Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Qupperneq 75
75
Að segja eða þegja?
Ingibjörg stendur keik með rann sókn-
inni sinni en það er þó eitt sem veldur
henni á hyggjum. „Ég er hrædd um að
rann sóknin verði nýtt af haturs fullum
hópum,“ játar hún. „Ég hrædd um að
þetta verði nýtt til að segja: „Sko, þau
geta ekki einu sinni verið góð hvert við
annað!“ En mér finnst mikil vægt að
skapa þekkingu um þetta. Að fólk læri
að þekkja einkennin - sama hvort þau
eru svipuð og ofbeldi í nánum gagn-
kynja samböndum; eða akkúrat ekki. Ég
vil sjá forvarnir fyrir ungt hin segin fólk,
og að sjálfsögðu hinsegin fólk al mennt.
En á sama tíma hræðist ég rosalega að
þetta verði notað gegn hinsegin sam-
félaginu.“
Þegar ég spyr hvers vegna efnið hafi
ekki verið rann sakað fyrr en nú kemur
hik á Ingibjörgu. „Ég held að það sé
enginn betri eða verri tími til að gera
þessa rann sókn,“ segir Ingibjörg, djúpt
hugsi. „Við myndum þurfa að bíða ansi
lengi eftir rétta tímanum til að ræða
að hin segin fólk sé ekki fullkomnar
glimmer sprengju gleði bombur.“ Ingi-
björg færir um ræðuna að yfir stand andi
bak slagi. „Við sjáum bakslagið bitna
mjög harka lega á trans fólki. Á sama
tíma finnst mér tæki færið nýtt til að
herða reglurnar um hvernig hin segin
hegðun sé ásætt anleg meiri hlutanum.
Þú mátt alveg vera hommi ef þú keyrir
um á skóda en guð forði okkur frá því
að þú stundir drag. Það er hræðsla
meðal hin segin fólks að sýna að við
séum ekki fullkomin. Að Pride sé ekki
bara gleði og glimmer,“ segir Ingibjörg,
sem aftur verður þungt hugsi. „En á
sama tíma er þetta sjálfsbjargar viðleitni.
Ef þau sam þykkja mig svona þá skal
ég vanda mig. Ég finn sjálf hvað ég
rit skoða mikið í minni hegðun til að
forðast að verða eitthvað skot mark. En
það er mikilvægt að hin segin fólk fái að
vera alls konar, rétt eins og annað fólk.
Ingibjörg hefur sjálf reynslu af því
að hafa verið í ofbeldis sambandi
og viðfangs efni rann sóknar innar er
þungt. Hvaðan kemur drif krafturinn
og styrkurinn? Vonin um að þetta skili
einhverju drífur mig áfram, að rann-
sóknin geri eitthvað gagn. Að fólk átti
sig á því að það er ekki eitt í þessu. Að
það sé tryggt að hin segin þolendur
fái sömu með ferð og önnur. Að þol-
endur valdeflist og læri að bera kennsl
á ein kennin. Að við getum byggt upp
for varnir og lært hvernig við getum gert
betur. Það heldur mér gangandi.“
Not Always Pride with Glittery Joy
Ingibjörg Andrea Hallgrímsdóttir is
conducting the first-ever research
on intimate partner violence (IPV)
in queer relationships in Iceland.
Studies elsewhere have found that
first responders take IPV in queer
relationships less seriously and
that queer people are more at risk
of suffering IPV. Another concern,
however, is the risk of the results being
weaponized by hate groups, but this
discussion might still be an important
next step in the fight for full equality:
being seen as complete persons with
intricate lives and personalities – not
just as smiling faces at Pride. In order
to move forwards, we must also face
such difficult issues and discuss real,
substantive things.
Hverfisgata 26
matbar.is | +354-788-3900
The First Dumpling
House in Iceland
dragondimsum.is
Geirsgata 9, 101 REYKJAVÍK