Ský - 01.08.2004, Side 25

Ský - 01.08.2004, Side 25
THE APPRENTICE hrifnir né grenntist fólkið neitt að ráði. Tveir nýir þættir um fjölskyldu- málefni eru einnig að berjast um vinsældir almennings. í þættinum Who's my Daddy reynir ung kona að komast að því hver úr 16 manna hópi er raunverulegur faðir hennar. Wife Swap fjallar um tvær fjölskyldur sem skipta um húsmæður í tvær vikur; þær þurfa að sjá um húsverk, eldamennsku, uppeldi og fleira hjá "nýju" fjölskyldunni. Margir raunveruleikaþættir hafa verið gagnrýndir fyrir að vera siðlausir og toppa fáir þeirra Danger Island. Þar keppa dæmdir fangar um peningaverðlaun sem fara til fyrrverandi fórnarlamba þeirra. Fylgjast áhorfendur svo með þegar "besti glæpamaðurinn" hittir fórnarlömb sín að nýju og færir þeim peninga. Ekki er öll vit- leysan eins. TÍU MANNS, NÍU FALLHLÍFAR ... Raunveruleikaþættir virðast vera komnir til að vera. í upphafi ársins var fyrsta sjónvarpsstöðin, sem algerlega er tileinkuð þessari gerð sjónvarpsefnis, sett á laggirnar í Bandaríkjunum. Þar eru gamlir raun- veruleikaþættir sýndir og einnig er fylgst með hvað "gamlir" þátttak- endur úr þeim eru að fást við í dag. Að sögn höfundar Big Brother- þáttanna, Johns De Mol, hefur ásóknin í þessa þætti aldrei verið meiri og hann segist viss um að geta fundið tíu þátttakendur til að keppa um níu fallhlífar í flugvél sem væri að hrapa. Tíminn leiðir í Ijós hvernig þetta raunveruleikafár endar og hvort einn góðan veðurdag setjist fjölskyldan saman fyrir framan sjónvarpið og horfi á þáttinn "This is my parachute!"- "Þetta erfallhlífin mín!" "Rgbai Tmu&ta&an myndi ekki fuig&a &ig um effann oeeii beáinn um að taka þátt í raunvenileika&jáiwai'pi. ‘H’aim segði pattþétt nei!

x

Ský

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.