Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2022, Side 226
FÍKLaR Í BaTa
225
ferðir til landsins.45 Þættirnir voru kynntir svona af Helga Hermannssyni
dagskrárstjóra:
Við höfum fengið sex fallegar og vel gefnar íslenskar stúlkur til
liðs við okkur við gerð þessara þátta, en meiningin er að þær haldi
ásamt myndatökuliði til spilaborgarinnar Las Vegas í nóvember-
mánuði með það að markmiði að ná sér í huggulega, skemmtilega,
ríka ameríska karlmenn til að giftast, helst í ferðinni. gerðir verða
sjö þættir á fjórtán dögum og segja má að þetta verði hin íslenska
útgáfa af raunveruleikasjónvarpi.46
Ekkert varð af gerð þáttanna, en hugmyndin að þeim sem sjónvarpsefni var
óneitanlega í samræmi við andrúmsloftið í samfélaginu á þessum tíma: Í
upphafi endurspegla raunveruleikaþættirnir að einhverju leyti gildismatið
sem einkennist ekki síst af kvenfyrirlitningu og klámvæðingu. Einn af fyrstu
þáttunum sem SkjárEinn framleiddi undir stjórn þeirra Árna Þórs og Krist-
jáns Ra var stefnumótaþáttaröðin Djúpa laugin, sem fyrst var sýndur á Íslandi
árið 2000. Þar var eftir lukkupari hvers þáttar um sig fylgt eftir í rómantískri
stefnumótaferð.47 Oftar en ekki var mikið áfengi haft um hönd til að auka á
óvissu og spennu – sem átti sennilega að auka líkurnar á að þættirnir enduðu
vel, ef svo má að orði komast.48
45 Um þessar tilboðsferðir skrifaði til dæmis Úlfhildur Dagsdóttir í „náttúrulega svalt.
Íslensk náttúra, næturlíf og nautnir í boði Flugleiða“ sem birtist í Lesbók Morgun-
blaðsins 19. október 2002, bls. 4–5; guðni Elísson greinir frá fleiri slagorðum her-
ferðarinnar, til dæmis „áreittu fegurðardís“ (e. Pester a beauty queen) í pistlinum
„Sóðaferðir Flugleiða“, Lesbók Morgunblaðsins 5. apríl 2003, bls. 2; Heiða Jóhanns-
dóttir setur herferðina í menningarsögulegt samhengi í greininni „Under the Tour-
ist gaze. Reykjavík as the City that never Sleeps“ úr The Cultural Reconstruction of
Places, ritstjóri Ástráður Eysteinsson, Reykjavík: University of Iceland Press, 2006,
bls. 111–121.
46 „Systurstöðvar vinna saman“, bls. 11.
47 Fyrstu sjónvarpsþættir nýrrar dagskrár voru þó af fjölbreyttum toga, Unnur Steins-
son stýrði lífsstílsþættinum Útlit, Björn Jörundur grillaði fyrir gesti sína, Erpur Ey-
vindarson ferðaðist um landið og spjallaði við fólk í þættinum Íslensk kjötsúpa, Bjarni
Haukur Þórsson var einnig með spjallþátt á „léttu nótunum“ og þá ber að nefna
Brúðkaupsþáttinn Já með Elínu Björnsdóttur. Sjá „Silfrið kveður og grillið tekur
við“, Morgunblaðið 28. maí 2000, bls. 54. allt eru þetta þættir sem teljast til fyrir-
rennara raunveruleikaþáttanna, leikjaþættir og spjallþættir þar sem rætt er við raun-
verulegt fólk. Áður höfðu þættir um dægurmál verið á dagskrá SkjásEins, helst ber
að nefna umræðuþátt Egils Helgasonar, Silfur Egils sem hóf göngu sína stofnunarár
stöðvarinnar 1999.
48 Þessi ofuráhersla á vímuefni og kynlíf náði ákveðnu hámarki í þætti Djúpu laugar-