Ský - 01.08.2004, Side 43
heima og heiman, hundur þarf fjögurra til átta kílómetra göngu á
dag, eftir stærð, en karlmanninum nægir oftast að fara í vinnuna og
heim aftur. Beri á óróa hjá honum má innrita hann í eitthvert hreyfi-
félag þar sem hann fær að leika sér með bolta eða lyfta dóti. Á
meðan hann dvelur þar sér þjálfarinn alfarið um hann. Þessu fylgir
sérstakur búningur sem hefur góð áhrif á sjálfsímynd karlmanna. Ekki
þurfa allir karlmenn svona mikla hreyfingu, mörgum nægir ódýr, ein-
föld lausn. Þá er þeim afhent bjórdós og kveikt á íþróttaþætti í sjón-
varpinu. Þeir liðkast heilmikið á að lyfta dósinni og halla sér öðru
hverju fram í stólnum. Það er eðlilegt að þeir gefi frá sér hljóð á
meðan, þau eru ekki merki um sársauka eða vanlíðan. Ástandið líður
hjá fljótlega eftir að þætti lýkur, nema liðið þeirra hafi tapað. Ef hann
hefur líka fengið flögur eða poppkorn, þarf að ryksuga í kringum
stólinn á eftir.
hað sem einna helzt mælir með því að velja karlmann er að hann er
almennt fremur vinnufús, utan heimilis. Það eru lika allir hundar af
fjárhundakyni, en munurinn er sá að karlmaðurinn fer einn í vinnuna,
en hundinn þarf að elta í bandi yfir fjöll og jökla. Karlmaðurinn fær
svo laun fyrir vinnuna, en hundurinn fær bara að koma í sjónvarpinu.
Þegar farið er í sumarleyfi þarf að koma kettinum fyrir. Það kostar, en
fasstum köttum lætur vel að leggjast í flæking. Það kostar líka að taka
karlmanninn með, en sízt meira en að skilja hann eftir einan heima.
Verði hringvegurinn fyrir valinu má hafa ofan af fyrir honum með því
að leyfa honum að stýra. Karlmenn fá líka inni á flestum gististöðum,
annað en hundurinn, og þó maður fari í kvöldgöngu með karlmann,
þá er enginn sem stöðvar mann og spyr hvort maður sé með plast-
poka með sér. Ýmsir ókostir fylgja því að taka karlmenn með til
útlanda, en aðeins einn kostur: Þeir eru ekki settir í sex mánaða fang-
elsi við heimkomuna og gerist það, þá eru þeir ekki geymdir í Hrísey.
Pótt ekki þurfi að eyrnamerkja karlmann eða kaupa ól með tunnu og
bjöllu á hann þarf samt að skrá hann, útvega honum nafnskírteini,
ökuskírteini, greiðslukort, vegabréf og margt fleira, og það þó þeir
geti flestir, oftast, sagt til nafns og útskýrt hvar þeir eiga heima.
Fóðrun allra tegundanna er tiltölulega einföld. Dósamaturinn er
þsegilegastur fyrir útivinnandi konur. Kettinum og hundinum er oftast
sama og karlmaðurinn greinir ekki á milli, nema hann rekist á tóma
dós í sorpinu. Öfugt við hin dýrin er hann þó sjaldnast að snuðra þar.
Helzta hættan eroffóðrun og á það við allar tegundirnar. Hundar og
kettir eru síbetlandi aukabita. Ævaforn eðlisávísun segir þeim að hver
máltíð geti verið sú síðasta. Karlmenn geta opnað ísskápinn sjálfir og
lika dyr að skyndibitastöðum. Þegar í óefni er komið er erfiðast að
Piegra karlmanninn. Það er líklega vegna þess að eðlisávísun hans er
ekkert síður ævaforn en hinna.
Umhirða og hreinlæti tegundanna eru mismunandi vandasöm.
Sérstök sápa fæst fyrir hundinn og köttinn og fyrir karlmanninn fæst
bæði flösusjampó og Pantene Pro-V, sem er hárfestingarefni.
Kettlinga þarf að venja strax undir kranann og hundar fara ekki
fúslega í bað. Þeir kjökra alla ævi á meðan þeim er þvegið og það
rennur manni til rifja. Karlmenn öskra í baði, en kalla það söng. Það
rennur manni ekki til rifja.
Aðra snyrtingu sér kötturinn um sjálfur, en hreinsa þarf eyru hundsins
°9 klippa táneglur ef þær ná ekki að slitna eðlilega. Þegar fram líða
stundir þarf oft að klippa hár úr nösum og eyrum karlmannsins. Um
l'ht leyti hneigjast þeir til bakveiki. Þá þarf líka að klippa táneglurnar
fyrir þá. Einnig má fá dýralækni til að framkvæma aðgerðirnar.
