Ský - 01.08.2004, Qupperneq 60
SKÝ
60
DOLCE OG GABBAUA
Flestir hafa einhvern tíma á ævinni keypt ilmvatn eða rakspíra - svo ekki sé talað
um fatnað, skartgrip eða armbandsúr, sem merktur er sérstökum hönnuði.
Nöfnin ,,Dolce & Gabbana” hafa orðið æ meira áberandi á síðasta áratug, ekki síst
eftir að Madonna klæddist eingöngu sérhönnuðum fatnaði frá þeim á frægri tón-
leikaferð érið 1 993. En hverjir eru þeir?
Domenico Dolce fæddist í litlum bæ rétt við Palermo á Sikiley árið
1958. Pabbi hans var klæðskeri að mennt og aðeins sex ára að aldri
var Domenico farinn að vinna á verkstæði hans:
„Ég var alinn þannig upp að mér bar að hjálpa foreldrum mínum,"
útskýrir hann. „Þarna byrjaði ég að teikna og sauma prufurfyrir þau
og naut hverrar mínútu." Ólíkt því sem ítalir eiga að venjast, var þó
aldrei ætlun foreldranna að Domenico fetaði í fótspor þeirra. Hann
var hvattur til að fara í háskólanám og hóf nám í vísindum. „Það
fannst mér þurrt og leiðinlegt fag," segir hann - enda lét hann
hjartað ráða för, skráði sig úr háskólanum og í listaskóla. Þaðan lá
leiðin í leit að frægð og frama í borg tískunnar, Mílanó. Á verkstæði í
úthverfi borgarinnar hitti hann Stefano Gabbana, fjórum árum yngri
hönnuð. Þeirfundu strax að þeir áttu margt sameiginlegt og hafa síð-
an verið samstiga, jafnt í atvinnu sem einkalífi.
Stefano Gabbana hafði líka ungur að árum heillast af tískunni, en
segir að sig hafi aldrei órað fyrir að hann ætti eftir að starfa við hönn-
un: „Mér fannst bara gaman að kaupa smart föt á sjálfan mig en datt
aldrei í hug að ég ætti eftir að leggja línurnar!" segir hann. Stefano
lærði grafíska hönnun við tískuskóla í Monza, en hætti námi skömmu
fyrir útskrift og réðst til starfa við auglýsingahönnun. Eftir nokkurn
tíma þar bauðst honum starf hjá fatahönnunarfyrirtæki; því sama og
Domenico réðst til.
MEÐ LÁNSFÉ í VASANUM
Meðal þess sem tengdi þá strax saman var hrifning þeirra á kvik-
myndum frá sjötta áratugnum og leikkonum eins og Sophiu Loren og
Ginu Lollobrigida. Áhrifa frá tísku þeirra ára gætir í hönnun þeirra,
sem þykir afar kvenleg og kynþokkafull. Með þessa sýn að leiðarljósi
yfirgáfu þeir fyrirtækið sem þeir unnu hjá og ákváðu að freista gæf-
unnar með því að setja upp sína eigin verslun árið 1981. Þeir gerðust
ráðgjafar hjá verksmiðjum og vefnaðarvöruframleiðendum, létu eng-
in gylliboð blinda sér sýn og stóðu fastir á því að starfa sjálfstætt.
Fjórum árum síðar urðu straumhvörf í lífi þeirra þegar þeim var boð-
ið að sýna hönnun sína á stórri tískusýningu í Mílanó. En þá voru góð
ráð dýr. Ekki var fjármagninu fyrir að fara í litla fyrirtækinu og þeir
höfðu hvorki ráð á að borga fyrir aðstöðu né að fá fyrirsætur. En félag-
arnir áttu góða að. Með lánsfé í vasanum og nokkrar vinkonur sínar
upp á arminn mættu þeirtil sýningarinnar. Fatnaðurinn sló í gegn og
framtíðin var ráðin.
