Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Qupperneq 35
35
Vatnsberi
Þemalag: David Bowie Space Oddity
Að vera vatnsberi er eins og að vera
í sjálfskipaðri útlegð. Hýra geimveran
í gildru á plánetunni Jörð. Þú veist
ekki hversu löng þessi útlegð er en
innst inni veistu að þú valdir þetta.
Þú valdir eitthvað sem yrði basic að
utan, en heill heimur að innan. Innra
með þér er stór og mikill heimur sem
er að fæðast, heimur sem býr yfir
gífurlegum fjölbreytileika. Allir hlutir
Fiskur
Þemalag: Limahl Neverending Story
Þú horfir yfir farinn veg og allt það
besta og versta sem þú hefur áorkað.
Þú hefur brotið hluti og límt aftur saman
leikrit. Þú sérð öll mynstrin í lífi fólks og
lífinu almennt. Þú finnur þig stundum
jafn vel fjarlægjast daglegt líf í leit að
einhverju spennandi og nýju, einhverju
sem kveikir eld í hjarta þínu en virðist nú
fjarlægt Sorgin holar hjarta þitt og þú
veist ekki af hverju.
Það er nefnilega erfitt að vera hýr sál
þegar leikritið er eins og augljóst og
það er fyrir þér. Skemmtistaðirnir eru
margir orðnir líkir hver öðrum eins og
hver annar McDonalds staður.
breytast í tímans rás og eins og eitt
sinn höfðum við Barböru höfum við
núna Kiki. Einn dag mun annað taka
við og líf plánetunnar heldur áfram
eins og ekkert hafi í skorist. Lífið er
eilíf sinfónía og það sem var gamalt
verður nýtt og það sem var nýtt er núna
gamalt. Á meðan lífið flýgur áfram situr
þú á hliðarlínunni og fylgist með þínu
heittelskaða.
Það er í þessari hringiðu sem þú áttar
þig á hversu mannleg þú ert í rauninni.
Þú áttar þig á að það að vera mann-
vera er einstök gjöf sem stundum er
erfið, stundum létt, en aldrei eins. Í þeim
hvers dagslega fjöl breytileika finnur þú
sjálfa þig og áttar þig á að þú ert vera
á ferð um regnbogann.
og þú veist núna hversu viðkvæm
tilveran er í raun. Glimmergallinn er
rifinn og tættur og æskuárin að baki.
Það er vottur af tárum í augum þínum
þegar nostalgían kallar því þú veist að
góðu tímarnir munu aldrei snúa aftur.
Þótt ferðalagið sé á enda og þú hafir
kynnst körlum, konum og kvárum þá
getur þú huggað þig við að þú reyndir
þitt besta. Stundum náum við ekki
að klára allt og jafnvel þó við gerum
allt rétt þá er enn hægt að tapa. Það
er ekki veikleiki, heldur lífið. Lífið er
brothættur regnbogi sem hefur veitt
þér þínar bestu stundir og sárustu
tilfinningar. Oft hefur það verið þér
ofviða og það hafa komið stundir
sem þú veltir fyrir þér að gefast upp.
Þú ert samt enn hérna. Hinum megin
við himinhvolfin eftir langa og erfiða
þraut. Þú ert gullpotturinn við enda
regnbogans.
Þú veist upp á hár hver þú ert. Þú
gekkst veginn en jarðvegurinn gerði
þig að því sem þú ert í dag. Sársaukinn
sem þú hefur gengið í gegnum hefur
meitlað hold þitt og sálu og eftir er hið
sanna sjálf: þú.
REYKJAVÍK PRIDE
Kiki Takeover @ Sólon Skoski kabarettfolinn Tom Harlow býður í ljúfa og
leynilega kabarettkvöldstund á efri hæð Sólon.
Kvöldið er byggt upp eins og bóhemakvöld þriðja
og fjórða áratugarins þar sem listvinir buðu
skemmtikröftum að skemmta í stofunni í heima
hjá sér. Trúnó, leikir, gleði og glens og æðisleg
skemmtiatriði þar sem Tom kynnir á svið
uppáhaldsvini sína úr reykvísku kabarettsenunni.
Haldið í samstarfi við Kiki og Sólon.
Scottish show pony Tom Harlow invites you to a
bohemian speakeasy evening on the top floor of
Sólon. Cabaret, burlesque, circus in an intimate
living room floor show setting where supported
by his friends from the Reykjavík variety scene.
UPSTAIRS - FROM 9PM
2,500 ISK PRE-SALE
3.500 ISK AT THE DOOR
SÓLON ISLANDUS | BANKASTRÆTI 7A
FRÁ 11:30 | FYRIR GÖNGUNA
FROM 11:30 | PRE - PARADE
SÓLON ISLANDUS | BANKASTRÆTI 7A
MIÐABÓKANIR | RESERVE YOUR TICKET
WWW.REYKJAVIKPRIDE.IS
HARLOW'S HIDEAWAY
Thursday, August 10th
DRAG BRUNCH WITH FAYE KNÚS
Saturday, August 12th