Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Qupperneq 74
74
Það var síðan í félags skap þessara nýju
vinkvenna sem inn blásturinn að rann-
sókn hennar kom.
„Ég deildi minni reynslu af því að hafa
verið í ofbeldis sambandi með sís
karlmanni í tvö ár og fékk síðan á móti
að heyra alls kyns reynslu sögur frá
vinkonum mínum, meðal annars af
líkam legu og fjárhags legu ofbeldi. Þetta
féll svo fjarri mínum hug myndum um
hin segin sam bönd og fékk mig til að
hugsa: Af hverju vissi ég þetta ekki?“
Ingibjörg hóf að skoða hvað hafði verið
skrifað fram til þessa um of beldi
í nánum sam böndum hinsegin fólks,
en átti í erfið leikum með að finna rann-
sóknir á mál efninu hér á landi. „Einu
opin beru gögnin sem ég fann um
heimilis ofbeldi voru skýrslur félags-
mála ráðu neytisins frá 2008 og 2011.
Báðar fjölluðu ein ungis um ofbeldi í
gagn kynja sam böndum, þó að í þeirri
seinni væri reyndar stungið upp á að
rann saka efnið sem hluta af „öðrum
rann sóknum á lesbíum,“ sem hljómar
svolítið eins og það ætti að fara að
rann saka simpansa í búri. Síðan var
hvergi minnst á mögu leikann á tvíkyn-
hneigð, eða öðrum kyn hneigðum,“ segir
Ingibjörg.
Félags málar áðu neytinu var falið að að
gera út tekt á heimilis ofbeldi í hinsegin
sam böndum og fjöl skyldum á árunum
2023-24 í aðgerða áætlun í mál efnum
hin segin fólks sem samþykkt var af
Alþingi á síðasta ári. Við munum því
mögu lega á næstu árum sjá form-
lega skýrslu á vegum stjórnvalda
um mál efnið líta dagsins ljós. Strax
á næsta ári munu niður stöður rann-
sóknar Ingibjargar birtast en Ingibjörg
byggir hana á við tölum við þol endur
og segist langt komin í viðtals ferlinu.
Enn sé þó of snemmt að gefa nokkuð
upp um niðurstöður rann sóknarinnar.
Niður stöður sam bæri legra rann sókna
erlendis sýni þó að full ástæða er til
að gera sam bærilega rann sókn hér
á landi. „Þær rann sóknir sem ég hef
fundið hafa flestar verið banda rískar
en í þeim koma fram atriði sem undir-
strika nauðsyn þess að kanna þetta hér
á landi. Til dæmis að viðbragðs aðilar
taki ofbeldi í hinsegin sam böndum ekki
jafn alvarlega og að hinsegin fólk sé
oftar beitt ofbeldi í nánum sam böndum.
Eitthvað sem sló mig sérstak lega er að
tvíkyn hneigðar konur eru í hvað mestri
hættu að vera beittar ofbeldi í nánu
sam bandi, og það er sama hvort þær
eru í hinsegin eða gagn kynja sambandi.“
Tvíkynhneigðin og ör áreitið
Það er hér sem samtalið tekur
nýja stefnu, frá rann sóknum og
tölfræði yfir í reynslu Ingi bjargar sem
tvíkynhneigð kona á Íslandi í dag. Hún
lýsir því hve mikinn mun hún finni í
viðbrögðum fólks frá því þegar hún
var í langtímasambandi með karl-
manni miðað við sambandið með
unnustu hennar í dag. „Var þetta alltaf
svona eða fóru bara allir af hjörunum
í kóvid-einangruninni?“ segir Ingi björg
og kitlar þannig svartar hlátur taugar
blaðamanns.
„Ég hef verið að átta mig á því undan-
farið hvernig stans laust er verið að
pikka í mann, eitthvað sem í fyrstu
virð ast litlir hlutir. Það er ekki skrítið
að sjá að hærra hlut fall tvíkyn hneigðs
fólk glímir við alvar lega hluti eins og
kvíða og þung lyndi. Ég man það fyrsta
sem ég fékk að heyra frá kunningja-
konu eftir að ég kom út væri að ef
ég ætlaði að skil greina mig tvíkyn-
hneigða myndi enginn vilja deita
mig,“ segir Ingi björg, en það sem
hún segir hér er sannar lega stutt af
gögnum. Fjöl margar rann sóknir hafa
sýnt fram á þessa niðurstöðu, þar
á meðal íslensk rann sókn frá árinu
2017, leidd af dr. Berg lindi Gísla dóttur.
Sú kannaði andlega heilsu tví- og
samkyn hneigðra ung menna á aldrinum
16-20 ára. Hún sýndi skýrt fram á að
samkyn hneigð ung menni búa við verri
geðheilsu að meðaltali en þau sem
eru gagnkynhneigð. Verstu stöðuna
mátti þó finna meðal tvíkyn hneigðra
ung menna, sér staklega tvíkyn-
hneigðra stúlkna, og bentu höfundar
í niðurstöðu kafla rann sóknar innar á
að tilefni væri til að gefa þessu sér-
stakan gaum og finna leiðir til að hlúa
sérstaklega að þessum hópi sem býr
við marg þætta mismunun.
Ingibjörg lýsir því hvernig annað fólk
virði síður eðlileg mörk í sam ræðum
við sig. „Fyrir fólki er einhvern veginn
tvíkyn hneigð bara sama og þrísomm.
Ég hélt að þetta væri eitt hvað sem ég
myndi fá að heyra einu sinni og síðan
búið en er farin að velta alvarlega fyrir
mér hversu oft ég muni þurfa að heyra
þetta,“ segir Ingi björg, sem er heitt
í hamsi, og heldur síðan áfram,
„Ef ég er með of langar neglur er ég
spurð hvort ég og konan mín séum
alveg hættar að sofa saman. Einn
daginn þegar ég var óvenju skjálf hent,
út af vefja gigtinni, var ég spurð hvort
ég væri alveg búin í hendinni eftir gær
kvöldið með konunni minni.“
Ingibjörg segist hafa fengið að heyra að
skil greiningin að vera tvíkyn hneigð feli í
sér for dóma fyrir lesbíum og fyrir trans
fólki. „Það er svo langt frá því að vera
satt! Trans konur eru konur, trans karlar
eru karlar og kvár eru fokking sæt! Það
er einhvern veginn stans laust verið að
gefa í skyn að það að vera tvíkyn hneigð,
jafnvel orðið sjálft, sé ekki nógu gott.
Þetta er ótrúlega mikil inn ræting á bi-
fóbíu.“ Ingibjörg er þrátt fyrir fordóma
og að finnslur annarra stolt tvíkyn hneigð
kona og er í dag fyrirmyndin sem hana
sjálfa vantaði á yngri árum. „Mér finnst
mikilvægt að halda því til haga að ég
sé tvíkynhneigð því það var svo erfitt
fyrir mig sjálfa að átta mig á þessu. Ég
vissi að ég væri ekki lesbía en samt
voru allar þessar til finningar til staðar
sem ég skildi ekki. Það voru vissu lega
margar áberandi konur í sam félaginu
sem áttu konur en þær voru allar les-
bíur. En ég bara vissi að það væri ekki
ég,“ segir Ingibjörg, og minnir þannig
á hve mikilvægar fyrirmyndir eru fyrir
jaðar setta hópa og sjálfs mynd þeirra.
Hverfisgata 26
matbar.is | +354-788-3900
The First Dumpling
House in Iceland
dragondimsum.is
Geirsgata 9, 101 REYKJAVÍK