Ský - 01.08.2004, Side 16
Fyi*st oj* fvemst
SKÝ
16
...AUKIN ORKAI LIFI OG STARFI
Arnaldur Birgir Konráðsson er einkaþjálfari í líkamsræktarstöðinni Pumping Iron
Heilsa fólks er málefni sem þarfnast meiri umræðu með breyttum tímum. Offita og
fylgifiskar hennar hafa náð bólfestu hér á landi svipað og í Bandaríkjunum þar sem
hún nálgast faraldur. Með hjálp nútímaþæginda hreyfir fólk sig æ minna og skyndi-
bitamatur er orðinn stór hluti af mataræði margra. Baráttan við aukakílóin er þó
fjarri því að vera töpuð og með aukinni meðvitund um mataræði, sjálfsaga og
reglubundna hreyfingu getur hver sem er breytt lífi sínu til hins betra. Við tókum tali
Arnald Birgi Konráðsson, einkaþjálfara, sem hefur góða yfirsýn yfir þessa þróun.
„Ég hef starfað sem einkaþjálfari síðastliðin sjö ár, eða allt frá því að
ég kláraði ISSA einkaþjálfarapróf árið 1997. Síðan þá hef ég orðið var
við miklar breytingar í þjóðfélaginu hvað varðar heilsuvitund fólks.
Við íslendingar horfum nú upp á mikið heilsufarsvandamál sem er
offita unga fólksins. Það er sorglegt að sjá ungt fólk hreyfa sig æ
minna, borða mun óhollari fæðu og eyða fleiri stundum fyrir framan
tölvu og sjónvarp.
Verst þykir mér þó að sjá hversu fáir átta sig á þessu vandamáli og að
yfirvöld virðast gera lítið til að sporna við vandanum. Aukinni offitu
fylgja ýmsir sjúkdómar sem snemma í ferlinu verða mjög dýrir
þjóðfélaginu. Má þar nefna andlega sjúkdóma, áunna sykursýki,
hjarta- og æðasjúkdóma ásamt stoðkerfisvandamálum, svo fátt eitt
sé nefnt."
En vandamálið á ekki eingöngu við börn og unglinga. Það eru oftast
foreldrarnir sem gefa fordæmið hvað snertir heilsu og mataræði,
sem börnin tileinka sér síðan. Er er það ekki einmitt á haustin sem
fólk virðist taka við sér, bæði með aukinni hreyfingu og hollara
mataræði?
„Jú, nú þegar haustið er að renna í gang eru jákvæðu fréttirnar þær
að margir vilja hrista af sér slenið og koma sér í líkamlegt og andlegt
form. Það er sjaldan jafnmikið að gera á líkamsræktarstöðvum
landsins og á haustmánuðum, frábærtilboð á æfingakortum og allir
vilja bjóða bestu fáanlegu aðstöðu og kjör.
En það eru fyrstu skrefin inn í líkamsræktarsalinn sem eru alltaf erfið
hvort sem viðkomandi einstaklingur er að berjast við aukakílóin, vill
bæta á sig kílóum eða hreinlega efla líkama og sál. Margar líkams-
ræktarstöðvar bjóða upp á ókeypis æfingaprógramm með leiðsögn í
fyrsta tíma. Margir einstaklingar þurfa meira aðhald og öryggi og þá
getur einkaþjálfari verið lausnin. Að bjóða viðskiptavinum upp á
góða einkaþjálfara er oft aðalsmerki margra líkamsræktarstöðva."
En hvað er það sem góður einkaþjálfari veitir?
„Einkaþjálfari veitir þér aðhald, hann veitir þér öryggi í æfingum og
þú getur þar af leiðandi verið fullviss um að þú sért að gera
æfingarnar rétt, bæði hvað varðar rétta röð þeirra og að þú vinnir rétt
með hvern vöðvahóp. Að auki fer einkaþjálfarinn yfir mataræði þitt,
réttar teygjur, sér um fitumælingu og fleira sem tryggir hámarks-
árangur.
Þegar þú leitar þér að þjálfara, vertu þess fullviss að hann hafi reynslu
og/eða menntun á sínu sviði. Góður þjálfari er persónulegur og lætur
sér annt um að þú náir árangri."
Nú er sá tími árs sem fólk þarf að huga að heilsunni, hvort sem það
er gert á líkamsræktarstöð - hjá einkaþjálfara eður ei - eða með
hvers kyns annarri hreyfingu. Einnig þarf maður að vera meðvitaður
um hvaða fæðu á að borða og hvað á að forðast því rétt mataræði
skiptir sköpum í því hvort árangur næst. Með reglubundinni
hreyfingu og hollu og næringarríku mataræði er hægt að ná and-
legri og líkamlegri vellíðan og öðlast aukna orku sem nýtist bæði í
vinnu og leik.
'Rábert TraiiAtasan fiugear ael um fieil&unw ag^ lék
farvitiú á að vita fusaða fHutoerki ánkaþjálfarar
geg.nct á Ukam&rxktar&táðmun...