Heilbrigt líf - 01.12.1956, Qupperneq 39
til fallið, að ævifélögum R. K. í. væru látin í té skírteini,
og beindi því til stjómarinnar að athuga það mál.
Seheving Thorsteinsson kvaðst hlynntur þessu nýmæli og
kvað æskilegt, að unnið væri að því að fjölga ævifélögum og
einnig, að ýms fyrirtæki styrktu á þennan hátt R. K. I. Var
þeim Scheving Thorsteinsson, Sæmundi Stefánssyni og Guido
Bernhöft falið að athuga á hvern hátt mætti helzt koma
þessu í framkvæmd.
Fundarstjóri þakkaði fulltrúum komuna og Hafnarfjarðar-
deild móttökur og sagði síðan fundi slitið.
Sjúkraskýlið í Sandgerði.
Sjúkraskýlið var opið til afnota yfir vetrarvertíðina frá 15.
janúar til 27. maí.
6 sjúklingar lágu þar rúmfastir í samtals 62 daga. Af þeim út-
skrifuðust 5, en ein áttræð kona var send á St. Josepsspítala í
Hafnarfirði, þegar að því kom að loka þyrfti Sjúkraskýlinu.
Hjúkrunarkonan fór í 518 sjúkravitjanir og hafði einnig eftirlit
með hreinlæti skólabarna.
868 hjúkrunaraðgerðir voru gerðar á sjómönnum og öðru að-
komufólki, en auk þess höfðu Keflavíkurlæknarnir viðtalstíma í
Sjúkraskýlinu einu sinni í viku, 2 klst. í senn.
Böð urðu 940 talsins, og voru það aðallega sjómenn, sem nutu
þeirra.
Eftirlit með Sjúkraskýlinu annaðist Karl Magnússon, héraðs-
læknir, en forstöðukona var Margrét Jóhannesdóttir, hjúkrunar-
kona R. K. I. Hafði hún eina stúlku sér til aðstoðar.
Sjómenn og útgerðarmenn hafa nú sem fyrr styrkt starfsemina
með fjárframlögum.
Nauðsyn ber til þess, að nokkrar breytingar verði gerðar á húsinu
og það lagfært, en sökum fjárskorts hefur þess ekki verið kostur
að halda húsinu við sem skyldi.
Frárennsli hefur verið endurbætt og hefur hreppsfélagið annazt
framkvæmdir og staðið straum af þeim.
Kvenfélagskonur í Sandgerði hafa í samráði við R. K. I. starfað
að undirbúningi ljósbaða í sjúkraskýlinu. Hefur félagið keypt
vandaðan ljósalampa, og öðrum undirbúningi er svo langt komið,
að þess má vænta að hefja megi ljósböð næsta haust.
Björn Rögnvaldsson, eftirlitsmaður opinberra bygginga, hefur
athugað sjúkraskýlið, og leggur til að eftirfarandi breytingar og
endurbætur verði gerðar á því:
KjallaH. Herbergi við vatnsgeymi verði notað fyrir biðherbergi,
vatnsgeymirinn tæmdur og innréttaður fyrir búningsherbergi, hurð
Heilbrigt líf
77