Heilbrigt líf - 01.12.1956, Blaðsíða 15

Heilbrigt líf - 01.12.1956, Blaðsíða 15
frumuhóp X og frumuhóp Y, þegar ég hitti þennan mann fyrir norðan, verður allt önnur, ef ég sé hann á Piccadilly. Heildarkerfunum ber því ekki saman, og ég segist varla ætla að þekkja Melrakkasléttumanninn. Og hann gefur þegar hina réttu skýringu, að ég hafi naum- ast átt hans von þarna úti á Piccadilly. En heilafrumur mínar hafa nú tileinkað sér nýja rafsveiflu, sem lýtur að útvíkkunum á þeim staðsetningum, sem ég hef hingað til átt í kerfum mínum um Melrakkasléttumanninn. Ef til vill nægir þetta til þess að gefa í grófum drátt- um hugmynd um viðfangsefni og starfsaðferðir hinnar miklu reikningsvélar okkar, heilabarkarins, hvernig hann raðar saman ákvörðunum hvers tíma í samræmi við reynslu fortíðarinnar og heldur þeim til haga til frekari tilvitnana, samanburða og ályktana. Með kerfisbundnum endurtekningum skapast lögmál um áreiðanleika, sem verða því tryggari, sem endurtekningarnar verða fleiri. Þótt hver fruma í heilaberkinum starfi sem einstakling- ur, verður hin stöðuga samræmd þess valdandi, að í reynd gætir mest frumuhópa og kerfa. Við eigum eftir að sjá það enn betur, hve kerfisbundin starfsemi er ríkur þáttur í öllu heilastarfinu. Sú trú var löngum ríkjandi, að heilinn væri eitt af þeim líffærum, sem eigi mætti snerta án þess að valda fjör- tjóni. Við höfum þegar séð, hversu vekja má heilastöðvar með rafstraumi, en þaðan er skrefið stutt yfir í skurðaðgerðir. Og vafalaust hafið þið öll heyrt getið um skurðaðgerðir á heilanum og jafnvel líka um þær deilur, sem staðið hafa um ágæti slíkra aðgerða, einkum fyrst eftir að þær hófust. Lítum sem snöggvast á hvað gerist í aðalatriðunum við heilaaðgerðir. Ef numinn er á brott hluti af vöðvahreyf- ingasvæði heilans öðrum megin, tapast þær hreyfingar á mótsettri hlið, sem stjórnað er frá viðkomandi svæði. Heilbrigt líf 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Heilbrigt líf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigt líf
https://timarit.is/publication/1835

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.