stað hin mann- legu áhrif átrúnaðarins — trúarinnar — fyrst getað komið í 1 jós, er menn sýndu þau í umgengni og sam- skiptum við aðra. Bei' þetta þannig allt að sama brunni. En þegar nú lífið og þroskinn er skoðað í þessu ljósi, hversu bert verður þá ekki, að mönnunum ber að lifa saman í „ást og eindrægni“, til þess að áorka sem mestu sameinaðir, því að í því er krafturinn* íólginn til enn öflugra trúarlífs og betri daga, þar sem Guð gefur frið og farsæld. Maðurinn er, almennt skilið, ekki skapaður til þess að vera einn, og allir eru bræður. Enginn er frá grundvelli öðrum meiri, nema hann hefjist af manngildi og trú, sem hann sýnir i verkunum. Þessi regla er algild, hvar sem mennirnir lifa og hrærast, og hún er alkristin, boð- uð í kenningu og í lífi höfundar trúar vorrar. Menn- ingunni var gefið að lyfta trúnni. En trúin ein getur hafið menninguna upp í æðra veldi. Þess vegna mega þær aldrei verða viðskila hvor við aðra. * Jólin eru samfagnaðarhátíð frá upphafi vega sinna. Þau tákna toppinn á því menningarstigi mannsins, sem gerði hann hæfan til móttöku fagn- aðarboðskaparins og tilkomu Guðs ríkis á jörðu með fæðingu Jesú Krists. Og þau halda áfram að vera fyrirboði hins sanna lífs, sem verður að endurtak- ast og endurfæðast með hverjum jólum, unz manns- andinn er þess umkominn, að taka þátt í þeirri fullkomnun í Guði, sem allri heimsbyggðinni er ætl- að að verða aðnjótandi, ef hinum ennþá villuráf- andi mönnum auðnast að þekkja sinn vitjunartíma, áður en allt um þrotnar og „náðin“ verður „á burtu tekin“. En á jólahátíðinni er trúnaðartraustið í fyr- irrúmi, traust barnsins til hins gæzkuríka föður, og til barnsins, sem í jötu fæddist, bróður allra manna, — Mannssonarins, Guðssonarins. Verum óhrædd — og fögnum! Bókaútgáfa Guðjóns Ó. Guðjónssonar. Bókaverzlun Sigfúsar Eijmundssonar. Félag íslenzkra iðnrekenda.

x

Kirkjublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/1752

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.