Ský - 01.08.2004, Blaðsíða 32
VERÐMÆT VERKSUMMERKI LIÐINS TÍMA:
GRAFÍSK HÖNNUN Á ÍSLANDI
SÝNING í HAFNARHÚS116. OKTÓBER-31. DESEMBER 2004.
Oepdf Aonum
- czð c/oótl
/
Hinn 16. október verður opnuð í Hafnarhúsinu yfirgripsmikil sýning um sögu
grafískrar hönnunar á íslandi. Ekki hefur áður verið haldin heildstæð yfirlitssýning
um grafíska hönnun hérlendis, en sagan sem þar liggur er samofin sögu lands og
þjóðar. Samtíminn horfir gjarnan sljóum augum á umhverfi sitt og nytjalist hvers-
dagsins er ekki veitt harla mikil athygli. Einmitt þessi sama nytjalist og
hversdagsleiki verður þó með tímanum verðmæt verksummerki liðins tíma sem
endurspeglar tíðaranda, þankagang og þjóðfélag af næmi og innsæi sem hvorki
rúmast innan sagnfræðinnar né félagsfræðinnar.
Sagan verður rakin í gegnum ýmsa miðla og birtingarmyndir fram til
dagsins í dag. Efnisflokkarnir eru margir og viðfangsefnið
margvíslegt, allt frá spegilmynd liðins tíma í formi auglýsinga,
áróðurs, peningaseðla, umbúða og myndskreytinga, frá fyrstu sjón-
varpsgrafíkinni, sjónvarpsauglýsingunum, bókunum og prentefninu
til þess ferskasta sem á sér stað í dag. Gífurleg heimildavinna liggur
að baki sýningarinnar enda hefur verið lagt kapp á að safna saman
þeim fróðleik sem geymdur er hjá eldri söfnurum, fræðimönnum og
leikmönnum, svo úr verði heilsteypt og fróðleg saga sem varpar
áhugaverðu Ijósi á þennan þátt íslenskrar menningar, eða lágmenn-
ingar.
FJALLKONAN SKREYTIR SKÓSVERTU OG
SÚKKULAÐI ...
Segja má að forverar grafískra hönnuða nútímans séu ritarar og
lýsingameistarar gömlu handritanna, en á sýningunni verður farið
aftur til ofanverðrar 19. aldar til þjóðfélags sem tekur miklum
stakkaskiptum á stuttum tíma. Sjálfstæðisbaráttan er ! algleymingi.
Hér liðkast til um verslunarhætti og íslensk samfélagsskipan þróast úr
einföldu bændasamfélagi yfir í borgaralegri menningu. Islensk
bankastarfsemi, íslensk stjórnsýsla og fyrirtæki spretta fram á sjónar-
sviðið. Vélar iðnbyltingarinnar láta á sér kræla á fjörum landsins og í
hinni nýju samfélagsskipan verður til áður óþekkt verkaskipting.
Listiðn sú sem áður var innt af hendi inni á heimilunum fer nú í
sérhæfðari hendur, utan heimilisins. Hin nýtilkomnu íslensku fyrirtæki
verða að skapa sér andlit í augum almennings og þar með skapast
ríkari þörf fyrir gerð myndtákna og sjónrænna skilaboða.
Lengi framan af kom það í hlut listfengra iðnaðarmanna að fást við
ólíka þætti hönnunarinnar. Málarar, tréskurðarmeistarar, gullsmiðir
og hagleiksmenn spreyttu sig á skiltagerð, hönnun merkja,
auglýsingum og þv! sem til féll. Á fyrstu tugum tuttugustu aldarinnar
má finna sterka undiröldu þjóðernishyggjunnar sem blómstrar í
hjörtum landsmanna. Þjóðhátíðarnar hvetja menn til dáða og leitast
er við að sýna hinum erlendu gestum og fyrirmönnum glæsta mynd
af landi og þjóð. Hin fríða fjallkona skreytir jafnt merki, skósvertu,
súkkulaði sem seðla, og landvættir, Gullfoss, Geysir og Hekla verða
að ættjarðartáknum sem komið er á framfæri svo viða sem frekast er
unnt.
SIGLT TIL MENNTA
Fyrstu teiknararnir sigla utan til mennta á fjórða tug aldarinnar og
snúa til baka sem fyrsta fagmenntaða kynslóðin. I kjölfarið eru fyrstu
auglýsingastofurnar stofnaðar. Hugtakið "hönnun" var ekki til á
þessum árum og töluðu fagmenn því um sig sem teiknara eða
auglýsingateiknara. Myndmálið verður smátt og smátt alþjóðlegra.
Straumar og stefnur tuttugustu aldarinnar endurspegla áhrif sín hér á
landi, einstaka menn hafa afgerandi áhrif og fagið þróast í takt við
þjóðfélagið.
RYKIÐ DUSTAÐ AF NEYSLUVÖRUM
GÆRDAGSINS
Hönnun í upplifunar- og neysluþjóðfélagi samtímans á sér ótal andlit,
teygir anga sína viða og farin hefur verið alllöng leið frá þeim list-
fengnu handverksmönnum er lögðu brautina i upphafi. Hönnun
nútimans snýst oft um hið áþreifanlega, en jafnframt um hið
óáþreifanlega, um kenndir, hræringar, upplifun og miðlun.
Almennur áhugi er á margvíslegri hönnun um þessar mundir, en
ætlunin er að höfða ekki síður til almennings. Veita sýn á þann
samtima og það þjóðfélag sem grafísk hönnun endurspeglar á
hverjum tíma. Dusta rykið af neysluvörum gærdagsins og vekja
athygli á því sem vel er gert í nútímanum.
pÍT ( félafT i&letukra hdktiara) Atcndur að cýiiuujunni,
en félagið fagnaði 50 ára afinæli &ínu á siða&tliðnw ári.