Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Qupperneq 57
57
Listrænt hugrekki
Leikkonan: Ég þekkti Tennessee
Williams. Þegar ég var í þann mund að
fara drekkja mér í Tjörninni þá hljóp
hann til mín og sagði fullur skilnings:
„No, no, no! Don‘t do this. You are the
greatest actress in Scandinavia. Call
your friends and have them commit you
to a mental hospital, I shall go with you,
and we will share a room.“ Og þá sagði
ég: I don‘t talk to my friends, because
they have never listened to me. Let‘s
go together, into the pond, it will be art
Tennessee, we will be art, Tennessee …
– Auglýsing ársins,
Tyrfingur Tyrfingsson
Sviðslistir eru ein áhrifaríkasta leiðin
til taka pláss, mótmæla óréttlæti og
veita öðrum innsýn í okkar sögu. Við
erum að ganga í gegnum umbrota tíma-
bil og þögnin loksins rofin með látum.
Hinsegin samfélagið og ein stak lingar
hafa auðvitað gengið í gegnum skelfileg
áföll, höfnun og ofbeldi af hendi sam-
félagsins, sem hefur verið ríkjandi við-
fangsefni síðustu misseri.
En við erum meiri, stærri og stór-
brotnari heldur en samansafn af
skemm du en skemmtilegu fólki. Við
erum fólk með einstaka sýn á heiminn,
þekk ingu sem er ekki einungis byggð
á áföllum og hugmyndaauðgi sem hefur
breytt samfélaginu. Inngilding felur
ekki í sér að hin segin fólk leiki hinsegin
fólk og öfugt. Krafan hlýtur að vera að
hinsegin fólk sé sviðsett á sanngjarnan
máta, ekki sem grín eða gjörningur fyrir
gagn kynhneigða áhorfendur að njóta
eða leikara til að vinna verðlaun, og að
hin segin einstaklingar af öllum gerð um
njóti sömu réttinda og aðrir í sviðs-
listasamfélaginu.
Leiksviðið er tilbúið fyrir fleiri og fjöl-
breyttari hinsegin sögur. Áhorf endur
eru tilbúnir. Nú er að láta slag standa.
Ekki messa til kórsins. Ekki láta listina
stjórnast af áföllum. Listrænt hugrekki
er að gefa af sér, ekki taka. Þetta verður
list, við verðum list.
https://samtokin78.is/leikhusgestur/
https://leikminjasafn.is
https://kvennasogusafn.is
Queer Performing Arts in Iceland
Performing arts have been and will
conti nue to be a way for us to express
our authentic selves and take up
space. Queer people and charac ters
have always been a part of Icelandic
performing arts but remain woefully
under-researched.
Úr safni Leikminjasafns