Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Page 107

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2023, Page 107
107 Félagsheimili hinsegin fólks á Hinsegin dögum Hringiða hátíðarhalda Hinsegin daga verður í IÐNÓ alla vikuna, þar sem svo kallað PRIDE CENTRE verður starfrækt. Þar fer fram fjölbreytt flóra viðburða á sviði fræðslu, menningar og skemmt unar. Einnig verður Kaupfélag Hins egin daga starfrækt í húsinu, ásamt því að gestir og gangandi geta keypt sér veitingar og sest niður og spjallað um hins egin leikann og baráttuna. Listamaðurinn Steinar Svan sýnir list sína í rýminu, auk þess sem boðið verður upp á skynáreitisfrítt rými fyrir þau sem þurfa frí frá skarkalanum. Húsnæðið er aðgengilegt hjólastólum. PRIDE CENTRE verður opið daglega 7.-13. ágúst. Litríkasta kaupfélag landsins Enn á ný opna Hinsegin dagar litríkasta kaupfélag landsins þar sem seldar verða ýmis konar regnbogavörur, m.a. fánar, fatn aður, nælur og skraut. Þá verða vörur frá íslenskum hönnuðum til sölu, til dæmis regnbogakerti frá Hjartastað, servíettur frá Letterpress, handgerðar sápur í regnbogalitum frá TitanWorks, regnbogavettlingar og skotthúfur frá Tíru. Litríkt og ljómandi Alice Olivia Clarke, hönnuðurinn á bak við Tíru – ljómandi fylgihluti, sækir innblástur í þær aðstæður sem verða á vegi hennar á lífsleiðinni. Þegar hún greindist með þriðja stigs krabbamein fann hún tilgang í handverki sem minnir fólk á að þreifa brjóst sín reglulega. Sonur hennar kom svo út sem trans fyrir nokkrum árum og nú hefur Alice, í samstarfi við soninn Sigtý Ægi, hannað vettlinga og skotthúfur í regnbogalitunum. „Skúfurinn á skotthúfunni er ofinn með endurskinsþráðum, sem ljóma upp ef lýst er á þá,“ segir Alice en hönnunin minnir óneitanlega á ákall um aukinn sýnileika hinsegin fólks. „Vettlingarnir eru svo með regnbogarendur innan á lófunum, þrjár á hvorri hönd,“ bætir Alice við, svo að regnboginn er einungis sýnilegur þegar fólk veifar höndunum, „já, eða ef fólk leiðist. Þá er regnboginn sameinaður í eitt!“ segir hún. Þannig er kærleikurinn allsráðandi í hönnuninni en vörurnar eru framleiddar af fólki af fjölbreyttum bakgrunni. „Ég vil gjarnan gefa fólki tækifæri og skapa samfélag þar sem við sköpum saman,“ segir Alice en hún er meðal annars með bakgrunn í hönnun, mósaíklist og leiklist. Fjölskyldan er öll meira og minna skapandi en Kári Eiríksson, maður Alice, er arkitekt og áðurnefndur sonur þeirra, Sigtýr Ægir, er listamaður og nemi í arkitektúr við LHÍ. PRIDE CENTRE OUR HOME FOR A WEEK Þá teiknaði hann einmitt forsíðu Tímarits Hinsegin daga árið 2020 og sat í dómnefnd Gleðigöngupottsins í ár. Yngri sonur Alice, Styrmir, er svo að læra iðnhönnun í Dan- mörku. Alice segir regnboga vörurnar hafa orðið til vegna aðdáunar hennar á vegferð Sigtýs og áhuga á málefnum hins egin fólks. „Hann Sigtýr er svo hug rakkur og mig langaði að skapa eitthvað sem varp aði ljósi á regnbogann,“ segir Alice að lokum. Regnbogavörur- nar frá Tíru – ljómandi fylgihlutir verða til sölu í kaupfélagi Hinsegin daga. Pride Centre This year’s PRIDE CENTRE will be located at IÐNÓ, Vonarstræti 3, by the Reykjavik Pond, and will be filled with educational events, concerts, drag shows and other cultural events. In addition, the PRIDE CENTRE will house our information centre and PRIDE STORE, where we offer a wide selection of rainbow merchandise for sale, such as flags, pins and handmade design items. PRIDE CENTRE will be open daily 7-13 August. Vettlingar frá Tíru Saman mynda vettlingarnir regn boga- fána en á þeim er jafnframt endur skins- rönd til að auka sýnileika, bæði í umferð og samfélagi. Poppkorn úr einkasafni
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.