Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Blaðsíða 58
58
Það er óumdeilanlega fátt sem hefur
haft jafn viðamikil áhrif á samfélag
samkynhneigðra karl manna á undan-
förnum árum líkt og samskipta forritið
Grindr. Það eru þó ekki allir á einu máli
innan hinsegin samfélagsins um ágæti
inn reiðar þessa miðils. Sumir telja
appelsínu gula grímu Grindr vera andlit
alls þess slæma sem plagar sam félag
sam kyn hneigðra karl manna; skorts á
raun veru legum tengslum, dóm hörku,
útlits dýrkunar og klám væðingar. Aðrir
eru á önd verðum meiði og sjá í Grindr
öruggt svæði til þess að tengjast
öðrum öfug uggum, skoða-skilja-sjá, en
fyrst og fremst að tjá og iðka holdsins
þrár í samfélagi manna sem deila því
með þeim.
En hvað í ósköpunum er
Grindr raunverulega?
Ég hef eytt (of) mörgum árum í að
rannsaka samfélag sam kyn hneigðra,
innan aka demíu og persónu lega.
Þessar stóru hneigðir mínar, náms- og
samkyn hneigð, gera það að verkum.
Þegar mér varð ljóst að flestar fræði-
greinar og rann sóknir er
varða sam kynhneigð voru
ekki unnar af hinsegin
fólki skildi ég að annars
sjónar horns var þörf.
Innan fræðanna var sam-
kyn hneigð með höndluð
að mestum hluta eins
og heteró normatífan á
það til að gera: Sam-
kyn hneigð byrjaði þar
sem gagn kyn hneigð
endaði. Sam kyn hneigð
var skil greind út frá því
sem hún var ekki, ekki út
frá því sem hún raun verulega
er. Þarna skyldi allt vera svart
og hvítt og ekki einn grár
skuggi, hvað þá fimmtíu. Frá
því að Grindr fór í loftið 2009
hefur appinu stöðugt vaxið ásmegin
og telur nú um það bil 30 milljónir
notendur á heimsvísu. Það eru án efa
neikvæðar hliðar á Grindr en það hefur
einnig fjölda kosta. Fjölmargir sem nota
Grindr til þess að komast í samband við
aðra homma hefðu ekki annars átt kost
á því. Það getur verið vegna búsetu
þeirra fjarri borgum þangað sem
samkyn hneigðir leita eða vegna þess
að að stæður þeirra leyfa þeim ekki að
lifa í kyn hneigð sinni. Ungir samkyn-
hneigðir karlmenn eru einnig í sífellt
auknum mæli að taka sín fyrstu skref
innan sam félags ins á Grindr. Appið
virkar sem eins konar æfinga svæði fyrir
þá á meðan þeir koma út úr skelinni og
aðlagast sínu sanna sjálfi. Grindr verður
þannig líka upplýsinga æð þar sem
fróðleikur, ráð og jafnvel vinátta flæðir
milli notenda. Rann sóknir hafa sýnt
að ungir karlmenn í smærri byggðum,
þar sem samkyn hneigð kann að vera
ósýnilegri, sem nota Grindr eiga það
til að hafa meira sjálfs traust og vera
öruggari með kynhneigð sína en þeir
væru ella. Upplifun notenda af því að
Grindr sé öruggt svæði er mikilvægur
þáttur í notkun þeirra á miðlinum.
Öryggið er fyrst og fremst falið í því að
geta verið full komlega samkyn hneigður
með öllu því sem fylgir án þess að eiga
á hættu að verða fyrir aðkasti. Not-
endur geti því leyft homma num í sér að
leika lausum hala án þess að ritskoða
hann eins og við gerum allt of oft í
hvers dags leika num. Einn orð heppnari
kunningja minna sagðist elska Grindr
vegna þess að þar þyrfti hann ekki að
tala tungumálið „gagnkynhneigðísku“.
Öryggis tilfinningin er þó ekki aðeins
bundin við netheima heldur líka
brúna sem appið skapar milli þess og
raunheima. Fjölmargir nota Grindr,
sér í lagi á Íslandi, sem nokkurs
konar athugunar stöð þegar þeir
eru fjarri heima högunum til þess
að sjá hvort það eru einhverjir
þeim líkir nærri. Það er lífs-
nauðsyn legt að vita af eða
geta hitt einhvern eins og
mann sjálfan á ókunnugum
stöðum eða á stærri
viðburðum í hafsjó gagn-
kynhneigðra, eins og er á
flestum stærri viðburðum.
En þrátt fyrir kosti Grindr
er appið engin útópía sem
stendur utan við raun veru-
leikann. For dómar innan
sam félags homma eru raun-
verulegir líkt og annars staðar. Útlits-
dýrkun, líkamsskömm og grunn hyggni
eru vandamál þar líkt og annars
staðar.
Texti: Guðmundur Jóhann Guðmundsson
Myndir: Hafsteinn Himinljómi Regínuson