Ský - 01.09.2005, Síða 42
Kvikmyndir
Clint Eastwood er án efa einn frægasti maður sem til íslands hefur komið:
Eflist með aldrinum
Texti: Hilmar Karlsson
hinum hverfula kvikmyndabransa í Hollywood,
eru annaðhvort útbrunnir og gleymdir eða vel
að hvíldinni komnir. Ekki þó Eastwood, hann
hefur aldrei verið frjórri og styrkur hans er mikill.
Það sanna síðustu tvær kvikmyndir hans, Mystic
River og Million Dollar Baby, sem segja okkur að
hann er enn á hátindi ferils síns, er eftirsóttur
leikari og leikstjórnarferill hans hefur ekki risið
hærra. Það er erfitt að finna einhverja eina
skýringu á goðsögninni Clint Eastwood, hann
er margslunginn karakter þótt ekki virðist hann
flókinn á yfirborðinni, hæglátur, kemur hreint og
beint fram og er yfirleitt beinskeyttur í svörum.
Töffaraímyndin kemur úr kvikmyndunum og þá
sérstaklega spaghetti-vestrunum og Dirty Harry
myndunum.
Leikur hans í þessum kvikmyndum og fleiri
álíka þar sem töffaraímyndinni er viðhaldið eiga
eftir að halda nafni hans á lofti um ókomna tíð.
Það er nú samt leikstjórinn Clint Eastwood sem
hefur öðlast virðingu samtímans. Um leikferilinn
segir hann: „Enn sem komið er muna flestir eftir
mér sem hasarmyndaleikara, sem er í sjálfu sér i
góðu lagi. Það er ekkert rangt við það. Eg vona þo
að í framtíðinni verði einnig munað eftir mér fyrir
þær kvikmyndir þar sem ég tók áhættu."
Það fór ekki fram hjá neinum að Clint
Eastwood dvaldi á íslandi ásamt fríðu
föruneyti við tökur á nýjustu kvikmynd
sinni Flags of our Fathers, kvikmynd
sem gerist í seinni heimstyrjöldinni og
segir frá einum örlagaríkasta atburði
styrjaldarinnar, innrásinni á eyna
Iwo Jima þar sem 26.000 bandarískir
hermenn og 22.000 japanskir hermenn
létu lífiö á einum mánuði. Fjallar
myndin um mennina sem reistu
bandaríska fánann á hæð á eynni. Sá
atburður var festur á Ijósmynd sem er
löngu heimsfræg. Flags of our Fathers
er gerð eftir samnefndri bók James
Bradley, en faðir hans, John Bradley,
var einn hinna sex ungu manna sem
reistu fánann og sá eini þeirra sem
lifði að verða gamall maður. Er hann
sögumaður í myndinni og leikinn af Ryan Philippe. Sá hluti sem tekinn er á
íslandi er það sem allt snýst um, sjálf innrásin, og var Sandvík á Suðurnesjum
valin vegna sandsins svarta.
Þegar bókin kom út árið 2000 vakti hún strax mikla athygli og Eastwood
reyndi strax eftir lestur hennar að kaupa kvikmyndaréttinn. Sú tilraun hans
bar ekki árangur þar sem Steven Spielberg var á undan honum. Þegar
Spielberg frétti af áhuga Eastwoods sá hann sér leik á borði, bauð Eastwood
að leikstýra myndinni og að hann yrði framleiðandi. Varla er hægt að hugsa
séráhrifameira par í bandaríska kvikmyndaheiminum og þegarferill þessara
tveggja snillinga er skoðaður er ekki annað hægt en að bíða með tilhlökkun
eftir útkomunni.
Þar sem Flags of the Fathers hefst á því að atburðir eru rifjaðir upp og
verið er að heiðra John Bradley og fleiri hermenn, þá er ekki laust við að
hugurinn staðnæmist við stórvirki Spielbergs, Saving Private Ryan (1998),
sem fjallaði að hluta til um innrásina í Normandí en í byrjun þeirrar myndar
er einnig eldri maður að rifja upp atburði. Eastwood þarf að gera vel til að
standast samanburðinn og er víst að flestir treysta honum til þess, meðal
annars Spielberg. Kostnaðurinn við Flags of our Fathers er talin nema um
90 milljón dollurum. Hún er langdýrasta kvikmynd sem Eastwood hefur
leikstýrt og er þrisvar sinnum dýrari en Óskarsverðlaunamynd hans Million
Dollar Baby.
Vestrar í upphafi
Clint Eastwood á farsælan feril að baki svo ekki sé tekið dýpra í árinni.
Hann er 75 ára gamall og á þeim aldri sem langflestir, sem tengjast
ský 42