Ský - 01.09.2005, Blaðsíða 15
Verður pólitík í framtíðinni innan flokkanna
e&a mun hún stjórnast af stórfyrirtækjum?
/,Stjórnmálaflokkar og stórfyrirtæki
e'ga að geta lifað í sátt og samlyndi hvert
við annað og haft áhrif hvor um sig, en á
ólíkan hátt."
Hvaða mál er brýnast að leysa á næstu
tveimur árum? En næsta áratug?
//Þau eru mörg. Stjórnvöld standa
frarnmi fyrir stórum ákvörðunum varð-
andi þá þjónustu sem ríkið veitir hér á
iandi, þ.e. um almannatryggingar og heil-
brigðis- og menntakerfið. Kostnaður við
að halda þessari þjónustu úti hefur aukist
°g samhliða eru gerðar auknar kröfur um
gaaði á öll um sviðum. Stjórnvöld verða að
8era það upp við sig hvort sá kostnaður
eigi að falla á notendur eða vera greidd-
Ur af hinu opinbera. Sjálfur tel ég að hið
°Pinbera eigi að bjóða upp á þessa þjón-
ustu og gera það með mun myndarlegri
hætti en gert er í dag. Einnig finnst mér
m)ög brýnt að gengið verði í tímabærar
h^eytingar á landbúnaðarkerfinu, enda
er það tímaskekkja að ríkið sé að niður-
8reiða óarðbæran rekstur í einni atvinnu-
8rein. Hér er mikilvægt að forgangsraða.
Þá má nefna breytingar og umbætur á
stjórnsýslunni, með fækkun ráðuneyta
og hagræðingu."
Er starf stjórnmálamannsins heillandi fyrir
ungt fólk?
„Það fer nú eftir því um hvaða stjórn-
málamann er talað! Almennt myndi ég
segja að starf stjórnmálamanns bjóði upp
á spennandi tækifæri til þess að koma
ákveðnum hugmyndum og málefnum til
leiðar. Ég held að það heilli ungt fólk með
hugmyndir og skoðanir.
Hins vegar hefur borið á því að stjórn-
málamenn sem eru að stíga sín fyrstu
skref á opinberum vettvangi hafi það eitt
í huga að tryggja starfsöryggi sitt næstu
áratugina, óháð hugsjónum og baráttu-
málum og það held ég að heilli ekki
ungt fólk. Það er ekki upplífgandi að sjá
það fólk sem á að vera fulltrúar ungu
kynslóðarinnar komast til áhrifa til þess
eins að haga seglum eftir vindi og kjósa
eftir flokkslínum en ekki eftir eigin san-
nfæringu."
/Etlar þú að leggja stjórnmálin fyrir þig?
„Stjórnmál eru spennandi vettvangur
en ég hef ekkert ákveðið með það."
Skipta stjórnmál jafnmiklu máli núna og
fyrir tuttugu árum?
„Nú get ég eingöngu vitnað í það sem
ég hef lesið og kynnt mér, enda fylgdist
ég ekki með stjórnmálum í kringum
árið 1985, fjögurra ára gamall. Eins og
áður sagði hefur sú þróun orðið að völd
stjórnmálamanna hafa minnkað og færst
í hendur annarra. Þótt völd þeirra hafi
minnkað skipta stjórnmál enn máli."
Hvert verður hlutverk stjórnmálamannsins
eftir 25 ár?
„Ég býst við því að hlutverk þeirra
verði ekki jafnumfangsmikið og í dag.
Völdin hafa verið að færast frá stjórn-
málamönnum og dreifast meira meðal
fólks, sem er góð þróun og mun án efa
halda áfram."
Ef þú kæmist til áhrifa í stjórnmálaflokki,
fyrir hvað myndir þú vilja láta minnast þín
fyrir á þeim vettvangi?
„Ég myndi vilja láta minnast mín fyrir
að hafa unnið af heilindum og fyrir að
standa og falla með mínum málefnum."
BB1
ský 15