Heilbrigt líf - 01.12.1956, Síða 18
náttúrunnar að forðast óþarfa útflúr, þar sem um lífið
er að tefla. Andardráttarstöðin er smá, um hana liggja
tiltölulega fáar taugabrautir og hún er fjarri helztu
blæðingastöðum heilans. Og sem betur fer verðum við
hennar sjaldan vör, þar til klukkan kallar.
í heilagrunninum sjálfum, ofan við heilahnoðað, er ann-
að svæði, sem er fullkomin andstæða nágranna síns,
andardráttarstöðvarinnar. Þessi hluti, sem nefnist hypo-
thalamus og við getum nefnt miðheilagrunn, er aðeins
hálfrannsakað völundarhús freistandi möguleika. Hér fara
fram margar þær athafnir heilans, sem gera okkur lífið
súrt eða sætt eftir atvikum. Héðan er hita líkamans stjórn-
að, hér á matarlyst okkar aðalstöðvar sínar, og hér er
sú stjórnarskrifstofa, sem mestu ræður um það, hvort
þið spengilegu yngismeyjar, haldið yndisþokka ykkar
granna vaxtar fram á ömmualdurinn.
Á þessum heilastað er mikil völundarsmíð, sem drýgst
ræður starfi okkar og hvíld, hér erum við latir og syfjaðir,
fjörugir og sprækir eftir atvikum. Og eftir því sem pró-
fessor Kennedy segir okkur, þá liggja okkar siðferðis-
legu kostir og lestir ekki sízt á þessum slóðum, og við,
sem stundum föllum fyrir freistingum lífsins, skjótum
okkur því bak við þetta víravirki af heilafrumum og
kennum þeim um, þegar dagur hinna andlegu timbur-
manna rennur.
Sú vitneskja, sem við höfum um þessi svæði, er
þannig til komin, að í ákveðnum sjúkdómum koma
fram skemmdir í frumuhópum á þessum slóðum, og eftir-
köst sjúkdómanna eru meðal annars í því fólgin, að sjúkl-
ingurinn verður siðferðislega breyttur, einkum ef um er
að ræða börn, sem enn eru á þroskaskeiði tilfinningalega.
Þau geta orðið grimm, óeirin, kærulaus gagnvart tilfinn-
ingum annarra og tekið upp andþjóðfélagslegar athafnir.
Ég skal láta þess getið hér, að lesendur mínir skyldu
56
Heilbrigt líf