Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Side 23
23
Sigþór Árni Heimisson
30 ára, hann
Hver er þín íþróttasaga?
Akureyri handboltafélag og fyrsti leikmaður
endurstofnaðs KA. Byrjaði í meistaraflokki 15/16 ára
gamall og spilaði með meistaraflokki þar til ég hætti 27
ára. Við tókum einhvern titil með AK en það sem
stend ur upp úr er að koma KA aftur í efstu deild og
halda okkur þar.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
34 ára, hún @gunnhilduryrsa
Hver er þín íþróttasaga?
Þegar ég var yngri skráði ég mig í flestar íþróttir,
fótbolta, körfubolta, ballet, karate, hafnabolta, frjálsar
og handbolta, en fótbolti var alltaf númer eitt og nú í dag
hef ég æft fótbolta í 27 ár. Ég er alin upp hjá Stjörnunni
en fór svo út í atvinnumennsku 2013 og var í henni í
10 ár. Fyrstu fimm árin var ég í Noregi og svo fimm ár í
Bandaríkjunum. Ég á að baki 100 leiki með A-landsliðinu
og stærstu afrekin þar voru að komast á EM 2017 og
2022 og svo að vinna Þýskaland úti í undankeppni HM.
Með Stjörnunni stendur helst upp úr fyrsti titillinn með
félaginu 2011, þegar við urðum Íslandsmeistarar, og árið
á eftir þegar við urðum bikarmeistarar.
Magnús Orri Arnarson
22 ára, hann @maggiklipp
Hver er þín íþróttasaga?
Ég hef verið í fimleikum frá því ég var fimm ára gamall.
Ég byrjaði að æfa hjá fimleikadeild Keflavíkur árið 2007
og hef verið þar síðan. Ég æfi fimleika með Special
Olympics og hef unnið Íslandsmeistaratitil átta sinnum.
Ég hef einnig farið á Heimsleika Special Olympics sem
haldnir voru í Abu Dhabi árið 2019. Þar keppti ég við þá
bestu á mótinu og hafnaði í 4., 5., 6. og 7. sæti á öllum
áhöldum sem er mjög góður árangur miðað við að ég var
allan tímann að keppa við þá bestu.
Ísold Klara Felixdóttir
19 ára, hún/hán
@isoldklarafel og @fylkirkarate
Hver er þín íþróttasaga?
Ég hef æft karate með karatedeild Fylkis síðan haustið
2015. Ég er í landsliðinu og hef verið í nokkur ár og farið
í nokkrar landsliðsferðir. Árið 2022 var ég valin Fylkis-
kona ársins og ég varð smáþjóðameistari í tveim flokkum
það sama ár og árið 2018 varð ég Íslandsmeistari. Ég
hef verið að þjálfa með félaginu í 4 ár og það er svo
frábært að sjá þessa krakka stækka og bæta sig og svo
sérstaklega þegar þau fara að keppa. Ég þjálfaði einn
fyrir ÍM unglinga og hann tók titilinn. Það var svo góð
tilfinning að sjá hann svona ánægðan.