Heilbrigt líf - 01.12.1956, Síða 43

Heilbrigt líf - 01.12.1956, Síða 43
Auk þess barst nýr og notaður fatnaður frá Eauða kross deildum utan Reykjavíkur og fjölda einstaklinga í Reykjavík. Þá ber að geta þess sérstaklega, að Eimskipafélag íslands h. f. hefur flutt allar vörurnar endurgjaldslaust til útlanda. Reykjavík, 22. apríl 1952. Rauði kross íslands. Schving Thorsteinsson. Starfsemi deilda. AkranesdeilcL. Aðalfundur deildarinnar var haldinn föstudaginn 4. apríl. Dag- skrá fundarins var samkvæmt félagslögum. Kjörnefnd sú, sem skipuð hafði verið, lagði til, að stjórnin yrði endurkosin. Var það gert. Endurskoðendur voru endurkosnir, þeir Ingólfur Jónsson og Jón Sigmundsson. Fulltrúi til að mæta á aðalfundi R. K. í. var kosinn Árni Árnason, héraðslæknir, og til vara Ólafur B. Bjöms- son. Stjórnin skipti með sér verkum á sama hátt og undanfarið ár. Samkvæmt samþykkt aðalfundar tók stjórnin að afla sér upplýs- inga um rekstur sjúkrabifreiða og að athuga nánar, hver tilhögun myndi heppilegust varðandi umráð og rekstur bifreiðarinnar fram- vegis. Að þeirri athugun lokinni kvaddi stjórnin til aukafundar í deild- inni þ. 4. sept., að Félagsheimili templara. Álit stjórnarinnar var í stuttu máli þetta: R. K. deildirnar reka sjúkrabifreiðir sínar yfirleitt sjálfar, en með aðstoð ýmissa aðila, þar eð reksturinn ber sig ekki. Það má því ætla, að ef deildin ræki bifreiðina, þá yrði það henni sá fjárhagslegur haggi, að hún myndi ekki hafa fé aflögu til annars, og yrði rekstur bifreiðarinnar þá eina verkefni deildarinnar um ófyrirsjáanlegan tíma. Það er hvorttveggja, að stjórnin er þessu ekki samþykk, svo hitt, að hún hefur jafnan verið á þeirri skoðun, að frá upphafi hafi verið unnið að útvegun bifreiðarinnar í því skyni að afhenda hana bænum, og þá sjúkrahúsinu sérstaklega, til eignar og afnota. Hefur stjórnin verið því samþykk. Tillaga stjórnarinnar í þessa átt var samþykkt á fundinum. Stjórnin ritaði síðan bæjarstjóm þ. 15. sept., þar sem hún tilkynnti þessa ákvörðun deildarinnar og skýrði frá þeim skilyrðum, sem jafnframt voru sett, en þau voru þessi: 1. Að séð verði um góða geymslu fyrir bifreiðina. 2. Að bifreiðinni verði vel við haldið að dómi ökumanns. Heilbrigt líf 6 81

x

Heilbrigt líf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigt líf
https://timarit.is/publication/1835

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.