Kirkjublaðið - 09.12.1946, Side 33

Kirkjublaðið - 09.12.1946, Side 33
KIRKJUBLAÐIÐ JÓLIN l!)4(i 33 ~S)éra Jjóhamx ^ÁÍauneóóon, trúlo&L SIGURHÁTlÐ í KlNA Það var steikjandi heitt sumarkvöld árið 1945. Tveir ungir Bretar voru staddir á heimíli mínu. En þeir voru ekki hermenn. Af trúarlegum ástæðum höfðu þeir neitað þátttöku í stríðinu, en þess í stað unnu þeir að flutningi á lyfjum og sjúkrahúsáhöld- um hér og þar í Kína. Þeir störfuðu fyrir Friend’s Ambulance Unit, og höfðu ekið mörg þúsund kíló- metra til þess að koma lyfjunum á afskekkta staði víða um landið, og gerðu þeir með því mikið gagn. Öll sjúkrahús kristniboðsfélaganna fengu eitthvað af þessum lyfjum, og komu þau í góðar þarfir. Þetta voru gjafir frá Englandi, Canada og Ameríku. Pilt- arnir voru mjög ungir, og ég reyndi að gera þeim lífíð ánægjulegt með því að bjóða þeim heim við og við. Allt í einu tókum við eftir því, að ljóskastararnir fyrir utan borgina fóru að senda geisla sína út í myrkrið, eins og loftárás væri í vændum. En þeir höfðu þá ekki verið notaðir í rúm tvö ár. Banda- ríkjamenn höfðu gert himinhvelfinguna yfir Chung- king örugga síðustu styrjaldarárin, en áður hafði þar verið stórkostleg eyðilegging af völdum Japana, er þeir komu með flugvélar sínar fullfermdar af sprengjum, og helltu úr þeim yfir borgina, og brenndu heil hverfi, eða jöfnuðu við jörðu. En ljóskastararnir voru ekki að leita að óvina- flugvélum, heldur voru þeir að leika sér að því að teikna risastórar V-myndir á himininn þetta kvöld. Og jafnvel þeir, sem ekki skildu, að Victory þýðir Honum líður ákaflega vel. Efinn er horfinn úr sál hans. Hann mun aldrei fortaka það, að hinir látnu komi ekki aftur. Auðvitað hefir Geirlaug kom- ið þessu til leiðar. Honum er sem hann sjái hana standa frammi fyrir drottni, biðjandi auðmjúka, en samt ákveðna, leiðandi honum fyrir sjónir, hve ein- mana hann sé. Þekki hann hana rétt, hefir hún ekki hætt fyrr en hún "fékk sitt fram. „Eigum við ekki að koma?“ segir Ásdís og rís úr sæti. ,,Ja, seig er Geirlaug mín“, segir hann, og rödd hans lýsir einlægri aðdáun. Svo leiðast þau út í stjörnubjarta nóttina, hin ríka, stolta kona, hún Ásdís í Görðum og gamli, þreytti erfiðismaðurinn. En er út kemur, og honum verður litið á stjörnu- dýrðina og bláa himinhvelfinguna, tekur hann ofan og gengur berhöfðaður það sem eftir er leiðarinnar. Flinborg Lárusdóttir, sigur, vissu samt, að bókstafurinn V var sigurmerki. Stundum mættust ljósin í einum risa-stórum krossi yfir borginni. Enginn hávaði var samt í borginni. Menn horfðu á sigurmerkin á himninum, og þorðu varla að trúa því, að 9 ára styrjöld væri liðin hjá. En svo kom hinn sérkennilegi Austurlanda-niður, eins og niður í miklu fljóti, er menn fóru út á götuna, og tóku að spyrja hvern annan hvað þetta ætti að þýða, hvort stríðinu væri nú í raun og veru lokið. — Loks svöruðu dagblöðin spurningunni, með því að prenta dálitla miða, og selja þá á götunum. Við náðum í einn þeirra, og gátum þar lesið á kínversku, að nú væru Japanir fúsir á að'gefast upp, og hætta stríð- inu, samkvæmt skilyrðum þeim, er sameinuðu þjóð- irnar höfðu komið sér saman um í Potsdam. Þá var auðséð, að styrjöldinni var í raun og veru lokið. Kínverjar tóku nú að brenna púðurkerlingum, en það gera þeir jafnan við hátíðleg tækifæri. Samt var furðumikil kyrrð yfir borginni; það var eins og menn þyrðu varla að trúa því, að friðurinn væri kominn, eftir 9 ára styrjöld, sem hafði svift 30—40 miljcnir manna lífinu, og gert aðra tugi miljóna að öreigum, ekkjum og munaðarleysingjum. Svo leið nóttin, og næsta dag fengu menn að vita, að fregnirnar væru áreiðanlegar. Ennfremur var tilkynnt, að næsta sunnudag skyldi sigui’dagurinn haldinn hátíðlegur.

x

Kirkjublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/1752

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.