Ský - 01.08.2004, Side 24
OÐRUVISI RAUNVERULEIKI
Sjónvarpsefni hefur breyst til muna á undanförnum áratug. Nánast annar
hver sjónvarpsþáttur í dag er svokallaður raunveruleikaþáttur þar sem
“leikararnir” eru venjulegt fólk í leit að jafnklisjukenndum hlutum eins og
frægð, peningum og ást eða öllu óalgengari hlutum eins og sæðisgjafa,
ferð út í geim eðajafnvel nýrri móður.
Fyrstu raunveruleikaþættirnir snerust um það að ókunnugu fólki var
gert að búa saman í ákveðinn tíma í húsi þar sem myndavélar tóku
upp hverja hreyfingu þess. Ahorfendur tengdust svo "leiknum" með
því að kjósa þann sem þurfti að yfirgefa húsið í hverri viku. Sá þáttur
sem er hvað þekktastur er Big Brother, sem hefur þó ekki enn ratað
á skjái (slendinga.
Survivor þáttinn ættu flestir að kannast við, en heilar átta seríur hafa
verið framleiddar af honum og virðast engan endi ætla að taka.
Þátturinn sá felst í því að sextán manns eiga að bjarga sér í mánuð í
fjandsamlegu umhverfi, svo sem í frumskógi eða á óbyggðri eyju.
Rætt var um að ein serían yrði tekin á íslandi þótt ekkert hafi orðið úr
því enn, þótt frést hafi af hópi á æfingu hér! Ahorfendur fylgjast með
þegar keppendur eru kosnir burt, þeir grennast um heil ósköp,
mynda bandalög, svíkja bandalög og allt þar á milli. Að lokum
stendur sigurvegarinn uppi með milljón dali. Peningaverðlaun eru jú
helsta ástæða þess að fóik sækir um að koma fram í svona þáttum. I
Fear Factor þarf fólk að framkvæma hættulegar þrautir og iðulega
borða einhvern viðbjóð, eins og heila úr kú, lifandi skordýr og fleira
sem flestum verður óglatt af, bara við það að hugsa um það.
Sumir þættir virðast ætla að svara spurningunni um hvar hina sönnu
ást sé að finna. Það er í hópi fólks sem sjónvarpsframleiðendur hafa
valið handa þér. Með myndavélar aldrei langt undan hefur
piparsveinninn eða -jónkan heilan hóp biðla til að velja úr og verða
ástfangin/n af, allt fyrir framan augu almennings. Já, það er erfitt að
trúa því að fólk geti fundið sanna ást undir þessum kringumstæðum
enda virðast flest pörin sem koma úr þessum þáttum ekki enda
saman. Fjölmargir þættir hafa snúist um leitina að ástinni svo sem
Bachelor/Bachelorette, Joe Millionaire o.fl.
Vinsælasti raunveruleikaþáttur síðastliðins árs hérlendis var án efa
Idolið eða Stjörnuleitin. Þar keppa söngvarar sín á milli á meðan
dómarar segja þeim hvað betur má fara, stundum á frekar harkalegan
hátt. Þar með voru íslendingar komnir í aðalhlutverkin og fetuðu í fót-
spor ekki ófrægari söngvara en Kelly Clarkson, Clay Aiken og William
Hung. Hver man ekki eftir Kalla Bjarna, Jóni "500 kallinum"
Sigurðssyni, Jóa og Simma og dómaratríóinu? Islendingar sýndu þar
með að þeir gátu gert sinn eigin raunveruleikaþátt og það með stakri
prýði.
ÞÆTTIR SEM FLOPPUÐU
Raunveruleikaþættir eins og The Apprentice, Queer Eye for the
Straight Guy, American Idol, Amazing Race, The Osbournes og fleiri
eru meðal vinsælasta sjónvarpsefnisins í dag. En ekki er gefið að allir
raunveruleikaþættir nái jafnmiklum vinsældum og hafa margir verið
teknir af dagskrá vegna augljósra ástæðna.
Big Diet er þáttur sem kemur við eitt viðkvæmasta mál
Bandaríkjamanna, offitu, enda mistókst sá þáttur hrapallega. Of
þungir þátttakendur voru lokaðir inni í lúxus-heilsustöð, þarsem þeir
áttu með aðstoð fagfólks að missa tiltekna þyngd í viku hverri en
verða reknir úr þættinum ella. I verðlaun fyrir sigurvegarann var sú
þyngd sem hann missti, í hreinu gulli. Til að gera þáttinn spennandi
voru sætindi og feitur matur, s.s. súkkulaðikökur og hamborgarar,
settir á vissa staði til að freista þátttakendanna. Áhorfendur voru ekki