Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Blaðsíða 104
104
Ungmennadagskrá Hinsegin daga
Hinsegin dagar eru hátíðin okkar allra,
hvernig sem við skilgreinum okkur,
hver nig sem við klæðum okkur, af
hvaða stétt sem við erum, hvort við
erum ung eða gömul, garð yrkjufólk
eða fjórhjólakappar, fyndna kvárið á
vinnu staðnum eða ófram færa nýja
týpan. Dagskráin verður þannig að
vera fjölbreytt og höfða til alls konar
fólks. Eitt af því sem hefur verið skipu-
leggjendum Hinsegin daga algjört
keppi kefli síðustu ár er að bjóða upp á
dag skrá sem höfðar til ungs hin segin
fólks. Hópsins sem finnur hvað mest
fyrir bakslaginu; við bjóðinum sem við-
gengst á TikTok og geltið úti á götu.
Hópsins sem týndi mikil vægum árum í
einangrun vegna heims faraldurs. Hóp-
sins sem er öðrum kynslóðum fyrir-
mynd í framsækni, víðsýni og að vera
þau sjálf. Því buðum við upp á sér staka
ungmennadagskrá í fyrsta skipti
í fyrra—og nú endurtökum við leikinn!
Unga fólkið á bak við tjöldin
Hópur af miðaldra stjórnarfólki er ekki
endilega með puttann á púls inum
þegar að kemur að því að setja saman
dagskrá fyrir unga fólkið. Því hefur
í ann að sinn verið kallað eftir fram-
boðum í ungmenna ráð Hinsegin daga;
hóp ungs hin segin fólks sem koma með
hug myndir að viðburðum og leiðum til
að auka sýni leika ungs hinsegin fólks
á Hinsegin dögum. Ráðið vinnur í nánu
sam starfi við stjórn Hinsegin daga í
Reyk ja vík, mótar hug myndirnar og fær
í lið með sér önnur ung menni til að
aðstoða við fram kvæmd viðburða.
Í ár buðu tólf skapandi og skemm tilegir
ein staklingar sig fram til ráðsins og hafa
þau varið sumrinu við að teik na upp
fjöl breytta og áhugaverða ung menna-
dagskrá.
Kökukeppni og kósíheit
Ungmennadagskráin í ár endur speglar
áhugasvið ungs fólks og þörf fyrir
samheldni og öruggara rými til að vera
þau sjálf. Í fyrsta skipti verður sér stök
opnunar hátíð fyrir ungt fólk þar sem
upphafi hátíðar innar er fagnað. Köku-
keppnin frá í fyrra verður á sín um
stað og sömuleiðis tón leikarnir Ungar
hinsegin raddir sem fylltu hús ið á
síðasta ári. Þá hittast hinsegin ung-
menni við Samtökin ‘78 á Suður götu
3 eftir Gleðigöngu og útihátíð, slafra í
sig pylsur og knúsast eftir tilfinninga-
rússíbanann.
Helstu viðburðir
ungmennadagskrár
Hinsegin handverk (10-12 ára)
Pride Centre (Iðnó) Sunnusalur
Mánudaginn 7. ágúst kl. 13:00 15:00
Pride vikan byrjar á notalegum nótum
þar sem 10-12 ára hinsegin krökkum er
boðið að koma í Pride Centre og búa
til armbönd og listaverk úr perlum og
öðru efni. Skemmtilegur viðburður til að
koma saman, spjalla, hlæja og föndra.
Opnunarhátíð ungmenna (13-16 ára)
Pride Centre (Iðnó)
Þriðjudaginn 8. ágúst kl. 14:00 15:00
Hinsegin dagar verða settir þriðju-
daginn 8. ágúst og loksins gefst ung-
lingum tækifæri til að mæta á op nunar-
hátíð! Dj. Fusion Groove mun halda
uppi stuðinu en aðrir góðir gestir munu
einnig mæta á svæðið. Fögnum Hins-
egin dögum saman með gleði, tónlist,
glimmeri og góðum félagsskap.
Regnbogakökukeppni ungmenna
(13-16 ára)
Pride Centre (Iðnó) Sunnusalur
Föstudaginn 11. ágúst kl. 12:00
Leynist bakari í þér? Sætt, súrt, smátt,
stórt, hátt og lágt. Komið með alls
konar kökur eða góðgæti í þessa
skemmtilegu regnbogakökukeppni.
Vinningar í boði! Veitt verða
verðlaun fyrir frumlegustu kökuna,
metnaðarfyllstu kökuna og mest
hin segin kökuna. Þegar verð laun
hafa verið veitt verður að sjálf sögðu
kökusmakk.
Ungar hinsegin raddir
Pride Centre (Iðnó)
Föstudaginn 11. ágúst kl. 17:00
Tónlistarviðburður þar sem raddir
hinsegin ungmenna fá að heyrast.
Fjölbreytt atriði og frábært skemmtun.
Grillpartý ungmenna
Samtökin ‘78, Suðurgötu 3
Laugardaginn 12. ágúst kl. 16:30
Eftir geggjaða göngu og skemmtiatriði
í Hljóm skálagarðinum fögnum við áfram
og hittumst hjá húsnæði Sam takanna
‘78. Þar verður grillað og boðið upp á
alls konar góðgæti. Tónlist, grill og gleði
verður aðalmálið og frábært tæki færi
að fagna flottri göngu.
Nánar um ungmennadagskrá á
hinsegindagar.is/unghyr.
UNGHÝR
Youth Pride