Dolce og Gabbana hafa skapað sér sérstöðu á margan hátt. Ólíkt
öðrum dúettum í tískuheiminum vinna þeir báðir jafnt að hönnun - en
venjan er hins vegar sú að annar hluti þekktu dúettanna vinnur að
hönnun og hinn að fjármálunum. Hvorugur segist geta hugsað sér að
halda áfram án hins og báðir hugsa með hlýju til þess tíma er þeir
voru óþekktir: „Við værum ekkert minna hamingjusamir ef allt væri
óbreytt. Við tveir á litlu verkstæði, fullar hillur af efnum og tvinna, ein
saumavél, ein gína og tvær saumakonur..."
HÚN SPURÐI EKKI HVAÐ ÞETTA KOSTAÐI ...
Annað sem einkennir þá félagana er lítillæti. Þeir höfðu alltaf haft dá-
læti á Madonnu og lögðu leið sína á alla tónleika hennar á Ítalíu. Eins
og aðrir aðdáendur veltu þeir fyrir sér að gaman væri að hitta hana.
Þegar þeir sáu mynd af henni í tímariti þar sem hún klæddist fatnaði frá
þeim urðu þeir eðlilega stoltir, en þeir kipptu sér svosem ekkert mikið
upp við þegar blaðafulltrúi hennar hringdi og bað þá að hitta hana á
kaffihúsi í New York: „Við urðum strax vinir," segja þeir. „Hún er eins
og fatnaðurinn frá okkur, kynþokkafull og húmorísk." Verkefnið sem
Madonna fól þeim á þessum fyrsta fundi var að hanna klæðnað á hana
og alla dansara hennar í tónleikaferðina „Girlie Show". Þeir hönnuðu
1500 mismunandi klæðnaði á tveimur mánuðum - marga hverja hand-
saumaða. Og upphæðin sem þeirfengu fyrir? Ekki króna! „Hún spurði
aldrei hvað þetta kostaði, svo við vorum ekkert að nefna það!" segja
þeir brosandi.
Þeir eru líka mannvinir og þekktir fyrir að miðla málum. Hér er eitt
dæmi:
Slúðurblöðin fóru yfir um þegar parinu tókst að sætta erkióvinina
Victoriu Beckham og Naomi Campbell. Erjur þeirra hófust í veislu
árið 1997 þegar Victoria var á hátindi frægðar sinnar með Spice Girls
og var nýmætt í boðið (reyndar á vegum Donatellu Versace, en það
er önnur sagal). Naomi gekk til hennar og spurði: „Hvers vegna ertu
eiginlega kölluð Posh (glæsileg/snobb)?" Victoriu brá en svaraði til
baka: „Hvað kemur til að þú ert sögð falleg?" Síðan þá vönduðu þær
ekki hvor annarri kveðjuna og Victoria kallaði Naomi meðal annars
„belju" í sjónvarpsviðtali. Á síðasta ári gerðist það svo í veislu á veg-
um Önnu Wintour, ritstjóra Vogue, að þær komu hönd í hönd - í
Dolce og Gabbana kjólum og voru Domenico og Stefano ekki langt
undan. Victoria og Naomi hafa báðar verið vinkonur þeirra lengi og
þeim hefur greinilega þótt nóg um ósættirnar og tekist, fyrir eitthvert
kraftaverk (!) að sætta prímadonnumar.
SÝNT UNDIR ÓPERUTÓNLIST
Þótt framhjá því verði ekki litið að vinátta félaganna og Madonnu hafi
skilað þeim miklu í tímans rás, eru þeir félagar afskaplega lítið fyrir
frægtfólk. í einu markaðsátaki fyrirtækisins sat Linda Evangelista fyrir
á myndum hjá þeim, en oftar en ekki er það algjörlega óþekkt fólk
sem þeir velja sem fyrirsætur: „Við viljum ekki sama andlitið og allir
aðrir nota," útskýra þeir.
Þeir skera sig líka úr á annan hátt. Á stóru tískusýningunum er það venja
flestra hönnuða að láta rokklög hljóma meðan fyrirsæturnar ganga um.
En ekki Dolce og Gabbana. Tónlistin sem þeir velja við kynningu á fram-
leiðslu sinni er „Cavalleria Rusticana" eftir Mascagni. Þrátt fyrir alla vel-
gengnina eru þeir nefnilega með báða fætur á jörðinni..