Heilbrigt líf - 01.12.1956, Blaðsíða 48
Sauðárkróksdeild.
Eins og áður vann deildin aðallega að fjársöfnun fyrir sig og
Rauða kross Islands. Var haldin skemmtisamkoma á öskudaginn
til fjáröflunar og seld merki R. K. í. Merki seldust fyrir kr. 807.00.
Félögum hefur nú fjölgað aftur og voru í árslok 126. Stjómin
hélt á árinu 2 hókfærða fundi auk aðalfundar.
Afrit af endurskoðuðum reikningum deildarinnar fylgir hér með.
Skuldlaus eign í árslok nemur kr. 29.792.99, þar af í bílasjóði
kr. 13.646.03.
Stjórn deildarinnar var endurkosin og skipa hana:
Torfi Bjarnason, héraðslæknir, formaður
Helgi Konráðsson, prófastur, varaformaður
Jón Þ. Björnsson, frv. skólastjóri, ritari
Ole Bang, lyfsali, gjaldkeri
Hallfríður Jónsdóttir, yfirhjúkrunarkona
María Magnúsdóttir, Ijósmóðir
Haraldur Júlíusson, kaupmaður.
Vestmannaeyjadeild.
Deildin starfaði með líkum hætti og áður að hinum ýmsu áhuga-
málum sínum. — Þann 6. júní andaðist Ólafur Ó. Lárusson,
fyrrv. formaður deildarinnar og heiðursfélagi R. K. f. eftir tillög-
um deildarinnar hér.
Sjúkrabifreiðin þykir hér hið mesta þing, en fyrirsjáanlegur er
erfiður rekstur hennar.
Önnur baráttumál deildarinnar eru hin sömu og fyrr. Seint
sækist að reisa sóttvamarhús, og gufubaðstofunni miðar lítt áfram
vegna þess, hve bygging hins mikla stórhýsis templara gengur hér
seint, en sem kunnugt er, er gert ráð fyrir, að gufubaðstofan verði
í kjallara þess húss.
Deildin hefur fengið því áorkað við sjúkrahús bæjarins, að þar
er nú ávallt a. m. k. eitt herbergi tilbúið fyrir fæðandi konur, en
þyrftu að vera fleiri, og auk þess sér stofur fyrir sængurkonur
eftir fæðingar, svo að þær þyrftu ekki að vera með bömin innan um
alls konar sjúklinga.
í febrúar var, eftir tilmælum R. K. í., hafin söfnun til nauð-
staddra á flóðastöðvum Vestur-Evrópu, svo nefnd Hollandssöfnun,
sem gekk ágætlega. Söfnuðust hér alls kr. 24.540.00, sem sent
hefur verið R. K. í.
Merkjasala deildarinnar fór fram á öskudaginn, og stóð fjár-
málaritari deildarinnar, hr. Lýður Brynjólfsson, kennari, fyrir
henni. Inn komu kr. 2.860.00, og þar af gekk samkvæmt lögum
félagsins helmingurinn til R. K. í. eða kr. 1.430.00, og hefur það
verið sent þangað.
86
Heilbrigt líf