Ský - 01.09.2005, Blaðsíða 45
Kvikmyndir
SKAMMBYSSA GIIY EITCHIES
Það hafa skipst á skin og
skúrir að undanförnu hjá
hinum ágæta breska ieik-
stjóra Cuy Ritchie. Honum
virtust allir vegir færir eftir
að hafa leikstýrt Lock, Stock
and Two Smoking Barrels og
Snatch, tveimur frábærum
og sérstökum sakamála-
myndum. Hann kynntist
Madonnu eins og frægt er orðið og þau giftust og eignuðust
barn. Ritchie leikstýrði eiginkonu sinn í SweptAway, sem engin
þoldi nema kannski hjónakornin sjálf. Leið Swept Away lá beint
á myndbandamarkaðinn. Nú hefur Ritchie snúið á gamalkunn-
ar slóðir í nýjustu mynd sinni Revolver. í henni leikur Jason
Statham fjárhættuspilarann Jake Green, sem fær varla aðgang
að spilavítum í London þar sem hann vinnur alltaf. Á vegi hans
verður spilavítiseigandinn og mafíuforinginn Dorothy Macha
(Ray Liotta) sem ekki þolir að tapa. Creen fer illa með hann í
spilum og það er ekki sökum að spyrja, fé er sett til höfuðs
honum. Ef Ritchie nær sömu tökum á Revolver og Lock, Stock...
og Snatch, má búast við sterkri kvikmynd.
AL PACINO í ENDUROEED Á
FEANSKRI KLASSÍK
Um miðjan sjöttaáratuginn vargerðíFrakklandi sakamálamynd-
in Rififi, sem Jules Dassin leikstýrði. Hann hafði þá nýverið
flúið Bandaríkin þar sem hann var settur á svarta listann af
„Amerísku nefndinni". Var þessi mynd upphaf að farsælum
ferli hans í Evrópu. Nú ætlar Hollywood að endurgera þessa
mynd; Harold Becker leikstýrir henni og hefur fengið Al Pacino
til að leika aðalhlutverkið. Rififi fjallar um snjallan þjóf sem
setið hefur í fangelsi. Þegar hann
er látinn laus kemst hann að því
að eiginkonan hefur yfirgefið
hann. Hann ákveður að vinna við
það sem hann er bestur í og skip-
uleggur stórt dementarán. Það
sem vakti einna mest hrifningu í
upprunalegu myndinni var hálfr-
ar klukkustundar innbrotsatriði
þar sem ekki var sagt eitt einasta
orð. Vafasamt er það verði endur-
tekið í amerísku útgáfunni. Þetta
verður í þriðja sinn sem Harold
Becker og Al Pacino starfa saman.
Áður hafa þeir gert Sea of Love og
City Hall.
FRAMTÍÐIN BJÖRT HJÁ DANIEL CRAIG
Hinn ágæti breski leikari Daniel Craig virðist loks vera að slá í
gegn og má hann þakka það frammistöðu sinni í Layer Cake.
Guy Ritchie ásamt Brad Pitt við
tökur á Snatch.
Al Pacino olli aðdáendum
sínum ekki vonbrigðum í
Insomnia.
ítal&kt
ötygott
Italúxn/
clateríc/
e öSt'Hí
AKUREYRI
open from 18:00 tel:461-5858
ský 45