Það vandamál sem konur setja helzt fyrir sig varðandi gæludýrahald
er hárlosið. Enginn ætti að láta slíkt litilræði koma í veg fyrir að njóta
návistar lifandi veru. Hvað hundinn og köttinn varðar kaupir maður
góðan bursta og kraftmikla ryksugu. Þegar röðin kemur að karlmann-
inum að missa hárið er fremur þörf andlegs átaks. Konur þurfa að
temja sér sefandi viðmót og finna ný huggunarorð á hverjum morgni.
Verði staðan strembin og slítandi má ganga í stuðningshóp fyrir
konur sem eiga menn sem eiga sífellt minna hár.
Fólk hefur talsvert verið hrætt með smitsjúkdómum sem gæludýr
geta borið með sér. Góð læknisskoðun er nokkur trygging og munið
að hættulegir sjúkdómar eru fátíðir meðal íslenzkra dýra. Vegna
stórýktrar smithættu spyrfólk oft hvort ráðlegt sé að leyfa gæludýrum
að sofa hjá heimilisfólki í rúmum þess. Við skoðum málið vísindalega:
Við deilum um 30 smitsjúkdómum með kettinum og 67 með hund-
inum. Þar af hafa nokkrir verið útmáðir á alheimsgrundvelli og aðeins
örfáir hinna skjóta upp kollinum hér á landi. Hins vegar deilum við
fleiri þúsund smitsjúkdómum með karlmanninum og aragrúi þeirra er
algengur hér á landi. Við mælum því með að kötturinn fái að koma
upp í til ykkar, smærri hundum sé leyft að kúra sig til fóta og karlmenn
látnir sofa á gólfinu. Sem næst rúmstokknum, þannig skynja þeir
návist ykkar.
Að lokum fáein orð um hvernig maður velur kettling, hvolp eða karl-
mann: Bröndóttir kettir eru greindastir og geðbeztir. Appelsínulitir
brandar eru líka greindir, en flestir haldnir afbrotahneigð gagnvart
gluggatjöldum og sokkabuxum. Hvolpar skyldu vera tápmiklir og
ætíð ætti að velja þann sem stórfættastur er. Það er hraustleikamerki.
Val á karlmanni er vandasamara. Ekki virðist hægt að treysta arf-
berum þeirra á sama hátt og hægt er að taka mið af ættum hunda og
katta. Leiðbeinandi atriði væru þó að hafa þá háa til hnésins og að
eyrnasneplarnir séu lausir frá. Það er betra kyn en leggstuttir með
fastgróna eyrnasnepla. Húð Ijóshærðra karlmanna er títt viðkvæm og
þeir geta verið til stökustu vandræða í sólarlandaferðum. Rauðhærðir
karlmenn eru með ónýta húð og hættir til að fá útbrot af öllum
þvottaefnum sem ná pizzublettunum úr fötunum þeirra. Bezt er að
sniðganga þá alveg ef annað fæst. Öll litbrigðin eiga það sameigin-
legt, sé þeim leyft að koma með til útlanda, að lesa Visanótur
upphátt í flugvélinni á leiðinni heim, oft í afar leiðigjörnum tón.
Aldrei skyldi taka að sér karlmann sem er eina afkvæmi móður sinnar.
Hún ætlar ekki að gefa hann, aðeins koma honum í slæma umönnun
annars staðar. Hafa ber í huga að karlmaðurinn er eina gæludýrið
sem gleymir ekki móður sinni og systkinum eftir vikudvöl hjá nýju fjöl-
skyldunni. Hann er alltaf að rifja þau upp, fara og hitta þau og dregur
þau jafnvel með heim og ætlast til að þeim sé gefið líka.
Munaðarlausir karlmenn sem eiga öll systkini sín fyrir norðan eða í
Ástralíu eru heppilegastir. Þeir eru þakklátari.
Öll dýr sem tekin eru frá móður sinni finna til öryggisleysis. Sé vel
hlúð að þeim, jafna kötturinn og hundurinn sig fljótlega, en
karlmaðurinn þarf stuðning alla ævi. Kötturinn eldist bezt, hundurinn
verður snemma miðaldra og geðillur. Karlmaðurinn hefur lengsta
lífaldurinn og er því, þannig séð, endingarbeztur.
7 nse&ta hlaði fieldw <Aiu!)ur 'tfarald& áfram umfjallun
<sinni um makaoal ag þá &pyrfíún: 'Vilja karlmenn fiarfa
á áttfwað fagw'limað &oífa lun Reimilið á áíðkmUdumí’
SKÝ
43