Heilbrigt líf - 01.12.1956, Side 47
Reykj avílcurdeild.
Á árinu var fullgert barnaheimili E. K. f. að Laugarási, Bisk-
upstungum. Rak deildin þar sumardvalarheimili fyrir börn um 8
vikna tíma.
Á heimilinu dvöldu 110—120 börn. Auk þess hafði deildin 60
böm í sumardvöl að barnaheimilinu að Silungapolli, 8 vikna tíma.
Eins og undanfarin ár starfrækti deildin 2 sjúkrabifreiðar, og
annaðist Slökkvistöð Reykjavíkur sjúkraflutningana á vegum deild-
arinnar. Árið 1952 voru sjúkraflutningar með bifreiðum deildar-
innar sem hér segir:
Innanbæjarflutningar........ 2939
Utanbæjarflutningar......... 92
Flutningar vegna slysa . . .. 142
Alls 3173
Á öskudaginn annaðist deildin sölu á merkjum R. K. í. í Reykja-
vík. Söfnuðust alls kr. 76.000.00. Þar af var R. K. í. greitt kr.
38.000.00.
Af öðrum málum, sem deildin hefur haft til athugunar og um-
ræðu, eru þessi helzt:
1. Athugun á starfrækslu sumardvalarheimilis fyrir vangefin böm.
2. Að koma upp nokkrum birgðum nauðsynlegustu hjálpar- og
hjúkrunartækja.
3. Þá var samþykkt, að deildin beiti sér fyrir viðtækri kennslu
í hjálp í viðlögum, meðal annars blóðgjöfum. Samþykkt var
að veita til þessarar starfsemi allt að kr. 10.000.00. Borgarlæknir
hefur þegar átt nokkrar viðræður um málið við Elías Eyvindsson,
lækni, forstöðumann væntanlegs blóðbanka, og er hann fús til
að taka að sér stjórn kennslunnar.
Félagar í árslok voru 2008 ársfélagar og 202 ævifélagar. Stjórnin
hélt 8 fundi á árinu.
Stjóm deildarinnar skipa nú:
Jón Auðuns, dómkirkjuprestur, formaður
Gísli Jónasson, skólastjóri, ritari
Guðrún Bjarnadóttir, hjúkrunarkona, féhirðir
Jón Sigurðsson, borgarlæknir
Jónas B. Jónsson, fræðslufulltrúi
Óli J. Ólason, stórkaupmaður
Jón Helgason, kaupmaður.
Varastjórn:
Margrét Jóhannesdóttir, hjúkrunarkona
Magnús Sch. Thorsteinsson, frkvstj.
Endurskoðendur:
Víglundur Möller, Magnús Vigfússon.
Heilbrigt líf
85