Ský - 01.09.2005, Qupperneq 44
-Kvikmyndir----------------------
The Legend of Zorro
Lífseig hetja
þeirra sem
minna mega sín
*
IOKTOBER verður frumsýnd í Bandaríkjunum The Legend
of Zorro, sem er óbeint framhald af The Mask of Zorro, sem
gerð var fyrir sjö árum og naut mikilla vinsælda. Það er Antonio
Banderas sem leikurZorro eða Don Alejandro de la Vegaeins og
hans raunverulega nafn er. Eiginkonu hans, hina fögru Elenu de
la Vega, leikur Catherine Zeta Jones og endurtaka þau hlutverk
sín frá því í The Mask ofZorro, en í þeirri mynd kynntust þau. Þau
kynni urðu stormasöm í upphafi, Zorro tókst þó að temja hina
villtu Elenu og nú eru þau sem sagt gift og búa í San Francisco.
Hafa þau komið sér vel fyrir og eru virt af borgarbúum. Þau
eiga einn son, Joaquin, sem er orðinn tíu ára og hefur ekki
hugmynd um fortíð föður síns. Þegar ríkir og miskunnarlausir
landeigendur fara illa með launþega sína stenst de la Vega ekki
mátið og klæðist Zorro-búningnum og kemur til bjargar. Hann
þarf þó aðstoð í þetta skiptið og er það Elene sem setur upp
Zorro-grímuna. Og eins og vænta má þegar þau sameina krafta
sína þá er fátt til varnar.
Margar útgáfur af Zorro
Zorro er ein af lífseigustu hetjum hvíta tjaldsins og hafa verið
gerðar margar kvikmyndir um hetjudáðir hans og sjónvarpsseríur
sýndar. Zorro kemur fyrst fram á sjónarsviðið árið 1919 þegar
fyrrverandi lögreglumaður, Johnston McCulley, skrifaði söguna
The Curse Of Capistrano, sem fjallaði um son ríks landseiganda,
Don Diego de la Vega, sem las Ijóð ádaginn og vará móti ofbeldi.
Þetta var skjólveggur hans því að á nóttunni setti hann upp
svarta grímu og kallaðist þá Zorro, sem þýðir refur á spænsku.
Sjálfsagt hefur McCulley orðið fyrir áhrifum af ævintýrum Hróa
hattar, auk þess sem ýmsar þjóðsögur voru á kreiki í Kaliforníu
um hetjur sem börðust gegn spillingu og óréttlæti.
Ári eftir að sagan kom út leit fyrsta kvikmyndin um Zorro
dagsins Ijós. The Mark ofZorro hét hún og það var ein skærasta
stjarna þöglu kvikmyndanna, Douglas Fairbanks, sem lék
kappann. Myndin naut mikilla vinsælda og síðar lék Fairbanks
í framhaldsmynd sem hét Don Q, Son Of Zorro. Næsta útgáfan
af Zorro var gerð 1940 og hét einnig The Mark of Zorro. Tyrone
Power, sem þá var ein af skærustu kvikmyndastjörnunum í
Hollywood, lék Zorro og naut sú mynd sömuleiðis mikilla
vinsælda. Síðan má segja að Zorro-mynd hafi komið fram
reglulega og eru margar útgáfurnar skrautlegar, eins og The
EroticAdventures ofZorro, Chost ofZorro og svo hin bráðfyndna
Zorro, The Cay Blade.
Þekktustu Zorro-myndirnar hafa verið gerðar í Hollywood,
en Spánverjar, Mexíkanar og ítalir hafa einnig verið duglegir að
gera Zorro-myndir. Þekktust þeirra er Zorro, frá árinu 1975, þar
sem Alain Delon lék hetjuna. Hvað sjónvarpið varðar hafa bæði
verið gerðar teiknimyndaseríur og leiknar seríur. Má þar nefna
eina vinsæla sem Disney sýndi seint á sjötta áratugnum.
Frá Zorro yfir í Bond
Leikstjóri Legend of Zorro er Martin Campbell, sem einnig
leikstýrði The Mask of Zorro. Campbell er Nýsjálendingur, sem
fyrst vakti athygli fyrir leikstjórn bresku sjónvarpsmyndarinnar
Edge of Darkness, sem vann til margra verðlauna. Hafði hann þá
leikstýrt þáttum í mörgum þekktum sjónvarpsseríum, eins og
Bergerac og The Professional. í kjölfarið leikstýrði hann nokkrum
kvikmyndum sem vöktu litla athygli. Það var ekki fyrr en honum
var falið að leikstýra James Bond myndinni Coldeneye (1995) að
hjólin fóru að snúast. Strax þar á eftir komu The Mask of Zorro,
Vertical Limit og Beyond Borders. Hann leikstýrir næstu Bond-
mynd, Casino Royale, sem mikið hefur verið fjallað um, þar sem
enn hefur enginn verið ráðinn til að leika sjálfan Bond.
Hvað varðar Zorro þá hefur hann átt góða lífdaga fram að
þessu og ekkert bendir til að hann sé á útleið. Má til marks um
það nefna að einn þekktasti rithöfundur heims, Isabel Allende,
er nýbúin að senda frá sér nýja skáldsögu, Zorro: A Novel, þar
sem hún endursegir söguna um Zorro og gerir það meistaralega
að mati gagnrýnenda. Egl
ský 44