Ský - 01.09.2005, Blaðsíða 19
„Ég fór frá KR vegna þess að þar var ekki lengur áhugi á að hafa mig. Þótt Valur hefði verið
í ákveðinni lægð fannst mér það viss ögrun að fara til félagsins og þar ríkti mikill metnaður.
Eg þekkti þjálfarann og treysti honum og vildi jafnframt sýna mönnum að ég væri alls ekki
útbrunninn þótt margir teldu jafnvel að ég mundi ekki duga nema tvo til þrjá leiki. Maður
heyrði til dæmis sagt: „Hvenær springur Gummi?"! í sumar höfum við sýnt að við erum með
langbesta næstbesta liðið!"
Gæfuspor fyrir mig og félagið
- Konan þín, Kristbjörg, er dóttir Inga Björns Albertssonar og afi hennar „hvíta perlan" Albert
Guðmundsson. Þú ert kominn í félagið þeirra auk þess sem Kristbjörg lék með Val um tíma.
„Ætli það hafi ekki verið rætt í fjölskyldu Kristbjargar í gamni og alvöru síðustu tíu ár
hvenær ég kæmi til Vals. Þegar það svo loks gerðist hringdi tengdapabbi í mig og sagðist vera
sannfærður um að þetta væri gæfuspor fyrir mig og félagið."
Albert Guðmundsson í 7. flokki
Guðmundur og Kristbjörg eiga sjö ára son sem er alnafni langafa síns, Alberts. Hann þykir
mjög efnilegur leikmaður og hann leikur með KR í7. flokki. Hann er nánast endalaust í fótbolta, fór
snemma á æfingar með foreldrunum. Móðir Alberts segir að stundum sé sérstaklega fylgst
með honum á vellinum, ekki síst af þeim sem vita hverra manna hann er. Kröfurnar séu stund-
um meiri. Hún segir að hann beri nafnið með stolti, honum finnist gaman að bera nafn lang-
afa síns.
Hjartað sló hjá Val
Kristbjörg segir að hún hafi mjög ung byrjað að leika sér í fótbolta, hafi smitast af föður sínum
og umhverfinu, en þá hafi stelpum yfirleitt ekki staðið til boða að æfa fótbolta.
„Ég byrjaði að æfa með Fylki en fór síðan 14 ára í Val vegna þess að kvennaboltinn var
lagður niður hjá Fylki.
Ég lék fyrsta leikinn með Val 16 ára gömul og lék í þrjú ár en þá fór ég utan. Þegar ég kom
heim gekk ég í KR og spilaði þar eitt sumar. Síðan lá leiðin aftur í Val. Ég varð íslandsmeistari
með KR en ekki Val en hins vegar bikarmeistari með Val. Ég lék úrslitaleikinn með KR gegn
Val og það hefur alltaf setið svolítið í mér. Það var erfitt að spila gegn Val, ég fann þá hvar
hjartað sló!
í dag þjálfa ég kvennalið Fylkis. Við erum búin að vinna okkur sæti í Landsbankadeild
kvenna næsta ár og auðvitað er ég ákaflega stolt sem þjálfari. Ég er sóknarmaður en þjálfunin
hefur kennt mér annan skiling á fótboltanum, ég skil nú varnarmennina betur," segir Krist-
björg.
Ekki mikill tími fyrir frístundir
- Á svona fótboltafjölskylda einhverjar frístundir saman?
„Þær eru ekki margar en þetta gefur okkur báðum svo mikið að það er á sig leggjandi.
Við þekkjum ekkert annað en að vera í fótbolta, við völdum sjálf að fara í þessa íþrótt. Það
er eiginlega ekki tími fyrir önnur áhugamál, t.d. golf. Við erum svo heppin að eiga börn sem
hafa gaman af fótbolta og koma með okkur svona sitt á hvað. Annars gengi þetta ekki upp.
Á veturna sitjum við stundum saman og horfum til dæmis á enska boltann," segja þau Guð-
^nundur og Kristbjörg.
Þar fylgir Gummi Manchester United en Kristbjörger Arsenalaðdáandi eins og fleiri íhenn-
ar fjölskyldu. Úrslit í leikjum þessara ensku liða hafa valdið því að ekki er farið í matarboð!
bau fullyrða bæði að um ýmislegt annað sé rætt í fjölskylduboðum en um fótbolta, en ekki
oft! gj]
íþróttir
Ég fór frá KR vegna
þess að þar var ekki
lengur áhugi á að
hafa mig. Þótt Valur
hefði verið í ákveðinni
lægð fannst mér það
viss ögrun að fara
til félagsins og þar
ríkti mikill metnaður.
Ég þekkti þjálfarann
og treysti honum og
vildi jafnframt sýna
mönnum að ég væri
alls ekki útbrunninn
þótt margir teldu jafn-
vel að ég mundi ekki
duga nema tvo til þrjá
leiki. Maður heyrði
t.d. sagt: „Hvenær
springur Gummi?"!
í sumar höfum við
sýnt að við erum með
langbesta næstbesta
liðið!"
ský 19