Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Blaðsíða 84
84
Lucy Shtein er ung kona, fædd í Rúss-
landi árið 1996, sem hlaut ís lens kan
ríkis borgara rétt í vor af mann úðar-
ástæðum. Hún er meðlimur rúss-
neska gjör ninga hópsins Pussy Riot og
aðgerða sinni hjá sam tökunum NC SOS
Crisis Group sem styðja hinsegin fólk
við að flýja frá Norður-Kákasus. Svæðið
er afar fjand samlegt hinsegin fólki sem
er ofsótt, beitt ofbeldi og jafnvel myrt
vegna hinsegin leika síns.
Hjálpar hinsegin fólki að flýja
heimaland sitt
Helsta viðfangsefni Lucy Shtein í
dag eru hjálpar samtökin NC SOS
sem aðstoða hinsegin einstaklinga í
Norður-Kákasus í Suður-Rússlandi við
að flýja svæðið. Tétenía er senni lega
best þekkta fylkið af þeim sjö sem eru
í Norður-Kákasus. Téténía hefur ratað
í heimsfréttir undanfarin ár fyrir bar-
áttu svæðisstjórnarinnar við rússnesk
yfirvöld og einstaklega slæma stöðu
mann réttinda á svæðinu.
„Þau eru ofsótt. Það eru til sérstök
óform leg fangelsi, sérstaklega í Té
téníu. Þetta er hræðilega blóðugt svæði
… Rússland er land óskrifaðra laga og
Téténía lifir eftir sínum eigin lögum. Fólk
getur horfið spor laust þarna, fólki er
rænt, jafnvel utan NorðurKákasus. Ef
fólk frá Té téníu reynir að flýja og fer til
Moskvu, þau geta rænt fólki frá öllum
svæðum Rússlands. Ríkisstjórnin og lög
reglan gera ekki neitt, þeim finnst í lagi
að Téténía lifi eftir sínum eigin lögum.“
Téténía telst í dag vera eitt
hættulegasta svæðið fyrir hinsegin
fólk í Rússlandi og víðar. Hinsegin fólk
á á hættu að vera myrt af lögreglu eða
jafnvel af sinni eigin fjölskyldu líkt og
Lucy greinir frá.
„Það eru tvær tegundir af hættu í
NorðurKákasus. Þú getur verið myrt
af lögreglu eða af þinni eigin fjölskyldu.
Það að vera samkynhneigð í Téténíu
telst vera mikil skömm fyrir fjölskyldu
þína og það þarf að skola burt þessari
skömm, þau kalla það að skola burtu
með blóði ...“
NC SOS hefur hjálpað yfir þrjú hun druð
einstaklingum að flýja Norður-Kákasus
en samtökin geta aðeins fjallað opin-
berlega um tæp 20 þeirra, einkum
vegna hræðslu fólks við að deila reynslu
sinni og mögulegum afleiðingum þess.
„Þetta fólk á venjulega ættingja sem
búa enn í Téténíu, svo dæmi sé tekið.
Ef það spyrst út að samkynhneigð
manneskja frá Téténíu hafi flúið land
og sé að tala um reynslu sína, þá munu
þeir ræna ættingjum þeirra, þeir munu
pynta þau.“
Flúði Rússland í dulbúningi
Lucy hefur mótmælt stjórnar fari Pútíns
í Rúss landi af miklum krafti frá árinu
2015. Árið 2017 bauð hún sig fram sem
óháður fram bjóðandi í sveitar stjórnar-
kosningunum í Moskvu og hlaut kjör til
fimm ára. Að vera stjórn málamaður í
minn i hlutastjórn í Rússlandi er hægara
sagt en gert og Lucy sætti mikilli kúgun
vegna stjórnmálaskoðana sinna.
„Þegar ég gekk til liðs við Pussy Riot
versnaði það og ég var fangelsuð
nokkrum sinnum. Við vorum síðar
ákærðar, ég og Maria Alyokhina,
kærastan mín, úr Pussy Riot og
eyddum um ári í stofufangelsi áður
en við flúðum Rússland dulbúnar sem
matarsendlar.“
Líkt og hún segir sjálf frá þá slapp Lucy
úr stofufangelsi í Rússlandi í mars 2022
dulklædd sem matarsendill. Búning inn
hafði hún pantað á netinu og fengið
sendan heim. Kærastan hennar, Maria
Alyokhina, einn af stofn meðlimum
Pussy Riot flúði Rúss land með sama
máta nokkrum mánuðum á eftir Lucy.
„Maria átti engin skilríki og ég átti
erlent vegabréf sem hafði runnið út,
það var aðeins gilt í nokkra mánuði og
þar sem við erum á lista yfir eftirlýsta í
Rússlandi þá getum við ekki fengið neitt
framlengt eða fengið ný skilríki. Þannig
að við fórum frá Rússlandi án skilríkja.“
FRÁ RÚSSLANDI
Á FLÓTTA
Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir