Heilbrigt líf - 01.12.1956, Blaðsíða 20
okkur bendingar um eðli hugsanastarfseminnar. Frá heil-
um dýra, jafnvel þeirra, sem skynsömust eru talin, finn-
um við aðeins fá og dreifð merki um þessa æðri starf-
semi, þótt leitað sé með viðkvæmustu tækjum.
Enn verðum við að grípa til samh'kinga. Á síðustu ár-
um hafa verið gerðar ýmsar vélar til þess að reikna út
upphæðir eða skrásetja tölvísindi á annan hátt, geyma
niðurstöðurnar og skila þeim aftur, þegar þeirra er þörf.
Þessi aðferð er ekki ný af nálinni, ljósmyndarinn, málar-
inn og maðurinn, sem semur spjaldskrána, koma allir
þekkingu fyrir til geymslu með mismunandi aðferðum, unz
hennar er síðar þörf. Af þessum einfaldari tækjum er
spjaldskráin einna notinvirkust, við getum útbúið spjöld-
in á ýmsan hátt með götum og skörðum, sem gera okkur
kleift að draga út í einni svipan öll spjöld, þar sem skráð
eru ákveðin séreinkenni. En spjaldskrár eru eigi að síður
seinvirkar og fyrirferðarmiklar, og á síðari árum hafa
menn komizt upp á lag með að gera vélar, þar sem raun-
veruleg skráning eða myndgerð fer ekki fram, heldur
ákveðin spennubreyting, rafsveifla, sem hægt er að
kalla fram á ný og skila þeim fróðleik, sem lagður var
til geymslu upphaflega með hinni sömu rafsveiflu.
Og fyrst um sinn getum við hugsað okkur heilann eins
og risavaxna rafvél, þar sem fróðleikur er færður
inn með rafmagni og fyrndur til síðari tíma notkunar.
Eigi að síður verðum við að muna, að þetta er aðeins
bráðabirgðarlíking. Stærðarhlutföllin ein færa okkur skjótt
heim sanninn um það. Þær reikningsvélar, sem beztar
hafa gerðar verið og ná í raun og veru undursamlegum
afköstum, nota um 23 þúsund rafkerti og eyða mik-
illi raforku. En heili mannsins, sem hefur 15 þúsund millj-
ónir fruma, notar aðeins um einn tíunda hluta volts til
allra þarfa sinna. Ef gera ætti reikningsvél með jafn-
mörgum rafkertum og frumur eru í heilanum, þyrfti hún
58
Heilbrigt líf