Heilbrigt líf - 01.12.1956, Page 8
ara og embættismanna sitja hver við sitt borð, hver með
sinn síma til og frá, sín á milli og út um landið. Um 10
milljónir símaþráða liggja til skrifstofunnar fyrir að-
komandi boð. Sem betur fer, fyrir okkur auðmjúka skatt-
greiðendur, er mannkynið ekki enn nærri nógu fjölmennt
til þess að slík skrifstofa gæti átt sér stað í veruleikan-
um, en dæmið getur hjálpað okiair eigi að síður.
Látum okkur nú athuga, hvað gerist, ef einhver reiddi
hnefa til höggs fyrir framan augun á okkur. Þessi athöfn
er í eðli sínu líkleg til að vekja okkur til ákveðinna at-
hafna og við köllum hana því vaka. Sú ráðstöfun, er við
grípum til, nefnist svörun. Fyrsti þátturinn verður mót-
taka augans, sá endi sjóntaugarinnar, sem tengdur er aug-
anu, tekur á móti boðum frá sjónhimnunni, sem síðan
leiðast eftir ákveðnum heilabrautum aftur til aftur-
skauts heilans, til svæðis í heilaberkinum, sem sér um
sjónmyndir okkar. Þaðan eru á ný send boð til ákveðins
frumuhóps í fremra heilahryggnum, sem stjórnar vöðva-
hreyfingum líkamans, en þaðan er enn send skipun til
vöðva þeirra, er augnalokin hreyfa, að loka auganu. Lok-
un augans verður því svörun okkar við högginu, vakan-
um. Allt þetta gerist í svo skjótri svipan, að augað lok-
ast í tíma, áður en höggið nær því. Þessi boðleið, sem
lýst hefur verið, nefnist viðbragðshringur, og er gerð úr
taugafrumum, sem eru sjálfstæðar einingar hver fyrir
sig, þaktar yfirborði, sem við getum nefnt frumuhýði.
Hið næsta, sem bíður okkar, er að átta sig á því, hvað
raunverulega gerist, þegar talað er um boðflutning eftir
taug. Sú starfsemi er grundvölluð á því, að hver fruma
er hlaðin ákveðnum rafmagnsforða, sem á rætur sínar að
rekja til þess efnafræðilega mismunar, sem ríkir innan
frumunnar og utan, og hlutverk frumuhýðisins er m. a.
að viðhalda þeim mismun. Hverjum, sem notað hefur raf-
hlöður í bifreið eða útvarpi, er þessi einangrun auðskilin.
46
Heilbrigt líf