Heilbrigt líf - 01.12.1956, Blaðsíða 30
gamalt, hefur frumþykknið vaxið aftur fyrir aftasta barna-
tannarkímið og hefst með því vöxtur og myndun full-
orðinsjaxlanna. Örla tekur á fremsta afturjaxlinn, þegar
fóstrið er 16 cm á lengd, eða fjögurra mánaða. Miðaftur-
jaxlinn verður til á fyrsta æviári barnsins og vísdóms-
tönnin byrjar að myndast, þegar barnið er fjögurra til
fimm ára. Form glerungsmóðurinnar ræður sköpulagi gler-
ungs og tannbeins, sem myndast undir honum, þ. e. tann-
krónunnar.
Króna framtannanna er allbreið og meitillaga. Jaxlarn-
ir hafa breiða krónu með tveimur til sex hnjótum, sem
skaga upp úr henni eins og hnjúkar. Skörð eru á milli
þeirra. Augntennur hafa breiða, kúpta krónu með þykk-
um glerungi. Glerungs- og tannbeinsmyndun hefst á mörk-
um glerungs og tannbeins, efst í hverri tannkrónu og þar
verður glerungslagið lang þykkast.
Myndun tannrótarinnar byrjar þegar krónan er hér um
bil fullmynduð. Hún hefst á mörkum krónu og rótar. Út
frá jöðrum glerungsmóðurinnar vex rótarslíðrið, sem
myndast við samruna innsta og yzta lags glerungsmóður-
innar. Rótin vex um leið og tannbeinsmyndunin hefst inn-
an við rótarslíðrið. Frumur þess hafa þann eiginleika að
breyta bandvefsfrumunum, sem næst því liggja, í tann-
beinsfrumur. Vöxtur rótarslíðursins er örastur neðst og
þar stefna jaðrar þess saman. Þar sem rótarbeinsmyndun
er byrjuð, vex bandvefurinn utan við rótarslíðrið inn að
rótinni, gerir skörð í slíðrið og ryður því frá henni. Næst
henni myndast úr honum frumur, sem taka að gera sem-
ent. Það setzt utan á rótarbeinið og myndar yfirborð rót-
arinnar.
Lokastigi rótarmyndunarinnar er náð, þegar bandvefur-
inn innan í tönninni vex örar en sjálft slíðrið. Þá réttist
úr neðsta hluta þess. Að neðan er op í slíðrinu, sem síð-
ar verður að rótargöngum. Um þau fara æðar og taugar
68
Heilbrigt líf