Ský - 01.09.2005, Side 18
Tveir knattspyrnumenn. Albert Guðmundsson sem leikur
með 7. flokki KR og langafi hans og alnafni sem var fyrsti
atvinnumaður islands.
Guðmundur er fæddur og uppalinn á Akureyri og hóf mjög
ungur að leika með Þór. Hann var aðeins 15 ára þegar hann
lék sinn fyrsta meistaraflokksleik og þá var honum skipt inn
á í Þórsliðinu gegn Val. Hann var þá yngsti leikmaðurinn sem
hafði spilað með meistaraflokki í efstu deild. í Valsliðinu voru
á þessum tíma leikmenn eins og Þorgrímur Þráinsson, Sævar
Jónsson og Einar Páll Tómasson sem Guðmundur segir að
hafi verið nánast ógnvekjandi miklu stærri en hann og miklir
reynsluboltar. í millitíðinni hafði hann leikið með yngri flokk-
um Fram.
Guðmundur segir að í æsku hafi hann átt fullt af fyrirmynd-
um á knattspyrnuvellinum. Það hafi ekki síst verið leikmenn
meistaraflokks Þórs, en erlendis hafi það til dæmis verið Mara-
dona, enda hafi hann ekki verið hár í loftinu frekar en hann
sjálfur!
Frá Akureyri lá leiðin í atvinnumennsku í Belgíu en þaðan
kom hann heim meiddur, hafði raunar farið þangað einnig
meiddur þremur árum áður. Guðmundur telur að hefði hann
lent í þessum meiðslum hér heima hefði hann sennilega hætt
í fótboltanum.
í KR vegna Guðjóns Þórðarsonar
„En ég var ekki sáttur við það að hætta, knattspyrnan var og
er það skemmtilegasta sem ég geri. Þegar ég kom heim 1994
lá leiðin aftur í Þór og síðan til KR og loks í Val í sumar. Aðal-
ástæðan fyrir því að ég fór í KR var að Guðjón Þórðarson þjál-
faði liðið og mér fannst það mjög spennandi. Þessi ár hjá KR
voru bæði sæt og súr, en krafan til leikmanna er líklega meiri
þar en hjá öðrum félögum hérlendis. Þar er ekkert nógu gott
nema það besta. Enda er það ekki fyrir alla að spila með KR og
standa undir pressunni! En þetta á að efla leikmenn og þeir
eiga að njóta þess að spila undir svona pressu. Ég er gríðarlega
hreykinn af því að vera í því liði sem loks vann íslandsmeistara-
titilinn eftir 30 ára fjarveru frá Vesturbænum. Ég vann fjóra Is-
landsmeistaratitla og tvo bikartitla með KR og er líklega sá núlif-
andi leikmaður sem flesta titla hefur unnið með félaginu!"
- Það undruðust margir að þú skyldir ganga í Val, ekki sist
vegna þess að þar var tekinn við þjálfun Willum Þór sem hafði
þjálfað KR og ekki gefið þér mörg tækifæri sumarið 2004.
ský 18