Ský - 01.08.2004, Síða 53

Ský - 01.08.2004, Síða 53
HVERAFUGLAR Rómantísk náttúrufræði er sú grein náttúruvísinda sem fæst við rannsóknir á dularfullum dýrum. Greinin fjallar um furðulegar skepnur sem menn telja sig hafa séð eða orðið vara við en ekki teljast vera til samkvæmt skilgreiningu náttúruvísindanna. Hverafuglar voru fyrr á öldum eitt helst framlag íslendinga til rómantískrar náttúrufræði þó að þeir séu flestum gleymdir og hafi að öllum líkindum aldrei verið til sem sérstök tegund. Þjóðsögur, sagnir og gamlar náttúrufræðibækur geyma sögur og lýsingar á hverafuglum og ýmsir merkir menn hafa ekki treyst sér til að neita tilveru þeirra. Séra Snorri á Húsafelli segir frá hverafuglum í bæklingi sem hann ritaði um íslenska náttúru- fræði og Eggert Ólafsson neitar ekki tilveru þeirra í ferðabók sinni. stinga SÉR í SJÓÐANDI VATN Sögur um hverafugla eru nær eingöngu þekktar úr Árnes- og Rangárvallasýslum, enda mest um hveri á því svæði. Hverafugla varð he|st vart í Árnessýslu og mest bar á þeim í kringum aldamótin 1700 °9 fram á miðja átjándu öld. Hverafuglum er lýstsem litlum, dökkum sundfuglum með langan háls °9 líkjast öndum. Sumir segja að þeir séu mógráir, Ijósari á bringunni °9 með hvítan hring í kringum augun. Goggurinn er sagður frammjór °9 vængirnir litlir og fuglarnir halda sig í og við heita hveri og segjast 't'enn hafa séð þá stinga sér niður í sjóðandi vatnið. Séra Snorri Björnsson á Húsafelli segir að hverafuglar séu mjög algengir en styggir. Hann segir að menn hafi stundum skotið hvera- ^ugla sér til matar en að það sé ekki hægt að sjóða þá í heitu vatni eins og annan mat. Hverafugla þurfi að „sjóða" í köldu vatni og tekur Urn eina og hálfa klukkustund að matreiða þá. Þeir þykja þokkalegir a bragðið en „nokkurt kuldabragð er af þeim". bræðimaðurinn Jón Ólafsson Grunnvíkingur var engan veginn sann- ferður um tilvist hverafugla og sagðist ekki mundu trúa á slíka fugla n®ma vegna þess að „trúverðugir, ráðvandir og jafnvel lærðir menn Se9ðust hafa séð til þeirra". Jón sagðist einnig vita til þess að ein- faIdir menn teldu hverafuglana vera sálir fordæmdra en lagði lítinn rúnað á slíkt. Hann hefur þó vaðið fyrir neðan sig og viðurkennir að -dlaust sé margt í náttúrunni sem við skiljum ekki og ekki sé alltaf rett að neita einhverju af því menn hafi ekki séð það sjálfir". brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi segir frá því í bók sinni, Dulrænar srnasögur, að einu sinni hafi Vigfús nokkur Þorvarðarson, bóndi í flóa, verið á leið yfir Hellisheiði. Vigfú s var orðinn svangur þegar hann kom til Hveragerðis og ákvað að sjóða sér grásleppu í hver-rétt v'ð veginn. Þegar hann kom að hvernum sá hann að móbrúnn fugl á stasrð við spóa var að synda í honum. Þegar Vigfús kom nær sá hann bglinn stinga sér í hverinn og hverfa. Vigfús, sem var sannorður maður, sagðist hafa séð bólurnar er komu upp af fuglinum. FURÐULEG NÝJUNG í NÁTTÚRUFRÆÐINNI Talsvert er fjallað um hverafugla í ferðabók þeirra Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar. Þeir félagar segjast ekki hafa séð hverafugl og telja þá vera eitt af undrum náttúrunnar þar sem þeir syndi í sjóðandi vatni. Eggert og Bjarni fóru nokkrarferðir út að Akrahver í Hveragerði og biðu þartímunum saman en urðu fuglanna ekki varir. Niðurstaða þeirra er sú að langflestir íslendingar trúi því að hér sé um raun- verulega fugla að ræða. Sumir halda þó að þeir séu ímyndun eða missýning sem komi fram í hveragufunni en aðrirtelja þá drauga eða sálir framliðinna. Eggert og Bjarni segjast ekki vilja blanda sér í deiluna um það hvort hverafuglar séu raunverulegir eða ekki. Það veldur þeim þó miklum heilabrotum hvernig fuglarnir geti lifað í sjóðandi heitu vatni. „En ef við hins vegar ætlum að telja þetta náttúrulega fugla þá veldur það allmiklum vandræðum, jafnvel þótt fuglarnir haldi sig ekki í sjóðandi vatni heldur syndi aðeins skamma stund til þess að skríða niður í holur á jörðinni, líkt og keldusvínið. Fiður þeirra og hin harða húð á nefi þeirra og fótum gæti ef til vill þolað hitann og jafnvel haldið vatninu frá líkama þeirra. En hvað á að segja um augun? Þau hlytu að vera með allt öðrum hætti en augu annarra dýra, er menn þekkja, ef þau ættu að þola þennan hita." Spekingarnir velta einnig fyrir sér hvernig blóðið í fuglum sé og hvernig þeir fari að því að kafa vegna þess að blóðið í fuglum sé yfirleitt létt. „Ef menn hins vegar vilja gera skriðdýr úr hverafuglum þá er ef til vill auðveldara að skýra tilveru þeirra. En ef þetta eru venjulegir fuglar þá eru þeir í sannleika mikil og furðuleg nýjung í náttúrufræðinni." VARPSTOFNINN ÚTDAUÐUR Því hefur verið haldið fram að það sem menn töldu vera hverafugla hafi í raun verið keldusvín. Sé þetta rétt skýrir það fækkunina í hvera- fuglastofninum. Á undanförnum áratugum hefur keldusvíni fækkað mjög hér á landi. Ekki er vitað til þess að það hafi verpt hér síðan 1963 og óttast menn að íslenski varpstofninn sé útdauður. SKÝ 53 'Vílmundur 'tfan&av er þjáðfiræðingw

x

Ský

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.