Heilbrigt líf - 01.12.1956, Side 14
gefa við ertingu, og í öðru lagi svokölluð sambandssvæði,
þar sem erting framkallar margbreytilegar tilfinningar,
minningar og samsett huglæg áhrif.
En einmitt í þessum svæðum fer fram sú skipulagning
heilastarfseminnar, sem gerir hagnýtingu allrar reynslu
og þekkingar svo auðvelda, sem raun ber vitni. Þessi þjón-
usta er sístarfandi í vöku dagsins, skipuleggj andi líf okk-
ar í atburðaheildir. Ef við göngum á götunni og sjáum
vin okkar koma á móti okkur, þekkjum við hann, nefnum
nafn hans og nemum staðar, allt í einu vetfangi og á svo
skjótri stund, að við frekari aðgæzlu finnst okkur naum-
ast, að um nokkrar samsettar eða flóknar athafnir hafi
verið að ræða. En á þessu augabragði hefur eigi að síður
farið fram sá boðflutningur sjónarinnar, sem áður er
minnzt á, frá sjónhimnu til heilabarkar, þaðan til þeirra
stöðva, þar sem við geymum vitneskjur okkar eins og
reikningsvélin geymir tölur, sem þegar hafa verið skráð-
ar inn á hana, en að því leyti ólíkur, að hér er um að
ræða kerfi af ályktunum um ytra útlit mannsins, hreyf-
ingar hans, staðsetningu í rúmi og tíma o. s. frv. í skjótri
svipan fer fram samanburður á öllum þessum aðalatrið-
um, og niðurstaðan, sem fæst, sker úr því, hvort hér sé
hinn ákveðni vinur á ferð. Allt þetta verður að gerast,
áður en við heilsum vini okkar.
Ef nú skynjunarmynd sú, sem við höfum af vini okkar
á þessu augabragði er í ósamræmi við það kerfi, sem
fyrir er í heilastöðvum okkar, þá falla þessar tvær
myndir ekki saman, örugg niðurstaða fæst ekki og við
erum í efa. Ef við sjáum kunningja okkar af Melrakka-
sléttu, sem sjaldan fór út af bæ, allt í einu ljóslifandi á
götu í Lundúnum, þá rísa upp þeir stjórnarfulltrúar heila
okkar, sem sérstaklega hafa með höndum eftirlit með
ferðum þeirra á Melrakkasléttunni, og mótmæla. Sú
ákveðna rafsveifla, sem alltaf var söm og jöfn í
52
Heilbrigt líf