Heilbrigt líf - 01.12.1956, Side 32
stað eða jafnvel alveg. Stundum myndazt hins vegar auka-
tennur.
Verði vaxtartruflanir í vefjum tannkímsins, koma fram
missmíð á einstökum pörtum tannanna, t. d. geta þá mynd-
azt aukahnjótar, fleiri rætur, einstakir hlutar geta runnið
saman eða þá að einhverja parta vantar. Stundum vill
það til, að tannbeinsmyndun verður ófullkomin. Þá verður
tannbeinið óreglulegt, þótt form tannarinnar haldist og
glerungur verði eðlilegur. Við A-vítamínskort í líkama
fósturs eða barns truflast starfsemi frumanna, sem mynda
glerunginn og veldur það ófullkominni tannbeinsmyndun.
Vaxtartruflanir tannkímsins orsakast stundum af sára-
sótt, og þegar úr því verður tönn, koma fram sérkennileg
missmíði á henni. Kalk og vítamínskortur kemst sjaldan
á svo hátt stig um meðgöngutímann, að vöxtur og myndun
tannarinnar truflist af því. Öðru máli gegnir með móður-
ina, sem gengur með fóstrið. Það er kröfuhart og tekur
stöðugt til sín næringu, sölt og vítamín frá móðurinni.
Skorti hana nauðsynleg efni í fæðunni, kemur það fram á
henni sem efnaskortssjúkdómur í einhverri mynd. Van-
færar konur skulu því sjálfra sín vegna gæta þess, að nóg
sé af hinum nauðsynlegu næringarefnum, söltum og víta-
mínum í fæðunni og láta lækni fylgjast með heilsufari
sínu undir þessum kringumstæðum.
Efnaskiptasjúkdómar hafa ekki áhrif á stærð eða lag
tannkrónunnar, nema þeir geri vart við sig hjá fóstrinu
eða á fyrsta aldursári. Hins vegar getur rótarvöxturinn
truflast af efnaskiptasjúkdómum, sem síðar kunna að
koma.
70
Heilbrigt líf