Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Síða 94
94
Una Torfa stimplaði sig rækilega inn
í íslenskt tónlistarlíf í fyrra. Í upphafi
ársins sendi hún frá sér sína fyrstu
EP-plötu, Flækt, týnd og einmana, sem
vakti mikla athygli en lög af henni hlutu
talsverða spilun í útvarpi ásamt laginu
„Fyrrverandi“ sem hún sendi frá sér
síðla árs. Una var dugleg að spila víða
um land og kom meðal annars fram á
Iceland Airwaves við góðar undirtektir.
Athygli vakti að Una samdi sum lögin
sín til kvenna en hún er tvíkynhneigð
og hefur talað um hinseginleika sinn
í viðtölum. Það var því engin spurning
hvert átti að leita eftir lagi Hinsegin
daga í ár.
„Ég fann fyrir mikilli ábyrgðartilfinningu
þegar ég tók þetta verkefni að mér.
Annað tvíkynhneigt fólk kannast
efl aust við tilfinninguna um að vera
ekki talið nógu hinsegin, að eiga
stundum er fitt með að finna sér
pláss í baráttunni og menningunni,
sérstaklega þegar fólk er í sambandi
við manneskju af gagnstæðu kyni. Mér
finnst frá bært að fá þetta tækifæri
til að standa uppi á sviði og vera ég
sjálf, með minn geggjaða kærasta með
mér í allri undir búningsvinnunni og
flutningnum,“ segir Una þegar hún er
spurð út í til finninguna við að taka það
verkefni að sér að semja lag Hinsegin
daga.
Mjög erfitt að semja lag
Hinsegin daga í ár
Hún segir að það hafi verið mjög erfitt
að semja lagið og að hún hafi í raun
ekki vitað hvar hún ætti að byrja. Eins
og áður sagði var kærasti Unu, Haf-
steinn Þráins son eða Haffi, með í ferlinu
en þau eru ekki bara par heldur líka
samstarfsfólk.
„Við hittumst í stúdíóinu og byrjuðum að
semja, fyrst datt mér ekkert í hug nema
angurværar hugleiðingar um hvað það
getur verið erfitt að vera öðruvísi, að
vera stöðugt krafin um útskýringar
beint og óbeint á því hver maður er í
raun og veru. Ég byrjaði að skrifa texta
við lagið en útgangspunkturinn var of
neikvæður, fannst mér. Ég vildi semja
baráttusöng sem byggir brýr og fær
fólk til að brosa, trúa og þora og þessi
texti var ekki þesslegur,“ segir Una sem
þurfti að gera hlé á sköpunarferlinu til
þess að spila á tónleikum.
„Ég rauk út í bíl og skaust á gigg og kom
svo beint aftur upp í stúdíó þar sem
við Haffi ákváðum að byrja bara upp á
nýtt. Ný laglína varð til og morguninn
eftir settist ég niður á kaffihúsi,
hlustaði á upptöku í símanum þar sem
ég hummaði lagið og ég skrifaði nýjan
texta sem ég er stolt af.“
Una segir að lagið sé fyrir okkur öll.
„Það er áminning um hvað það ætti að
vera einfalt að standa með þeim sem
krefjast einskis annars en að fá að vera
til og leita að hamingjunni. Þetta er lag
um vináttu, samstöðu, stolt og hreina,
tæra gleði. Ég vona svo innilega að fólk
hafi gaman af, að lagið hreyfi við þeim
sem hlusta og helst vona ég að einhver
syngi með og dansi þegar ég spila það
með hljómsveit á stóra sviðinu eftir
Gleðigönguna, það væri algjör draumur,“
segir Una og eins og áður sagði vonast
hún til að lagið byggi brýr.
„Ég vil að lagið minni fólk á að við erum
öll að leita að því sama, við viljum bara
fá að tilheyra, vera elskuð af fólkinu
okkar og fá að láta gott af okkur leiða í
þessu litla, stutta lífi.“
Ný plata í bígerð
Það er annars nóg framundan hjá
þessari öflugu og flottu listakonu,
meðal annars ný plata. „Haffi er að
hjálpa mér með þessa nýju tónlist
eins og hann gerði með lagið mitt
Fyrrverandi. Við erum með stærri
útsetningar en á síðustu plötu, fleiri
hljóðfæri og breiðara sound en inn
á milli verða líka lög sem eru í mjög
einföldum búningi. Mér finnst það svo
fallegt og skemmtilegt,“ segir Una sem
bætir við að hún ætli að halda áfram
að spila sem víðast og prófa alls konar
nýja hluti í þeim efnum.
Töfraorka yfir Hinsegin dögum
Unu þykir vænt um Hinsegin daga og
eins og svo margt hinsegin fólk á hún
góðar minningar frá hátíðinni. „Fyrsta
árið eftir að ég var komin almennilega
út úr skápnum efndi mamma til þess
að við fjölskyldan færum í bröns fyrir
gönguna og svo saman niður
í bæ. Mér þótti svo vænt um það og
núna er þetta órjúfanlegur hluti af
hátíðahöldunum. Í fyrra fékk ég líka
að spila í Hljómskálagarðinum og átti
algjört draumakvöld eftir það þar sem
ég kynntist nýjum vinum sem eru svo
nánir mér í dag. Það svífur einhver
töfraorka yfir vötnum á Hinsegin
dögum og ég hvet öll til að koma
og vera með, sérstaklega þau sem
hafa aldrei komið áður,“ segir Una
sem segist finna fyrir svo miklu stolti
þegar hinsegin fólk gengur saman og
berst fyrir réttindum sínum með því
að hafa gaman og sýna hvað lífið geti
verið fallegt þegar öll fá frelsi til þess
að vera þau sjálf. Hún vonar að öll
skemmti sér vel á Hinsegin dögum og
gleymi ekki gleðinni. „Samhliða öllum
mikilvægum framförum í stjórnsýslunni
og baráttunni við bakslagið megum við
aldrei gleyma gleðinni, aldrei gleyma því
hvað það er fallegt þegar fólk lætur ljós
sitt skína og hvað það er mikilvægt að
lyfta því upp. Skemmtið ykkur vel, verið
nákvæmlega eins og þið viljið vera og
veljið alltaf ástina fram yfir óttann.“
Lag Hinsegin daga 2023
Siggi Gunnars ræðir
við Unu Torfa