Heilbrigt líf - 01.12.1956, Síða 21
stærra hús en nokkru sinni hefur verið reist á þessari
jörð og marga Dettifossa til þess að knýja hana og kæla.
Samt sem áður yrði hún aldrei fær um að taka við öllum
störfum heilans.
Lítum nú sem snöggvast á rafmagnsstarfsemi heilans.
Árið 1928 uppgötvaðist það, að ef tengdar eru leiðslur við
yfirborð höfuðsins og síðan við magnara og sveiflumæli,
kemur í Ijós, að stöðugar rafsveiflur eiga sér stað í heil-
anum á hverjum manni, alla stund meðan hann lifir.
Þetta rifjar upp fyrir okkur það, sem áður er á minnzt,
að boðflutningur taugabrautanna fer fram með rafspennu-
breytingum. Hér er munurinn aðeins sá, að rafbylgjurnar
eru ekki bundnar ákveðnum taugabrautum, heldur breið-
ast út um yfirborð heilans eins og bárur yfir sæ. Frek-
ari rannsókn leiddi skjótt í ljós, að rafbylgjur þessar stóðu
í beinu sambandi við starfsemi heilafrumanna, og pró-
fessor Adrian í Cambridge, sem mest og bezt hefur rann-
sakað þetta fyrirbæri, heldur því fram, að rafbylgjurnar
stafi beinlínis af samtíma starfsemi hópa af heilafrum-
um. Enn á ný sjáum við hér hina kerfisbundnu starfsemi
heilans. Þegar maðurinn sefur eða sekkur sér niður í dag-
drauma, getum við með góðri samvizku álitið, að hóp-
milljónum af heilafrumum gefist bezt tækifæri til þess
að samræma starfsemi sína, þá starfi hljómsveitin ótrufl-
uð. Við sjáum nú máli okkar til styrktar, að einmitt í
þessu ástandi sýnir línurit heilans okkur skipulagðar, ró-
iegar bylgjur, þar sem fá en skýr einkenni eru auðsæ. Ef
við gefum manninum dæmi að leysa í huganum, breytist
bylgjustarfsemin í einu vetfangi, heildirnar leysast upp í
smærri undirdeildir, margvísleg afbrigði koma fram í
línuritinu, þögnin og kyrrðin er rofin. Það er sem við
sjáum fyrir hugskotssjónum okkar, hvernig hver einstak-
ur þátttakandi hljómsveitarinnar, sem hingað til hefur
leikið fáar rólegar nótur, þær sömu í öllum röddum, hrekk-
Heilbrigt líf
59