Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Síða 36
36
SKOTLEYFI Á
HINSEGIN FÓLK
Þann 29. maí síðastliðinn skrifaði
Yoweri Museveni, forseti Úganda,
undir frum varp sem þing lands hans
hafði sam þykkt fyrr í mánuðinum.
Það ratar ekki alltaf í heims fréttirnar
þegar nýtt frumvarp er sam þykkt í
Úganda en í þetta sinn vakti málið
athygli, enda var plaggið sem Muse-
veni skrifaði undir ein allra harðasta
löggjöf gegn hinsegin fólki sem sést
hefur á heimsvísu. Löggjöf sem í
raun gefur skotleyfi á hins egin fólk
í landinu. Gerist manneskja upp vís
um það sem samkvæmt frum varpinu
kallast „samkyn hneigt athæfi“ liggja
við því ekki aðeins þungar refsingar,
heldur liggur beinlínis dauða refs ing
við því sem kallað er „gróf samkyn-
hneigð“. Það getur verið ýmis legt
samkvæmt lögunum, meðal annars
að stunda kynlíf með einhverjum sem
ítrekað hefur verið dæmdur áður fyrir
samkynhneigð. Þá varðar það allt að
tuttugu ára fangelsisvist að „upphefja“
samkynhneigð, sem getur þýtt ansi
margt, svo sem að berjast fyrir rétt-
indum eða skrifa í álíka tímarit og þú ert
að lesa núna.
Staða hinsegin fólks í Úganda var ekki
góð fyrir. Það var ólöglegt að vera
með einstaklingi af sama kyni, líkt og
raunin er í sorglega mörgum öðrum
Afríkuríkjum, en úgandska þing ið
taldi þörf á að skerpa á lög gjöfinni
og herða refsingar. Lögin bygg ja að
miklu leyti á frumvarpi sem úgand ska
þingið sam þykkti árið 2014 en var að
lokum dæmt ógilt af stjórn lagadómstól
vegna vankanta. Þau lög höfðu þá verið
harðlega fordæmd af mann réttinda-
samtökum og fjölda er lend ra ríkja.
Margir hrósuðu happi þegar þau voru
dæmd úr leik —
en nú eru þau komin aftur í enn harðari
mynd og orðin að lögum. Og aftur
hefur alþjóðasamfélagið for dæmt
laga setninguna en stjórnvöld í Úganda
standa keik á sínu.
Úganda hefur lengi verið eitt af hel stu
sam starfs ríkjum Íslands í þróunar-
samvinnu í Afríku og í höfuð borginni
Kampala er ís lenskt sendiráð, annað
af tveimur í álf unni. Önnur nor ræn ríki
hótuðu að slíta þróunar samvinnu við
Úganda eftir „anti-gay“-lögin 2014 en
það varð ekki úr. Minna hefur verið um
slíkar yfirlýsingar í þetta skiptið, enda
óljóst og umdeilt hvort það að slíta
sam starfi komi almenningi og sér í lagi
hin segin fólki í landinu að gagni.
Hina gegndarlausu heift í garð hinsegin
fólks af hálfu löggjafar valds í Úganda
má að hluta rekja til Vesturlandabúa.
Fyrstu nútíma lögin sem bönnuðu
samkynhneigð voru sett árið 1950
þegar Úganda var bresk ný lenda.
Gamlar laga setningar frá ný lendu-
tímanum móta enn lagalegt um hverfi
og dag legt líf hin segin fólks víða í
Afríku. En ein helsta ástæða heiftar-
innar sem ríkt hefur í Úganda undan-
farin ár hefur enn fremur verið beinn
útflutningur bandarískrar þjóðfélags-
og trúarumræðu til landsins. Upp
úr alda mótum, þegar bandarískt
hin segin fólk vann marga laga lega
sigra, töldu heitustu and stæðingar
hinsegin fólks í Bandaríkjunum, kristnir
íhalds menn, margir hverjir að barátta
þeirra væri töpuð á heima velli. Þessir
andstæðingar, kirkjur og samtök krist-
inna evangelista, leituðu því á önnur mið
með boðskap sinn um að hinsegin fólk
gengi gegn Guði og ógnaði fjöl skyld um,
til dæmis til Úganda.
Þar fundu evangelistar frjóan jarðveg
í íhalds sömum úgöndskum trú bræð-
rum sínum, sem voru fordómafullir fyrir
og sannfærðust fljótt um að fátt væri
mikilvægara en að berjast gegn kyn villu
til að bjarga landi og þjóð frá glötun.
Árið 2009 var þannig haldin ráð stefna
í Úganda þar sem bandarískir evan-
gelista klerkar messuðu um hættuna
sem úgöndskum börnum stafaði af
„sjúklegri“ sam kynhneigð og áróðri
hinsegin fólks. Meðal þátt takenda
var Scott Lively sem áður hafði beitt
sér gegn hinsegin fólki í Lett landi og
Rússlandi og skrifað aðdáenda bréf
til Pútíns Rússlandsforseta og lofað
hversu duglegur hann væri að of sækja
hinsegin fólk. Annar þátt takandi á
ráð stefnunni rak bælingar meðferðar-
úrræði heima í Banda ríkjunum, kostað
af hinni ramm kristnu kjúklinga keðju
Chick-Fil-A. Upp frá þessu varð Úganda
vinsæll viðkomu staður banda rískra
evangelista og orðræðan í Úganda
varð fljótt mjög öfgafull. Þing maður-
inn David Bahati, sem flutti anti-gay-
frumvarpið árið 2014, var um tíma tíður
gestur í Bandaríkjunum, þar sem hann
var meðlimur í áhrifa miklum krist num
samtökum, The Family. Hann sagði
blátt áfram við banda rískan blaða mann
að helst vildi hann myrða hverja einustu
hinsegin manneskju í Úganda. David
Bahati er ráðherra í ríkisstjórn Úganda
í dag.
Ein hverjir bandarísku evan gel ist anna
hafa síðan reynt að malda í móinn og
sagt að það hafi nú ekki verið ætlun in
að Úgandamenn beinlínis útrýmdu öllu
hinsegin fólki en skaðinn var skeður.
Og þvert á móti hafa evange listarnir
ótrauðir haldið starfi sínu áfram í Afríku.
Vera Illugadóttir
Hvað er að gerast í Úganda?