Ský - 01.08.2004, Qupperneq 41

Ský - 01.08.2004, Qupperneq 41
Beckham séu að fara að leysa þá lífsgátu! Vona að ég særi enga aðdáendur!) I kabbalah er Guð nefndur á nafn en þar sem fylgjendur trúarinnar eru hræddir um að fólk geri lítið úr nafni hans er það yfir- leitt skrifað G-ð ...I Nú vita flestir hvað hann heitir svo það er nokkuð skrítið að þessari hefð sé haldið við! En hefðir eru nú til þess að halda þeim við, ekki rétt? G-ð er yfirleitt kallaður „Óendanlega veran" og nemendum gert Ijóst að Óendanlega veran elskar mann af öllu hjarta. Og ef maður bara gerði sér grein fyrir hversu elskaður maður væri af henni yrði maður frá sér numinn af sælu. Onnur kenning er sú að sál manns sé uppspretta endalausrar ham- ingju; börn fæðist hamingjusöm og óhamingja sé lærð en ekki frá sálinni komin. Ég er ekki viss um að sálfræðingar og geðlæknar 21. aldarinnar væru því sammála en legg það algjörlega í hendur lesenda að dæma fyrir sig! Einnig segir að hamingja sé ekki markmið heldur einfaldlega það að njóta lífsins eins og það er. Þau vandamál sem mæta okkur á lífsleiðinni eru sérhönnuð fyrir hvert og eitt okkar til að kljást við en ekki bara óheppni. HÁR, VATN OG HAMINGJA Ólíkt kristninni er manni ráðið frá því að biðja G-ð um eitthvað til handa sjálfum sér, hvort sem það er hamingja eða eitthvað annað. Samkvæmt kabbalah er það eigingjörn ósk og verður því ekki upp- fyllt. Þú verður að biðja fyrir heildinni, ekki bara eigin hamingju. Eins °9 tneð flest önnur trúarbrögð þá er hugsjónin falleg og fræðin áhugaverð. Spurningin er: hafa þessi blessuðu rauðu bönd hjálpað stjörnunum og ættum við hin að trítla yfir í garnbúðir bæjarins og gera okkar eigin bönd? Þau kosta sitt á Kabbalah-síðum á netinu, enda blessuð í bak og fyrir af rabbínum. Ég prófaði hins vegar að kaupa garn sem var sláandi líkt bandinu hennar Britney í „Everytime" myndbandinu, og batt það um úlnliðinn til að athuga viðbrögð vina °9 kunningja og afstöðu þeirra til kabbalah. Mér þótti Menningarnóttin tilvalin til tilraunarinnar og gekk stolt um bæinn tneð kabbalah-bandið mitt en enginn tók eftir neinu... Eigum við ekki að heita tískuþjóð?! Madonna hefur gjörbylt lífi sínu eftir að hafa aðhyllst trúna; barna- bækurnar sem hún hefur skrifað, „The English Roses" og „Mr. Peabody s Apples", „Yakov and the Seven Thieves" og „The Adventures of Abdi" eru byggðar á dæmisögum úr kabbalah. Hún hefur gert samning um að skrifa fimm barnabækur, allar byggðar á kenningum kabbalah, og er því einungis ein þeirra enn óútgefin. Hár Roccos, sonar þeirra Guys, var ekki klippt fyrr en hann var orðinn fjögurra ára en kabbalah mælir með því að hár drengja sé óklippt fram að þeim aldri og litið er á fyrstu klippinguna sem fyrsta skrefið til manndóms. Madonna og Guy Ritchie hafa endurnýjað hjúskaparheit sín að kabbalah-sið, greitt fúlgur í Kabbalah-miðstöðina í Englandi og drekka einungis blessað kabbalah-vatn sem kostar víst mun meira en venjulegt vatn (en ekki hvað?!). Peningar eru kannski það sem Madonna og Guy þurfa síst að hafa áhyggjur af, en öllu verra er þó að Madonna hefur misst samband við tvær nánustu vinkonur sínar þar sem hún var ósátt við að þær aðhylltust ekki fræðin af sömu ákefð og hún og legðu ekki nægilegt fé fram til Kabbalah-miðstöðvarinnar. Fyrrum vinkonurnar eru Stella McCartney fatahönnuður og Debi Mazar leikkona, en Madonna og Debi hafa verið vinkonur í meira en tuttugu ár. Og vinátta er nokkuð sem ekki er hægt að setja verðmiða á. Því minnir þessi krafa Madonnu um að vinir hennar aðhyllist sömu trúarbrögð og hún svolítið á hegðun þeirra sem ganga í svokallaða sértrúarsöfnuði. Poppstjarnan gengur undir nafninu Esther hjá hinum „nýju" vinum sínum sem aðhyllast trúna, en Esther var fátæk kona sem varð síðar drottning Persíu og bjargaði milljónum gyðinga frá tortímingu. Nú má oft sjá myndir af okkar konu með hálsmen með stafnum „E" sem tákn um nýja nafnið hennar. Sem stendur er Madonna á fullu í nýrri tónleikaferð, svonefndri „Reinvention Tour", þar sem hún tekur öll uppáhöldslög aðdáenda sinna og þykir fólki ótrúlegt að orkumikla dívan á sviðinu sé að nálgast fimmtugt. Með henni í ferðalaginu eru vinir hennar úr söfnuðinum sem iðka trúna með henni og halda henni á „jörðinni" eins og hún orðaði það sjálf í viðtali. Á meðan þessi grein er skrifuð eru fréttir farnar að berast þess efnis að Madonna sé að fá leiða á kabbalah og að forystumenn safnaðarins heimti meiri og meiri peningagjafir frá þeim hjónum og að farnar séu að renna á hana tvær grímur. Hvað ef kabbalah verður komið úr tísku þegar Ský kemur út?! Þá er ég í vandræðum með mitt rauða band um úlnliðinn ...I Ég legg málið í dóm lesenda. lízella fiefur kæði áfuiga á frxgu fálki ag trúar- brögðiun ag naut&ín með rauða bandið um úhúiðinn jafnuelþátt enginn fíefði dáð&t að þwí...
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Ský

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.