Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Page 27
27
Packer:
Það er ekki mikið talað um packera
en þeir eru til þess gerðir að hafa í
buxunum til að líkja að einhverju leyti
eftir bæði tilfinningunni og útlitinu af því
að vera með typpi. Rétt eins og typpi
koma packerar í öllum stærðum og
gerðum. Þeir eru oft úr mjúku sílíkoni
en geta líka verið úr einhvers konar
textíl eða svampi og svo má bara nota
sokkapar. Það er líka hægt að finna
packera sem eru hannaðir til að hægt
sé að pissa með þeim standandi
(á ensku er talað um STP sem stendur
fyrir stand to pee) og packera sem
má líka nota í kynlífi (á ensku er
gjarnan talað um pack and play). Það
hentar sumum að setja hann bara í
nærbuxurnar en það eru líka til lausnir
til að ganga um með packer sem
sumum þykja þægilegri, þar má nefna
nærbuxur með vasa fyrir packer eða
vasa sem hægt er að festa á nærbuxur
til að setja packerinn í. Það er líka hægt
að nota áðurnefnt teip til að festa
packer.
StrapOn:
Strap-on er vinsælt kynlífstæki,
sérstaklega meðal þeirra sem eru ekki
með typpi. Eins og annað sem hér
hefur verið fjallað um eru til endalaust
margar gerðir af strap-on, allt frá
fjólubláum glimmerlöðrandi dildóum
sem hvaða einhyrningur sem er gæti
verið stoltur af, yfir í mjög raunverulega
dildóa. Sömuleiðis er hægt að fá
mismunandi tegundir af harnessum, allt
frá sérstökum nærbuxum og boxerum
fyrir strap-on yfir í ólar úr leðri eða öðru
efni sem hægt er að festa utan um sig,
svo fátt eitt sé nefnt.
Tucking:
Tucking felur í sér að fela typpi þannig
að þau séu ekki sýnileg þegar klæðst
er þröngum fötum. Rétt eins og með
binderinn er mjög mikilvægt að passa
að það sé gert rétt og í hófi, því annars
er hægt að valda skaða. Tucking á
ekki að vera sársaukafullt. Það eru til
ólíkar leiðir til þess að tucka en það er
einstaklingsbundið hvað hentar fólki
best. Gaffs/þjöppunarnærbuxur eru
þröng nærföt til þess gerð að draga úr
sýnileika typpa. Þær geta virkað einar
og sér en sum tucka líka með teipi. Það
eru líka til sundföt sem eru hönnuð fyrir
tucking sem geta auðveldað sumum
sundferðir.
Einnig má nefna:
• Of stórir skór (sjúkraþjálfarinn myndi
ekki mæla með þessu)
• Inn legg í skó (til að hækka fólk)
• Skór með þykkari botn
• Smekkbuxur og hettupeysa:
Smekkbuxur eru víðar og stífar að
framan og gera brjóst mun minna
áberandi
• Lita yfirvaraskeggið með augabrúnalit
• Masc contour makeup til að draga
fram hvassari línur andlitsins
• Rakspíri
• Herranærföt
• Aukahlutir eins og úr, ermahnappar
og belti
• Sérsaumuð jakkaföt
• Hversdagsföt sem eru sérstaklega
hugsuð til að draga úr kvenlegum
línum má finna á ýmsum erlendum
vefsíðum
• Fara til rakara
• Fara í ræktina til að auka við
vöðvamassa
• Nota íþróttatopp og sundbuxur
frekar en sundbol
• Mjaðmapúðar (e. hip pads)
• Förðun
• Appelsínugulur hyljari sem
felur skeggrót betur
• Ilmvötn og krem
• Kvennærföt
• Toppar
• Hárkollur
• Gelneglur
• Mittisháar buxur
• Töskur
• Snyrta augabrúnir
• Raka sig/ekki raka sig
• Háreyðing/lazer
• Naglalakk á fingur og tær
• Göt í eyrun
• Alls kyns skart og glingur
Að lokum er vert að nefna að hægt
er að nálgast frekari upplýsingar um
það sem er nefnt hér að ofan og um
örugga notkun bæði hjá Trans Ísland
og Samtökunum ‘78.
Masc and Femme:
Tips and Tricks
There are many ways for gender
non-conforming people to validate
their gender and experience gender
euphoria or limit dysphoria. Gender-
confirming aid can help people feel
at ease in their own skin and create
a euphoric sensation.