Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Blaðsíða 93
93
Donni Gíslason
Steven Þór Grygelko, einnig þekktur
sem drag drottningin Heklina, var
fæddur í Henne pin County í Minne sota
í Bandaríkjunum og var sonur hjón anna
Stanleys og Kristínar Grygelko. Kristín,
móðir hans, var íslensk. Steven lést
langt fyrir aldur fram, í London 3. apríl
síðastliðinn. Vikuna fyrir svip legt andlát
sitt hafði hann dvalið á Íslandi og hitt
hér gamla vini og kunningja. Andlát
hans var mörgum mikið áfall og harmur
en hann var aðeins 55 ára að aldri.
Ég kynntist honum árið 1984, þegar
hann var sautján ára gamall og kom
hingað til lands til að tengja sig við
ís lenskar rætur sínar. Hann var fallegur
ungur maður og mikill gleði gjafi. Steven
small beint inn í gleð skap borgar innar
og við hommar nir tókum honum opnum
örmum. Þau ár sem hann dvaldi hér
fékkst Steven við ýmis legt. Hann var
um tíma módel í Myndlista- og handíða-
skólanum, vann sem þjónn á kínversku
veitinga húsi á Lauga veginum og söng
um tíma með okkur homm unum í karla-
kórnum Vormönnum Íslands.
Þegar Steven flutti aftur til Banda-
ríkjanna settist hann að í San Fran-
cisco. Þar skapaði hann drag drottning-
una Heklinu en nafnið valdi hann til
heiðurs hinu dul úðuga eld fjalli Heklu
og ís lensku ætt jörðinni. Árið 1996 fékk
Steven svo að stöðu á hinum fræga
homma bar The Stud á þriðju dögum,
þar sem hann skapaði drag senu sem
átti eftir að slá ræki lega í gegn. Hann
fékk til sín hóp af fólki og til varð
drag klúbburinn Tranny shack. Hróður
Tranny shack átti síðar eftir að berast
langt út fyrir San Francisco-svæðið,
langt út fyrir hin segin sam félagið og
varð klúbburinn raunar frægur á lands-
Steven Þór Grygelko / Heklina – 17. júní 1967 – 3. april 2023
vísu. Þar mátti finna drag drottningar,
kónga og ýmist frægðar fólk, sem
slóst um að komast inn og að kjöt-
kötlunum, troða upp, láta sjá sig og sjá
aðra. Meðal þess frægðar fólks sem
sótti staðinn heim má til dæmis nefna
Lady Gaga og John Waters. Ég varð
vitni að þessu æði þegar ég dvaldi hjá
Heklinu um mánaðar skeið árið 1997,
þar sem ég fékk að upplifa hava ríið og
karni valið sem var hafið í stig vaxandi
gleði sprengju. Þarna vorum við Steven,
ásamt mörgum öðrum, að fagna nýju lífi
með nýju HIV-lyfjunum sem voru komin
til bjargar okkur „syndugu“ hommunum.
Steven lét mikið til sín taka innan hin-
segin sam félagsins, hann tróð upp
á ótal góðgerðar sam komum og var
áberandi í gleði göngum víðs vegar
í Bandar íkjunum og skapaði ótal
tæki færi fyrir ungt og upp rennandi
draglista fólk af öllum kynjum. Eða eins
og Bay Area Reporter greindi frá árið
2008: „Hinar viku legu sýn ingar voru í
raun einstaklega hin segin gjörningar
sem snertu á mál efnum sem tengdust
stjórnmála-, félags-, kyn þátta- og kynja-
deilum sam tímans. Með þeim henti
Heklina út reglu bókinni um hvað það
þýddi að vera drag performer, sýningar-
nar voru meira en bara strákar í kjólum
sem mæmuðu popp ballöður. Heklina
bauð ekki bara drag drottningum
á sviðið, hún bauð einnig kven kyns flytj-
endum og drag kóngum að deila með
sér sviðinu. Síðan snemma á tí unda
áratugnum hefur Heklina verið máttar-
stólpi í hinsegin næturlífi Bay Area.”
Steven kom margsinnis til Ísland
á síð ustu árum. Fyrst til að hvíla sig
á draginu og stórborgar lífinu en seinna
kom hann að troða upp á Hin segin
dögum. Hann kom líka til að endur-
nýja kynnin við gamla vini og tengjast
íslensku rótunum á ný. Það er mikill
sjónar sviptir og söknuður að góðum vin.
Okkar síðustu orðaskipti í síma voru
einmitt í hans anda:
„How could you! You bitch!
What about me?“
eftir að hann frétti að ég væri að
flytja úr Vestur bænum í Árbæ því að
hann gisti reglu lega þar hjá mér en
henni Heklinu leist ekkert á blikuna að
gista svona langt frá mið bænum. Svo
hlógum við okkar vana lega trölla hlátri
yfir þessu. Ég vil minnast Stevens sem
gleðigjafa og litríks vinar. Ég minnist
hans svarta húmors og greindar. Ég
minnist endalausra hlátraskalla, gleði
og gefandi samveru.
Blessuð sé minning þín,
elsku Steven, elsku Heklina.
M
yn
da
te
xt
i:
H
ek
lin
a
og
H
ra
fn
hi
ld
ur
G
un
na
rs
dó
tt
ir
á
st
ór
a
sv
ið
in
u
á
H
in
se
gi
n
dö
gu
m
2
0
0
5
M
yn
d:
A
ni
ta
B
ow
en
Minning um vin,
minning um drottningu