Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Page 85
85
Þakklát fyrir ríkisborgara réttinn
Lucy hlaut íslenskan ríkisborgara-
rétt núna í maí að tillögu allsherjar- og
menntamálanefndar Alþingis sem tekur
fyrir umsóknir um ríkisborgara rétt.
Maria, kærastan hennar, hlaut einnig
ríkisborgararétt á sama tíma. Það var
listamaðurinn Ragnar Kjartans son sem
hjálpaði þeim í ferlinu og hvatti þær til
þess að koma til Íslands en Lucy og
Maria kynntust Ragnari eiginlega fyrir
tilviljun þegar hann kom til Moskvu til að
opna listasýningu. Sameiginlegur vinur
þeirra vildi að þau myndu öll hittast og
urðu sú kynni afar afdrifarík.
„Við héldum sambandi við hvert annað
og eftir það vorum við hand teknar
nokkrum sinnum, fórum í fangelsi
í fimm tán daga og svo aftur í fimm tán
daga, og svo byrjaði stríðið. Öll voru að
segja okkur að fara og Ragnar var mjög
stress aður og hafði áhyggjur af okkur.
Hann sagði okkur að koma til Íslands og
að þau myndu hjálpa okkur að flýja
frá Rússlandi.“
Ragnar benti þeim á að hægt
væri að leggja fram umsókn um
íslenskan ríkisborgararétt til Alþingis
undir ákveðnum kringumstæðum,
sérstaklega ef enginn önnur leið til
ríkisborgararéttar eða dvalarleyfis
stæði þeim til boða. Lucy og Maria
gerðu það og bárust þær fregnir í maí
að umsókn þeirra hefði verið tekin
til greina af nefndinni og samþykkt.
Aðspurð segist Lucy mjög þakklát fyrir
ríkisborgararéttinn.
NC SOS samtökin styðja hinsegin fólk
í að flýja Norður Kákasus svæðið í
Rússlandi. Þau sem vilja styðja við starf
NC SOS geta skannað QR kóðann hér
til hliðar sem leiðir inn á styrktarsíðu
samtakanna. Áhugasömum er einnig
bent á viðburð Lucy Shtein/NC SOS
á Hinsegin dögum.
Fleeing Russia
Interview with Lucy Shtein, a Russian
activist and member of Pussy Riot on
her work with NC SOS, an organization
that assists queer individuals in flee-
ing the North Caucasus region in
Russia, as well as her recent Ice landic
citizenship.
Myndir úr einkasafni