Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Page 71
71
Í heimi sem segir trans fólki í sífellu að
tilvera þeirra sé ekki eftirsóknarverð og
jafnvel ógeðs leg er ekkert meira and-
óf en kyngleði. Samfélag sem heldur
hópum fólks niðri og notar niðrandi og
neikvæða umræðu þolir ekkert minna
en þegar við kom andi hópar endur-
skrifa eigin sögu og eigin örlög á eigin
spýtur, þegar við elskum, þegar við
brosum, þegar sjálfs mynd okkar veitir
okkur ham ingju og gleði, þegar við mót-
mælum, þegar við krefjumst breytinga,
þegar við eyðum tíma með fjöl skyldu
og vinum sem styðja okkur, þegar við
hitt umst öll saman og búum til rými þar
sem engin þarf að hafa áhyggjur af því
að vera dæmd, þegar við erum við sjálf,
án þess að biðjast afsökunar.
Kyngleði er nefnilega andóf við ríkj
andi við mið sem reyna að segja okkur
að líff ræðileg flokkun á líkama okkar
séu okkar örlög sem verða ekki um
flúin. Hún ruggar bátnum og raskar
„jafnvæginu“ sem gagnkynhneigt sís
regluveldi reynir að viðhalda.
Þrálátt stef í umræðum um trans fólk
er að við upplifum öll djúpstæðan ama,
erfið leika og depurð. Sú frásögn rímar
við þær lýsingar að við höfum „fæðst
í röngum líkama“, sem er algengt
stef í útskýringum trans fólks á sinni
upplifun. Sú upplifun er fyrir mörgum
mjög raunveruleg, enda hefur trans
fólk ekki alltaf haft tungumálið til að
lýsa sinni upplifun – hvað þá til að
lýsa henni fyrir fólki sem mun aldrei
upp lifa sambærilegar tilfinningar.
Slíkar lýsingar eru líka að mörgu leyti
ein földun á raunverulegri upplifun
trans fólks, enda er það marg slungin
og flókin upplifun að vera trans. Út-
skýringar á vitund okkar hafa því
í gegn um tíðina ekki endilega verið
skap aðar af okkur fyrir okkur, heldur
mun frekar orðið til við að reyna að
útskýra upp lifanir okkar í einfaldan
hátt fyrir meirihlutasamfélagið, svo þau
skilji og átti sig á því hvað við göngum í
gegnum. En þær skýringar sem not aðar
eru til að útskýra fyrir meiri hluta sam-
félag inu eru nánast alltaf nei kvæðar
og snúast að mörgu leyti um áföll,
erfiðleika og sorg.
Kyngleði endurheimtir og endur skapar
þá sögu sögn að trans fólk geri lítið
annað en að vorkenna sjálfu sér; hún
er andóf við þá trú að trans fólk upplifi
enda lausar þjáningar og að tilvera
þeirra sé einhverskonar harmleikur.
Kyn gleði sýnir okkur hvernig trans fólk
getur endurheimt og skapað eigin sögu
og hvernig það að vera trans er ekki
bara jákvætt heldur fallegt, einstakt og
dásamlegt. Það var ekki sorgin sem
fékk mig til að átta mig á því hver ég var
— það var frelsið sem ég upplifði þegar
ég tjáði mig loks á þann hátt sem ég
vildi, án þess að kæra mig um skoðanir
annarra. Það var frelsið að fá að líta út
eins ég vil líta út, fá að nota orð til að
lýsa sjálfri mér sem passa betur við
mig og fá að tilheyra samfélaginu á hátt
sem lætur mér líða vel með sjálfa mig.
Þegar ég fékk að upplifa ást einhvers
sem sá mig nákvæmlega eins og ég er.
Þegar ég knúsaði hundinn minn sem
elskaði mig sama hvað. Þegar móðir
mín safnaði hári svo við gætum fléttað
hárið á hvor annarri. Þegar ég fékk
ný skilríki. Þegar ég gat gengið niður
Laugaveginn án þess að fela mig. Það
var kyngleðin sem ég vissi að byggi
innra með mér og blómst raði þegar ég
leyfði henni að streyma fram.
Trans fólk býr nefnilega yfir ótrúlegum
krafti. Við erum við sjálf þrátt fyrir
alla fordómana, áreitið, ofbeldið og
sí endur teknu skilaboðin um að við séum
á einhvern hátt röng eða afbrigðileg.
Það er sá kraftur sem fólk óttast og
fær þau til að ráðast að okkur. Það er
kraftur sem þau búa ekki yfir sjálf og
í stað þess að fagna honum og eignast
hlut í honum leyfa þau eigin ótta, eigin
skömm og eigin sorg að ná yfirhöndinni.
Í stað þess að leyfa sjálfu sér að
upplifa frelsið og brjótast úr fjötrum
gagn kynhneigða sís-regluverksins
verða þau útsendarar þess og bæla
niður eigin tilfinningar og gleði. Fólkið
sem berst hvað mest gegn okkur er
nefnilega oftast fólkið sem þarf hvað
mest á gleðinni að halda. Það er fólkið
sem hefur bælt eitthvað niður í eigin lífi
en geta ekki horfst í augu við það og
ræðst því frekar að öðru fólki sem hefur
losað sig úr fjötrum kynja tví hyggjunnar.
Það er nefnilega ekki bara trans fólk
sem þarf á frelsinu og gleðinni að halda,
kynjahyggjan heldur okkur öllum niðri
á einn eða annan hátt. Þess vegna
er kyngleði svo ótrúlega kröftug og
við getum deilt henni með fólki með
hluttekningu, af kærleika, af ást og
með krafti sem rífur niður þá veggi
sem reistir hafa verið. Það er því ekkert
meira róttækt eða kröftugt en að vera
við sjálf.
Kyngleðin, ástin og frelsið mun að
lokum sigra því að hatur, fordómar og
ofbeldi eru ekki óþrjótandi auðlind.
Kyngleðin er sterkasta vopnið sem þú
átt og mun alltaf vera kröftugri en
hatur, fordómar og ofbeldi. Við megum
þess vegna aldrei leyfa fólki að ræna
okkur kyngleðinni eða frelsinu til að
vera við sjálf. Við megum aldrei smætta
okkur eða fela okkar innra sjálf til að
þóknast öðrum.
Verum við sjálf, nákvæmlega eins og við
erum — og berum höfuðið hátt.
(Kyn)Gleðilega Hinsegin daga.
Gender Euphoria Is an
Un stoppa ble Force
Through recreating our own narratives
and carving out space, we can show
the world that being trans isn’t a
trag edy – but a beautiful, unique and
powerful experience that can help
every one break away and be their most
authentic selves.
Mynd af greinarhöfundi
og maka úr einkasafni