Árbók frjálsíþróttamanna - 01.07.1943, Side 15
inn samanburð við afrek Sunnlendinganna; talsvert Iakari í sprett-
hlaupunum, en dálítið betri í stökkunum. Þolhlaup eru engin hjá
Norðlendingunum og sameiginlegt er hjá báðum, að ekki er keppt
í neinum köstum fyrr en á landsmóti U.m.f. I. 1911. I sambandi
við fábreytni Akureyrarmótsins 1911 má geta þess, að glíman
um Grettisbeltið og leikmót U.m.f. I. var háð í Reykjavík um
þetta leyti, og ýmsir beztu íþróttamenn Norðlendinga höfðu farið
til þeirrar keppni; hefir þetta að líkindum dregið úr fjölbreytni
mótsins — og svo hitt einnig, að ýmsir af vöskustu íþróttamönn-
um Norðlendinga voru þá utanlands að sýna ísl. glímuna í ýms-
um löndum Evrópu. En eins og hér sunnanlands voru glímumenn
þar líka þátttakendur í frjálsum íþróttum. Ég hefi þekkt ýmsa
af íþróttamönnum Norðlendinga frá þessum árum, þ. á. m. Jakob
Kristjánsson prentara. Hann var ágætur fimleika og glímumaður og
vann oft í flokkaglímum á Ak., en hann hafði líka mikinn áliuga og
þekkingu á frjálsum íþróttum. Þekkingu sína hafði hann að mestu
eftir dönslcu íþróttabókinni, sem áður er getið, og hafði ágæta
þekkingu á því, sem sú bók kenndi í sumum greinuin, eink-
um göngu.. Mun óhætt að fullyrða, að þekking íþróttamanna á
frjálsum íþróttum norðanlands hafi verið af sömu eða líkum rótuin
runnin og bér sunnanlands og bafi því tilhögun öll og leikreglur
verið líkar.
Að siðustu skulu hér tilfærð afrek íþróttamanna í frjálsíþrótta-
greinum þeim, sem keppt var í á LEIKMÓTI U.M.F.Í. 1911 —
fyrsta landsmótinu.
100 m. hlaup: 1. Kristinn Pétursson 11,8 sek. 2. Geir Jón Jóns-
son 12,2 sek. 3. Sigurjón Pétursson 12,4 sek.
402]/3 m. hlaup: 1. Sigurjón Pétursson 61,0 sek. 2. Geir Jón
Jónsson 64,0 sek. 3. Magnús Tómasson 64,5 sek.
804% m. hlaup: 1. Sigurjón Pétursson. 2:19,0 mín. 2. Magnús
Tómasson 2:21,0 mín. 3. Ólafur Sveinsson.
Mílulilaup (7500 m): 1. Guðmundur Jónsson 28:02,4 mín. 2.
Einar Pétursson 28:21,4 mín. 3. Jónas Snæbjörnsson 29:03,0 mín.
4. Helgi Tómasson.
11