Ský - 01.08.2004, Blaðsíða 8
Mæpmyiftd
SIGMAR VILHJÁLMSSON
- SPJÓTKASTARINN SEM VAR0 SJÓNVARPSSTJARNA
Hann er metnaðarfullur prakkari af Guðs náð, vinnusamur og húmorískur en
þó umfram allt góður drengur. Maðurinn sem svona er lýst er Sigmar
Vilhjálmsson, útvarps- og sjónvarpsstjarna, kynnir í Stjörnuleitinni.
Sigmar Vilhjálmsson, sem yfirleitt er kallaður Simmi eða “Simmi í Idol”, varð
þekktur um allt land fyrir sex árum, þegar honum var falið að stýra
morgunþætti á útvarpsstöðinni Mono, sem Norðurljós ráku. Hann kom vel
fyrir sig orðí, var kurteis og náði strax eyrum hlustenda sinna. Það var þar sem
leiðir hans og Jóhannesar Ásbjörnssonar, hins hluta dúettsins “Idol kynnar”,
lágu fyrst saman:
SKÝ
8
„Það er svolítið sérstakt að við Simmi skulum hafa starfað saman jafn-
náið og raun ber vitni í allan þennan tíma," segir Jóhannes, „sérstak-
lega í Ijósi þess að við erum eins ólíkir og dagur og nótt. Ef ég á að
vera alveg hreinskilinn þá leist mér ekkert sérlega vel á piltinn áður en
ég kynntist honum. Hann kom mér fyrir sjónir sem fyrirferðarmikill
gaur, sem var síður en svo spar á skot í allar áttir."
Bryndís Björg Einarsdóttir, eiginkona Sigmars, kynntist honum áður
en hann varð þekktur og segir að í raun finnist sér oft fyndið að hugsa
til þess að hann sé sjónvarpsstjarna:
„Fyrir mér er hann sami sveitastrákurinn og ég féll fyrir í upphafi -
strákurinn sem bauð mér í bíltúr í miðstöðvarlausum bíl í desember
árið 1998!" segir hún.
„Mér finnst hann lítið hafa breyst við að verða þekktur. Það hefur bara
þroskað hann á jákvæðan hátt. Auðvitað fylgir álag því að vera
þekktur; meira álag en ég held að margir geri sér grein fyrir. Simmi
er viss fyrirmynd og mér finnst honum hafa tekist það nokkuð vel."
Sigmar Vilhjálmsson fæddist 3. janúar 1977 á Fæðingardeildinni í
Reykjavík, sonur hjónanna Gerðar Unndórsdóttur og Vilhjálms
Einarssonar, hins þekkta íþróttamanns. Fyrstu þrjú ár ævi sinnar dvald-
ist Sigmar með fjölskyldu sinni í Reykholti þar sem faðir hans var
skólastjóri héraðsskólans. Þá lá leiðin til Egilsstaða, þar sem Vilhjálmur
setti á fót Menntaskólann á Egilsstöðum og þar undi Sigmar sáttur við
sitt fram til sautján ára aldurs. Þá flutti hann fyrst til Reykjavíkur, bjó þar
í tvö ár, en hélt síðan aftur austur þar sem hann stundaði nám við
menntaskólann á veturna og æfði spjótkast á sumrin.
Hann er yngstur sex bræðra og æskuvinur hans, Egill Fannar
Reynisson, segir hann hafa litið mjög upp til bræðra sinna:
„Mér finnst hann hafa tileinkað sér allt það besta frá bræðrum sínum.
Frá Rúnari, sem er prófessor í félagsfræði, nam hann heimspekina,
spjótkastið frá Einari, dugnaðinn og atorkuna frá Unnari, sem er
íþróttakennari við Menntaskólann á Akureyri, sölumannshæfileikana
frá Garðari þúsundþjalasmið og keppnisskapið frá Hjálmari, sem er
handboltamaður," segir Egill Fannar. "Sem barn var Simmi mjög gor-
mæltur og því fannst mér gaman að heyra hann telja upp nöfn
bræðra sinna, sem öll enda á "ar"! Hann kenndi mér að róla og
sagðist svo seinna ætla að kenna mér fleira sem byrjaði á "R" en ég
skildi ekki þá hvað hann meinti ...I"
Sigmar var "góðkunningi" skólastjórans á Egilsstöðum, Helga
Halldórssonar, sem minnist þessa fyrrverandi nemanda með mikilli
hlýju:
„Ég þurfti oft að ræða við Sigmar, oftast vegna truflunar við kennslu
eða fyrir einhvern "fíflagang", eins og það er kallað," segir Helgi.
"Sigmar var nefnilega prakkari í jákvæðri merkingu og þótt kennararnir
væru stundum þreyttir á uppátækjum hans töluðu þeir allir vel um
hann. Ég minnist þess til dæmis ekki að Sigmar hafi nokkurn tíma verið
með kvikindisskap, hvorki í garð félaga né kennara."
Allir þeir sem rætt var við benda á metnað Sigmars, hvort heldur er í
starfi eða íþróttum. Margir sem kynnst hafa Sigmari á undanförnum
árum velta fyrir sér hvort þeir sem þekktu hann í æsku hafi frekar átt von
á að hann legði íþróttirnar fyrir sig en að hann yrði sjónvarpsstjarna:
„Sigmar litli bróðir minn var enginn eftirbátur bræðra sinna fimm á
uppvaxtarárunum," segir Einar Vilhjálmsson bróðir hans. „Sigmar gat
verið fylginn sér og sýndi snemma að hann var og er óhræddur við að
ráðast á garðinn þar sem hann er hár - ef ekki hæstur. Hann gekk
ótrauður fram á íþróttasviðið með vigurinn að vopni, ákveðinn í að
gera enn betur en stóri bróðir sem hafði sett fimmtán Islandsmet i
spjótkasti. Fyrstu skref hans í spjótkastinu lofuðu góðu, en hæfileikar
hans á öðrum sviðum gerðu þá þrautargöngu minna spennandi en
aðrar."
Jón S. Guðnason er kvæntur Þórdísi, móðursystur Sigmars. Hann
minnist þess hversu tápmikill og skemmtilegur strákur Simmi hafi
verið og segir hann ekki hafa verið háan í loftinu þegar ríkuleg kímni-
gáfa hans kom í Ijós. Eftirfarandi sögur segi ýmislegt um þennan
unga mann:
„Símon, móðurbróðir hans, var að brugga bjór heima hjá sér og voru
þeir bræður, Sigmar og Hjálmar, að fylgjast forvitnir með. Hjálmar