Ský - 01.09.2005, Page 37
Valdimar, Jón og Sigurður í nánd við Hágöngur.
fjallsbrún. Þeim finnst uppblástur hafa herjað á landið. Þeir óku
nú út fjallsbrúnina, því næst niður í íshólsdal, um greiðfæra
mela niður að íshólsdalsá, en urðu að flóra með hellum til að
komast yfir hana.
Seinnipartinn bilaði bíllinn og Sigurðurfórað bjástra við bílinn,
í skjóli við regnhlífina og það tók svo langan tíma að hinir urðu
áhyggjufullir. Enn einu sinni var „lovbandið" brunnið og varð
að skipta um, en sem betur fór hafði Sigurður tekið nokkur
með.
Þeir komust þó af stað og um níuleytið tjalda þeir í rökkurbyrjun
á bökkum íshólsvatns, nokkru austan við rústir eyðibýlisins
Ishóls. Þennan dag höfðu þeir ekið um50 km en vegnavillunnar
ekki þokað nema 25 km áfram.
Ferðalok
Sunnudaginn 20. ágúst fóru þeir af stað um hálf áttaleytið.
Ferðin gekk stirðlega á graslendinu við vatnið, en fljótlega
komust þeir aftur á Sprengisandsveg og sáu þá fyrsta byggða
ból í Bárðardal, Víðiker, austan Skjálfandafljóts. Hér voru vegir
greiðfærir á hálsinum, en brekkurnar niður með Hádegisfelli
voru stórgrýttar og brattar og var þar mjög seinlegt og örðugt að
komast niður. Þegar þeir áttu skammt ófarið að Mýri stoppuðu
þeir, þvoðu bílinn og sjálfa sig eftir bestu getu og fóru í sínar
skástu flíkur. Þeir settust svo eins og fínir menn í bílinn og óku
áleiðis til bæjarins. Þegar þeir komu í augsýn frá Mýri snaraðist
maður á hestbak og reið til móts við þá, niður að ánni. Hann
kvað vera búist við þeim að Mýri og bauð þeim þangað heim.
Enn þurfti að skipta um brunnið „lovband", en á endanum
komust þeir að Mýri.
Þar var þeim tekið tveim höndum af Jóni bónda Karlssyni
°g Aðalbjörgu Jónsdóttur konu hans og leiddir að uppbúnu
Eaffiborði, með heimafólki og nokkrum kirkjugestum frá
Lundarbrekku, er komnir voru til að sjáfyrstafarartækið er kom
sunnan Sprengisand og farþega þess. Jón kvaðst hafa vitað um
ferð þeirra, en menn voru farnir að óttast að norðangarðurinn
hefði tafið för þeirra.
Lauk þar hinni eiginlegu Sprengisandsför, en þeir félagar
óku svo áfram og komust til Reykjavíkur á fjórum dögum
eftir venjulegri leið gegnum Fosshól, Akureyri, Möðruvelli,
Blönduós og Húsafell, svo að getið sé þeirra staða sem Jón
tilgreinir. Að Fosshóli taldi Jón að frá Múla á Landi væru um 285
km og á leiðinn höfðu þeir eytt um 210 lítrum af bensíni eða um
75 lítrum á hundraðið sem þætti mikið nú á dögum. Jón getur
þess þó að þeir hafi ekið miklu lengri leið með öllum krókum.
Þessi ferð var mikið afrek og það liðu fimmtán ár áður en næsti
hópur lagði yfir Sprengisand á bíl.
Þessarar ferðar er minnst með myndasýningu á
Hálendismiðstöðinni Hrauneyjum, á Stóruvöllum í Bárðardal,
á sumarhótelinu Kiðagili og á Samgöngusafninu í Skógum,
en þar getur m.a. að líta bíl eins og þann sem ferðalangarnir
notuðu. ebuti
Kuldalegur morgunn.
ský 37