Heilbrigt líf - 01.12.1956, Blaðsíða 28
fremst í hvorum kjálka. Bendvefurinn undir því fer einnig
að vaxa. Þegar fram líða stundir tekur frumþykknið að
mynda smáhnúða, alls tíu að tölu, í hvorum kjálka. Þeir
samsvara barnatönnunum, sem myndazt síðar úr þeim. Úr
þessu verður vöxturinn örari og myndbreytingar tann-
kímsins fleiri og skýrari.
Húðfrumurnar í jaðri frumþykknisins vaxa hraðar og
ryðja sér braut niður í kjálkann, unz húðvefurinn um-
lykur örsmáan bandvefsnabba. Þær halda áfram að vaxa
dýpra þangað til húðvefurinn er orðinn eins og hjálmur,
sem hvolfist yfir bandvefsnabbann. Húðþykkni þetta nefn-
ist glerungsmóðir. Neðstu frumurnar í því raða sér í þétta
breiðu. Þær eru nefndar glerungsfrumur. Þær eru allar
ílangar og sexstrendar, líkt og stuðlar í bergi. Þegar þær
eru fullmyndaðar breytast bandvefsfrumurnar, sem næst
þeim liggja í bandvefsnabbanum, í tannbeinsmyndandi
frumur. Skömmu áður en tönnin byrjar að beingerast,
þynnist glerungsmóðirin um miðbikið og æðaríkur band-
vefur vex inn í hana. Með æðunum berst aukin næring til
hins ört vaxandi vefs.
Frumþykknið, sem áður hefur verið minnst á, heldur
áfram að vaxa út frá hverju tannkími og myndast þá ör-
smár húðvefsseppi, en hann er fyrsti vísir fullorðinstann-
ar. Finnast nú í kjálkunum tuttugu barnatannakím og
innan við þau jafnmargir vísar að fullorðinstönnum. Þeir
svara til framtanna, augntannar og framjaxla. Frum-
þykknið heldur áfram að vaxa aftur eftir gómnum og frá
þessuin aftasta hluta þess koma síðar þrjú jaxlatannkím
í hverjum gómhelmingi. Frumþykknið hverfur að fullu
með tímanum.
Fyrsti vísir fullorðinstanna sýnir sig hjá fimm mánaða
fóstri, með myndun miðframtannarkímsins. Hjá tíu mán-
aða fóstri er kominn vísir að aftari framjaxli. Þegar
fóstrið er 14 cm langt, þ. e. þriggja til fjögurra mánaða
66
Heilbrigt líf