Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Side 43
43
Quinn
@thequinny5
Hán var fyrsti trans og kynsegin kepp andinn
til að vinna til verðlauna á Ólympíuleikum
þegar kana díska landsliðið í knattspyrnu
vann Svíþjóð í úrslitaleik Ólympíuleikanna
í Tó kýó árið 2021. Hán er miðju maður sem
hefur spilað 89 leiki fyrir kanadíska landsliðið
og spilar með félagsliðinu OL Reign í Seattle.
Tom Daley
@tomdaley
Hann er einn besti dýfingamaður sög-
unnar með troðfullan verðlaunaskáp af
stórmótaverðlaunum. Tom er giftur Dustin
Lance Black, sem vann Óskarsverðlaun
fyrir hinsegin myndina Milk, og eiga þeir
saman tvö börn. Utan íþróttanna er Tom
vinsæll heklari með 1,2 milljónir fylgjanda á
Instagram @madewithlovebytomdaley.
Jakub Jankto
@jakubjanktojr
Hann var fyrsti aktífi landsliðsmaðurinn í
karlaknattspyrnu til að koma út úr skáp-
num sem hommi. Jakub, sem spilar
sem miðjumaður, hefur leikið 45 leiki
fyrir tékkneska landsliðið ásamt því að
hafa spilað með Getafe, Sampdoria og
Udinese í efstu deildunum á Ítalíu og Spáni.
Hann fetar í fótspor landsliðsmannana
Thomas Hitzlsperger (Þýskalandi), Olivier
Royer (Frakklandi) og Robbie Rogers
(Bandaríkjunum) sem komu þó allir út að
ferli loknum.
Yulimar Rojas
@yulimarrojas45
Hún er besti þrístökkvari sögunnar og hefur
verið titluð „La reina del salto“ eða þrístökks-
drottningin. Yulimar er lesbía og vann fyrstu
gullverðlaun í frjálsum íþróttum Venesúela
á Ólym píu leikunum 2021. Hún hefur nýtt
sér frægðina til að berjast fyrir réttindum
hinsegin fólks í Venesúela.
Megan Rapinoe & Sue Bird
@mrapinoe og @sbird10
Ofurparið Megan og Sue eiga það sam-
eiginlegt að vera heimsklassa íþróttakonur.
Fyrirliðinn Megan hefur unnið Ballon d’Or,
orðið heims- og ólympíumeistari í fót bolta
auk þess að vera fyrsti leik maðu rinn til að
skora beint úr horn spyrnu á Ólympíuleikum.
Sue varð ólympíu meistari í körfubolta fimm
sinnum í röð og fjórfaldur heimsmeistari
ásamt því að vera fánaberi Bandaríkjanna
í Tókýó 2021.
Caster Semenya
@castersemenya800m
Hún er einn besti millivegalengda hlaupari
sög unnar og er margfaldur heims- og
ólympíu meistari. Caster hefur einnig barist
fyrir réttindum intersex keppenda í mörg ár.
Sir Lee Pearson
@sirleepearson
Frægðarsól hommans Sir Lee byrjaði að
rísa þegar Margaret Thatcher veitti honum
Children of Courage-verðlaunin þegar hann
var aðeins sex ára gamall. Hann hefur síðan
þá keppt á fimm Ólympíuleikum og unnið 14
gullverðlaun í hestaíþróttum fatlaðra. Sir Lee
getur ekki hreyft ökkla eða hné þannig að
hann notar mjaðmirnar til að stýra hestinum.
Schuyler Bailar
@pinkmantaray
Schuyler er hvað þekktastur fyrir að vera
fyrsti opinberi trans maðurinn til að keppa
í NCAA (National Collegiate Athletic Asso-
ciation) sundliðinu þar sem hann keppti fyrir
hönd Harvard. Hann hefur samhliða þessu
unnið sem fyrirlesari þar sem honum tekst
að gera fjölbreytt og flókin málefni að gengi-
leg og hrífandi.
Valentina Petrillo
@valentina_petrillo
Hún byrjaði ung að æfa frjálsar íþróttir
en hætti 14 ára gömul vegna Stargardt-
sjúkdómsins sem veldur sjónskerðingu, en
tók aftur upp hlaupaskóna 41 árs gömul og
keppir núna í flokki sjónskertra (T12) í 100
m-400 m hlaupum. Valentina var fyrsta
trans manneskjan til að keppa á Paralympic-
stórmóti og er í dag ítalskur methafi í 200 m
og 400 m hlaupi. Slagorð hennar er:
„Það er betra að vera hæg hamingjusöm kona
en óhamingjusamur fljótur karl“.
Lucas Krzikalla
@lucaskrzikalla
Hann spilar sem hægri hornamaður hjá
Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni í hand bolta,
sem er lið íslenska landsliðsmannsins
Viggós Kristjánssonar. Lucas var fyrsti
leik maður inn til að koma út úr skápnum sem
hommi á meðan á ferlinum stóð í karla-
boltanum í Þýskalandi.
Svenni er ekki bara for kunnarfagur,
blíð lyndur og bjartur heldur er hann
eins manns kross fari í hin segin fræðslu
íþrótta félaganna. Hann hefur undan farin
misseri senst íþrótta félaga á milli til
þess að fræða og minna á að hin segin
fólk er alls staðar, líka í íþróttum, og að
sýni leiki þeirra er mikil vægur. Svenni
lítur jafnt á allar fyrir myndir en hefur hér
tekið saman lista yfir nokk ur þeirra sem
vert er að minna á. Þessir einstaklingar
eru öll erlend en í blað inu má finna ör-
viðtöl við ís lensk ar fyrir myndir.
Fyrirmyndahorn Svenna Sampsted